Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 20.10.2016, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 20.10.2016, Blaðsíða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 20. október 2016 ins þurfa að eiga stórkostlegan endasprett til að komast yfir sögu- legan botn. Samfylkingin er líkleg til að fara undir sögulegan botn for- vera sinna. Þetta er botnar Samfylkingar- innar. 4,9% Kvennalistinn 1995 (margar konur) 10,5% Alþýðuflokkurinn 1971 (Gylfi Þ. Gíslason) 12,9% Samfylkingin 2013 (Árni Páll Árnason) 13,3% Alþýðubandalagið 1987 (Ólafur Ragnar Grímsson) Sjálfstæðisflokkurinn er einnig líklegur til að fara undir sitt minnsta sögulega fylgi, sem er 23,7 prósent 2009, fáum mánuði eft- ir Hrun og aðeins mánuði eftir að Bjarni Benediktsson tók við af Geir H. Haarde sem formaður flokksins. Í síðustu könnunum hefur Sjálf- stæðisflokkurinn mælst með 21,4 til 22,6 prósent og þarf því góðan endasprett til að koma sér yfir fylg- ið frá 2009. Annars er listinn yfir slæma út- reið Sjálfstæðismanna þessi: 23,7% 2009 (Bjarni Benediktsson yngri) 26,7% 2013 (Bjarni Benediktsson yngri) 27,2% 1987 (Þorsteinn Pálsson) 32,7% 1978 (Geir Hallgrímsson) 33,7% 2003 (Davíð Oddsson) 35,4% 1979 (Geir Hallgrímsson) 36,2% 1971 (Jóhann Hafstein) 36,6% 2007 (Geir H. Haarde) 37,1% 1995 (Davíð Oddsson) 37,1% 1953 (Ólafur Thors) Framsóknarflokkurinn fór lægst árið 2007 þegar Jón Sigurðsson leiddi flokkinn í kosningabaráttu eftir erfitt kjörtímabil. Halldór Ás- grímsson hafði þá tekið við for- sætisráðuneytinu af Davíð Odds- syni en gefið það aftur frá sér og hætt í stjórnmálum. Jón tók þá við flokknum og leiddi kosningabaráttu sem skilað aðeins 11,7 prósent at- kvæða. Framsókn mælist nú með 8,6 til 9,8 prósent fylgi og því er líklegra en ekki að flokkurinn fari undir sína lélegustu útkomu. Versta útkoma Framsóknar hing- að til: 11,7% 2007 (Jón Sigurðsson) 14,8% 2009 (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) 15,6% 1956 (Hermann Jónasson) 16,9% 1978 (Ólafur Jóhannesson) 17,7% 2003 (Halldór Ásgrímsson) 18,4% 1999 (Halldór Ásgrímsson) 18,9% 1987 (Steingrímur Hermannsson) 18,9% 1991 (Steingrímur Hermannsson) 19,0% 1983 (Steingrímur Hermannsson) Bjarni Benediktsson á hættu á að fara með Sjálfstæðisflokkinn undir sögulegt lág- marksfylgi sitt. Met sem hann sjálfur setti sem splunkunýr formaður 2009. Sigurður Ingi Jóhannsson er í líkri stöðu og Oddný Harðardóttir, nýr formaður sem virðist ekki geta forðað flokki sínum frá mjög vondum úrslitum. Síðustu ár hafa fært mörgum nýjum formanni fjórflokks þessa stöðu; Bjarna Benediktssyni, Árna Páli Árnasyni og Katrínu Jakobsdóttur. Jón Sigurðsson, annar formaður Framsóknar, á heima í þessum hópi. Allt stefnir í að Oddný Harðardóttir skipi sér í flokk með nýjum formönnum sem leiða flokka sína til fylgistaps í kosningum. Í raun þarf nánast kraftaverk á síðustu metrunum til að forða Samfylkingunni frá sögulegu lágmarki flokksins. Flest bendir til að flokkurinn fari meira að segja undir sögulegt lágmark Alþýðuflokksins. Katrín Jakobsdóttir virðist ekki eiga möguleika á að fara með sinn flokk upp í sögulegt hámark, 21,7 prósent, en hún ætti að koma honum yfir sinn næstbesta árangur, 14,4 prósent. Hún gæti líka orðið fyrst sinna flokkssystkina að vera fyrsti þingmaður Reykjavíkur norður. Sturla Jónsson er stjörnuframbjóðandi Dögunar sem nú leggur til sinnar annarrar eða þriðju kosninga. Dögun er sproti út úr Borgarahreyfingunni, sem leystist upp eftir ágæta útkomu í kosningunum 2009 og fjóra þing- menn. Dögun náði 3,1 prósent atkvæða 2013 og nokkrum ríkisstyrk en kann- anir benda ekki til að því marki verði aftur náð. Fjórflokkur slær smæðarmet Það þarf ekki að taka fram að þegar þrír af hinum svokallaða fjórflokki eru undir sínu lélegasta fylgi að þá er líklegt að samanlagt fylgi fjór- flokksins sé það. Síðustu kannanir hafa sýnt samanlagt fylgi Sjálfstæð- isf lokks, Framsóknar, Samfylk- ingar og VG í 54 prósent og rétt rúmlega það. Í síðustu kosningum fengu þessir flokkar 74,9 prósent at- kvæða, eilítið meira en þeir og for- verar þeirra fengu 1987 þegar Borg- araflokkurinn og Kvennalistinn fengu góða kosningu. Þá fékk fjór- flokkurinn 74,6 prósent atkvæða. Annars hafa þessir flokka alla tíð verið með um og yfir 90 prósent fylgi, að aðeins einum kosningum undanskildum; 1995 þegar bæði Þjóðvaki og Frjálslyndi flokkurinn náðu mönnum á þing. Þá fékk fjór- flokkurinn 86,1 prósent atkvæða. Sósíalisminn nálægt botni Samanlagt fylgi Samfylkingarinn- ar og VG í könnunum er nú 21,6 til 24,6 prósent. Það er nálægt sögu- legum botni fánabera sósíalism- ans, helstu stjórnmálastefnu síð- ustu aldar. Í síðustu kosningum guldu flokkarnir afhroð og fengu samanlagt 23,8 prósent atkvæða. Þeir eru samkvæmt könnunum á svipuðum stað í dag og gætu jafnvel slegið metið frá því síðast. Leita þarf aftur til 1931 til að finna minna fylgi sósíalísku flokkanna en þá fengu Al- þýðuflokkur og Kommúnistaflokk- urinn samanlagt 18,7 prósent fylgi. Fyrst í kjördæmum Einar Aðalsteinn Brynjólfsson Pírati eða Steingrímur J. Sigfússon í VG gætu orðið fyrstu þingmenn Norð- austurkjördæmis. Það væri sögulegt ef Pírati yrði fyrsti þingmaður þessa kjördæmis en fyrir utan Steingrím J., eftir kosningarnar 2009, hafa að- eins Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sókn fengið flest atkvæði í þessum kjördæmi og forverum þess.. Pírati gæti líka orðið fyrsti þing- maður í Reykjavík norður fyrsti, Birgitta Jónsdóttir, eða þá Katrín Jakobsdóttir hjá VG. Samfylkingin náði þessum heiðurssessi 2003 og 2009. Samfylkingin var líka með fyrsta þingmann Reykjavíkur suður 2009. Annars hafa Sjálfstæðismenn ætíð verið fyrstu þingmenn Reykja- víkurkjördæmanna og Reykjavíkur- kjördæmis áður en borgin var klofin. Fæstu atkvæðin Alþýðufylkingin og Húmanista- flokkurinn keppa í sérdeild fyrir Gylfi Þ. Gíslason leiddi Alþýðuflokkinn í gegnum Viðreisnarárin, sem enduðu með miklu fylgistapi í kosningunum 1971. Þorsteinn Pálsson leiddi Sjálfstæðis- flokkinn sem formaður aðeins í einum kosningum, þegar flokkurinn klofnaði með sérframboði Alberts Guðmunds- sonar 1987. þessar kosningar, eins og síðast, ef marka má kannanir; í flokki flokka sem fá um og yfir hundrað atkvæði. Sá listi lítur þannig út: 91 atkvæði: Verkamannaflokkur Íslands 1991 (Eiríkur Björn Ragnarsson) 92 atkvæði: Sólskinsflokkurinn 1979 (Helgi Friðjónsson) 108 atkvæði: Hinn flokkurinn 1979 (Stefán Karl Guðjónsson) 118 atkvæði: Alþýðufylkingin 2013 (Þorvaldur Þorvaldsson) 121 atkvæði: Kommúnistaflokkur Íslands ml 1974 (Gunnar Andrésson) 126 atkvæði: Húmanistaflokkur Íslands 2013 (Júlíus Valdimarsson) 127 atkvæði: Lýðræðisflokkurinn 1974 (Jörmundur Ingi Hansen) 184 atkvæði: Fylkingin 1978 (Ragnar Stefánsson) 201 atkvæði: Fylkingin 1974 (Ragnar Stefánsson) 204 atkvæði: Anarkistar á Íslandi 1999 (Þórarinn Einarsson) Eins og sjá má eiga bæði Þor- valdur Þorvaldsson og Júlíus Valdi- marsson ágæta möguleika á að ná að skrá nafn sitt öðru sinni á lista yfir þau framboð sem hafa fengið fæst atkvæði. Sturla Jónsson, sem nú er í framboði fyrir Dögun, fékk 222 atkvæði í kosningunum 2013 og vermir ellefta sætið á þessum lista. Helgi Helgason hefur leitt flokk sinn, Íslensku þjóðfylkinguna, til mikilla innanfélagsátaka í aðdraganda kosninganna sem leiddu til þess að flokkurinn náði ekki að bjóða fram í öllum kjördæmum. Hægri grænir, sem fengu 1,7 prósent í síðustu kosningum, gengu inn í Íslensku þjóð- fylkinguna, og flokkurinn nýtur mikils stuðn- ings Útvarps Sögu, sem studdi síðast Flokk heimilanna, sem fékk 3,1 prósent atkvæða og vænan ríkisstyrk (sem flokksmenn deildu um hver mætti ráðstafa). Fátt bendir til að Íslenska þjóðfylkingin nái að fara yfir sameiginlegt fylgi þessara flokka, eða 4,8 prósent. Jón Sigurðsson leiddi Framsóknar- flokkinn til verstu útreiðar flokksins hingað til árið 2007. Á eftir fylgdi upp- lausn innan flokksins, tíð formanns- skipti og síðan kjör Sigmundar Davíðs. Þorvaldur Þorvaldsson á raunhæfa möguleika á því eftir kosningar að verða í tveimur sætum á topp tíu yfir þau framboð sem fæst atkvæði hafa fengið í kosningum á Íslandi.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.