Fréttatíminn - 20.10.2016, Síða 1
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
65. tölublað
7. árgangur
Fimmtudagur 20.10.2016
Ótrúlega lág
tilboð vekja
grunsemdir
Verktaka-
fyrirtækið
Prima fær
risaverkefni 2 30 28
Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir var handvalin af Donald Trump í úrslit Miss Universe árið 2009. Bls. 6
Þessar kosningar
verða algjört met
Kosningar 2016
12
Þegar þingið hlustar
ekki á þjóðina
Fjögurra ára afmæli
þjóðaratkvæðis 14
Mörg met
í hættu
Miðað við stöðu stjórnmála-
flokkanna í skoðanakönnun-
um má reikna með að mörg
met muni fjúka í kosningun-
um eftir níu daga. Píratar hafa
möguleika á slá met í fylgis-
aukningu, Viðreisn gæti orðið
sá flokkur sem fengi mest fylgi í
fyrstu kosningum sínum og það
er enn möguleiki á að Framsókn
slái út met Samfylkingarinnar
frá 2013 í fylgishruni.
Samfylkingin er líkleg til að
fara undir sögulegt minnsta
fylgi sitt, einnig Framsókn og
sömuleiðis Sjálfstæðisflokkur.
Samanlagt fylgi Framsóknar
og Sjálfstæðisflokksins, þessara
burðargrinda íslenskra stjórn-
mála hingað til, verður líklega
minna en nokkru sinni.
Þessi staða lýsir ágætlega
þeirri deiglu sem íslensk stjórn-
mál eru í þessi misserin. Þar er
allt upp í loft. Næsta víst er að
eftir kosningar muni sjö þing-
flokkar setjast á þing, sem er
met. Öruggt má telja að saman-
lagt fylgi fjórflokksins svokall-
aða, Sjálfstæðisflokks, Fram-
sóknar, Samfylkingar og VG,
muni verða miklum mun minna
en það hefur verið nokkru sinni
verið.
Það má síðan reikna með
að eftir kosningar verði jafn-
vel fleiri met slegin. Miðað við
kannanir eru engar líkur á
tveggja flokka stjórn. Fjögurra
og jafnvel fimm flokka stjórn
er hins vegar ágætlega líklegur
kostur. -gse
Fylgismet Alberts Guðmundssonar í
flokki nýrra flokka, met í fylgisaukn-
ingu Alþýðuflokksins á blómatíma
Vilmundar Gylfasonar og metið sem
Samfylking Árna Páls Árnasonar setti
í fylgishrun eru öll í hættu í komandi
kosningum.
Í dag eru fjögur ár liðin síðan
þjóðin samþykkti í þjóðar-
atkvæðagreiðslu að drög
Stjórnlagaráðs yrðu lögð til
grundvallar frumvarpi að
nýrri stjórnarskrá. Síðan hefur
margt gerst en ekkert breyst.
Stjórnarskráin er óbreytt.
Halla Harðardóttir
htalla@frettatiminn.is
Gunnar Smári Egilsson
gunnarsmari@frettatiminn.is
Viðbrögð stjórnvalda við niður-
stöðum þjóðaratkvæðagreiðslunn-
ar fyrir fjórum árum eru einstök.
Þrátt fyrir afgerandi niðurstöðu,
66,9 prósent gildra atkvæða, var
ekki lagt fram frumvarp byggt á
drögum Stjórnlagaráðs á Alþingi í
ríkisstjórnartíð Jóhönnu Sigurðar-
dóttur. Og það var heldur ekki gert
í ríkisstjórnartíð Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar.
Stjórnarskrárnefnd þingsins
bjó síðastliðinn vetur til frum-
varp um takmarkaðar stjórnar-
skrárbreytingar. Þær voru langt í
frá nógsamlega umfangsmiklar til
að uppfylla afgerandi niðurstöðu
fyrstu spurningar í þjóðaratkvæða-
greiðslunni og sum ákvæðin gengu
mun skemur en drög Stjórnlaga-
ráðs.
Sigurður Ingi Jóhannesson for-
sætisráðherra lagði fram þing-
mannafrumvarp byggt á tillög-
um nefndarinnar en það dagaði
uppi. Þar með varð ljóst að þrátt
fyrir að fjögur ár væru liðin frá
skýrri niðurstöðu í þjóðarat-
kvæðagreiðslu höfðu stjórnvöld
og Alþingi staðið í vegi fyrir að vilji
þjóðarinnar næði í gegn.
Eftir kosningar um brotthvarf
Bretlands úr Evrópusambandinu,
þjóðaratkvæði sem jafnframt var
ráðgefandi, hvarflaði ekki að nein-
um breskum stjórnmálamanni að
hunsa niðurstöðuna. Ráðherrar,
sem höfðu lýst sig fylgjandi áfram-
haldandi veru Bretlands í ESB, tóku
að sér að skipuleggja brotthvarfið.
Stjórnarskrárfélagið hefur feng-
ið yfirlýsingu frá núverandi stjórn-
arandstöðuflokkum, Samfylkingu,
VG, Pírötum og Bjartri framtíð,
að þessir flokkar skuldbindi sig til
að gera stjórnarskrárbreytingar á
grunni tillagna Stjórnlagaráðs. Yf-
irlýsingin hljóðar svo: „Við, Björt
framtíð, Píratar, Samfylking og
Vinstri græn skuldbindum okkur
hér með til þess að gera stjórnar-
skrárumbætur, sem grundvallast
á drögum Stjórnlagaráðs, að for-
gangsmáli á nýju þingi.“
Síðan yfirlýsingin var undirrituð
hefur Dögun bæst við. Sjálfstæðis-
flokkurinn og Alþýðufylkingin neit-
uðu að vera með í yfirlýsingunni en
aðrir flokkar hafa ekki svarað enn.
„Stjórnarskrárfélagið hitti for-
Þjóðin hunsuð í fjögur ár
menn flokkanna og það kom strax
í ljós að það var mikill áhugi á að
setja þetta í forgang, sama hvað
gerist í kosningum,“ segir Katrín
Oddsdóttir, Stjórnlagaráðskona
og formaður Stjórnlagafélagsins. „
Það þýðir í raun að það skiptir ekki
máli hver myndar ríkisstjórn því
það er þingræði á Íslandi. Alþingi
á að ráða, þó það hafi snúist við og
ríkisstjórnin ræður. Yfirlýsingin
er tilraun til þess að koma aftur
að þingræði og segja; „alveg óháð
því hvaða stjórn við myndum þá
er þetta mál svo stórt að við ætlum
að vinna að því saman í þinginu og
koma því í gegn.““
Vinsælustu
bragðarefirnir
Hvað ætla mótmælendurnir
svo að kjósa? Fólkið sem
krafðist kosninga
Ingibjörg Ragnheiður segir frá
kynnum sínum af Trump
Vingjarnlegur
daðrari