Fréttatíminn - 20.10.2016, Page 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 20. október 2016
Þessi tilhneiging virðist vera
sterkari í ár en oft áður.
Clinton hefur í raun sjálf hvatt
kjósendur til að gera þetta, því
allt síðan á landsfundi Demókra-
taflokksins hefur Clinton sent þau
skilaboð til kjósenda Repúblikana
að þeir geti verið óhræddir við að
greiða henni atkvæði sitt.
Önnur skýring er sú að margir
kjósendur Gary Johnson, fram-
bjóðanda Frjálshyggjuflokksins,
eru í raun fylgismenn Repúblikana-
f lokksins sem geta ekki hugsað
sér að kjósa forsetaframbjóðanda
flokksins þó þeir ætli sér að kjósa
aðra frambjóðendur hans.
Enn minni áhrif í þinginu
Áhrifin af óvinsældum Trump
virðast ekki mikil í kosningum
til fulltrúadeildarinnar, þar sem
Demókrataflokkurinn mun líklega
ekki bæta við sig nema fimm þing-
sætum. Demókratar eru nokkuð
öruggir um 192 sæti, þar sem þeir
vinna sjö sæti af Repúblikunum
en tapa tveimur. Munurinn í ellefu
kjördæmum til viðbótar er nógu lít-
ill til að þau séu álitin samkeppn-
ishæf, en þó Demókratar myndu
vinna þau öll myndi það ekki duga
þeim til að ná meirihluta í þinginu,
því Repúblikanar eru næsta öruggir
um 232 sæti af 435.
Kannanir sýna að þegar kjós-
endur eru spurðir hvort þeir vilji
að Demókratar eða Repúblikanar
hafi meirihluta í fulltrúadeildinni
er fjöldi þeirra sem vilja meirihluta
Demókrata á bilinu 2-4% fleiri en
þeir sem kjósa að Repúblikanar
haldi meirihluta sínum. Könnun
NBC og Wall Street Journal sem tek-
in var stuttu eftir aðrar kappræð-
ur frambjóðendanna sýndu t.d. að
46% kjósi meirihluta Demókrata en
44% Repúblikana.
Sagan sýnir að tveggja prósentu-
stiga forskot dugar Demókrötum
ekki til að ná meirihluta í þing-
kosningum. Tveggja prósentustiga
forskot á því hvor flokkanna kjós-
endur vildu að væri í meirihluta í
þinginu dugar Repúblikönum hins
vegar til stórsigra. Árið 2014 dugði
t.d. tveggja stiga forskot í könnun-
um flokknum til að bæta við sig 13
þingsætum en Demókratar þurfa
minnst sex til sjö stiga forskot til að
eiga möguleika á að ná meirihluta í
þinginu. Ástæðan er annars vegar
sú að kjósendur demókrata eru
ólíklegri til að mæta á kjörstað en
Repúblikanar. Önnur, og ekki síðri
ástæða er kjördæmahagræðing sem
fjallað var um í síðustu viku.
Jafnvel stórsigur dugar ekki
Demókratar halda þó enn í vonina
um að óvinsældir Trump eigi eftir
að aukast enn frekar eftir því sem
nær dregur kosningum, og að þær
eigi eftir að smitast að fullu yfir á
aðra frambjóðendur flokksins.
En jafnvel þó Demókrötum tækist
að vinna meirihluta í báðum þing-
deildum yrðu þeir í miklum vand-
ræðum með að koma málum í gegn-
um þingið. Þó reglur deildarinnar
geri ráð fyrir að einfaldur meirihluti
dugi til að samþykkja hvort heldur
sem er lagafrumvörp, önnur þing-
mál eða embættisskipanir forseta,
t.d. dómara, leyfa þær líka málþóf.
Það þarf aukinn meirihluta 60 at-
kvæða til að binda endi á umræð-
ur og ganga til atkvæða, sem þýð-
ir að Hillary þyrfti í raun 60 sæti
í öldungadeildinni til að sigrast á
einbeittri andstöðu Repúblikana.
Líkurnar á því eru nánast engar.
Demókratar þyrftu ekki aðeins að
fella leiðtoga Repúblikanaflokksins
í öldungadeildinni, Chuck Grassley í
Iowa, John McCain í Arizona og Ric-
hard Shelby í Alabama, heldur líka
að bæta við sig sætum í dimmrauð-
um fylkjum eins og Suður Karólínu.
4 ára plan Demókrata
Repúblikanar hafa boðað að þeir
muni nýta málþófsréttinn til hins
ýtrasta og McCain lofaði því t.d. í
byrjun vikunnar að f lokkurinn
myndi stöðva allar tilnefningar
Hillary á hæstaréttardómurum.
Repúblikanar eru því í nokkuð
stöðu til að koma í veg fyrir að
Hillary geti hrundið í framkvæmd
þeirri róttæku byltingu sem margir
bandarískir hægrimenn virðast
óttast að hún boði komist hún til
valda.
Það yrði ekki fyrr en á öðru kjör-
tímabili Hillary sem hún gæti gert
sér vonir um einhverjar stórfelldar
aðgerðir eða róttækar breytingar.
Ástæðan er sú að næsta mann-
tal verður tekið í Bandaríkjunum
árið 2020, og kjördæmamörk eru
endurskoðuð eftir hvert manntal til
að tryggja sem jafnastan atkvæða-
fjölda að baki hverjum þingmanni.
Kjördæmamörk eru ákvörðuð
af fylkisþingunum. Repúblikanar
nýttu sér meirihlutann sem þeir
unnu í kosningunum 2010 til hins
ýtrasta og hagræddu kjördæma-
mörkum til að hámarka fjölda
þingsæta flokksins. Í kosningunum
2014 vann flokkurinn 52% atkvæða
í kosningum til þings, en fengu 57%
þingsæta.
Demókratar eru staðráðnir í að
láta Repúblikana ekki komast upp
með þann leik aftur 2020 og Barack
Obama hefur lýst kjördæmahag-
ræðingu sem einni alvarlegustu
ógn sem steðji að lýðræði í Banda-
Harry Reid og Hillary Clinton. Ef Demókrötum tekst að endurheimta meirihlutann í öldungadeildinni, eins og nýjustu kann-
anir benda til, mun Harry Reid taka við sem valdamesti maður deildarinnar og hægri hönd Hillary í þinginu.
Donald Trump stefnir í einn stærsta kosningaósigur síðustu áratuga. Bilið á milli
hans og Hillary mælist nú að meðaltali nærri 7%, sem yrði stærsti ósigur sem
frambjóðandi annars stóru flokkanna hefur beðið síðan 1996. Trump gæti þó enn
átt eftir að bæta það met, því hann hefur verið að mælast með allt að 12% minna
fylgi en Hillary. Þá þyrfti að fara aftur til 1984 til að finna stærri ósigur.
ríkjunum. Obama hefur þegar sagt
að hann muni beita sér gegn kjör-
dæmahagræðingu eftir að hann
lætur af embætti, og dómsmálaráð-
herra Obama, Eric Holder, fer fyr-
ir samræmingaraðgerðum flokks-
ins til að tryggja að kjördæmi sem
verða teiknuð upp fyrir kosningarn-
ar 2022 verði hliðhollari Demókröt-
um. Þangað til munu Repúblikanar
hafa innbyggt forskot í þingkosning-
um, og líklega meirihluta í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings.
Varnarleikur fyrir 2020
Þetta skýrir að hluta hversu lítið
hefur farið fyrir stórum loforðum í
kosningabaráttu Hillary. Í stað þess
að boða von og breytingar, líkt og
Obama gerði 2008, hefur Hillary
gert sitt besta til að komast hjá því
að vekja of miklar væntingar hjá
kjósendum flokksins. Að upplagi
er Hillary ekki mjög innblásinn
stjórnmálamaður en það er líka
mikilvægt fyrir hana að vekja ekki
of miklar vonir hjá kjósendum, því
málþóf og andstaða Repúblikana í
fulltrúadeildinni mun sjá til þess
að hún kemur ekki neinum stórum
breytingum í gegnum þingið.
Róttækir vinstrimenn í Banda-
ríkjunum og stuðningsmenn
Bernie Sanders halda því fram að
Demókratar væru með meira fylgi
ef Hillary hefði gert kosninga-
stefnuskrá Bernie Sanders að sinni
og lofað kjósendum róttækri upp-
stokkun og endurgjöf. Á móti segja
stuðningmenn Hillary að það hefði
aldrei dugað til að vinna aukinn
meirihluta í öldungadeildinni, að
fjórum árum liðnum myndu kjós-
endur Demókrata því upplifa sig
svikna, og þeim mun erfiðara yrði
fyrir Demókrata að vinna kosn-
ingarnar 2020.
Mikilvægustu kosningar sögunnar
Það bregst ekki að stjórnmála-
skýrendur jafnt sem frambjóðendur
og stuðningsmenn þeirra lýsi öllum
forsetakosningum í Bandaríkjun-
um sem „mikilvægustu kosningum
í manna minnum“. Kosningarnar í
ár eru engin undantekning. Rudy
Giuliani lýsti því yfir á landsfundi
Repúblikanaflokksins í sumar að
kosningarnar í ár myndu verða
mikilvægustu kosningarnar í sögu
Bandaríkjanna: „Það verða engar
aðrar kosningar. Það er núna eða
aldrei.“
Og auðvitað er mikið í húfi. Næsti
forseti Bandaríkjanna mun líklega
geta skipað þrjá eða fjóra hæsta-
réttardómara, þar með talið arftaka
Antonin Scalia. Mikilvægasta afrek
Hillary á fyrsta kjörtímabilinu, gæti
því líklega orðið að tryggja frjáls-
lyndan meirihluta í hæstarétti, sem
skýrir af hverju Repúblikanar lofa
að standa í vegi fyrir öllum tilnefn-
ingum hennar.
En fyrir utan skipun hæstaréttar-
dómara er erfitt að sjá hvaða stóru
eða róttæku breytingum Hillary
getur komið í gegn á næstu fjórum
árum.
Biðleikur
Þegar þetta er haft í huga verður
kosningabarátta Hillary og skortur
á loforðum um róttækar aðgerðir til
að auka jöfnuð eða hefja stórsókn til
framtíðar skiljanlegri.
Demókratar eru í raun að leika
varnarleik í kosningunum í ár.
Kosningabarátta Hillary hefur fyrst
og fremst snúist um að sannfæra
kjósendur um að Trump megi ekki
komast í Hvíta húsið, en auk þess er
flokkurinn að leggja grunn að sigri
að fjórum árum liðnum. Banda-
rískir kjósendur þurfa því að bíða
til 2020 eftir loforðum Demókrata
um uppstokkun og endurgjöf efna-
hagslegra gæða, endurreisn milli-
stéttarinnar eða stórsókn í upp-
byggingu velferðarkerfisins.
„Að upplagi er Hillary ekki mjög innblásinn stjórn-
málamaður en það er líka mikilvægt fyrir hana að
vekja ekki of miklar vonir hjá kjósendum, því málþóf
og andstaða Repúblikana í fulltrúadeildinni mun sjá til
þess að hún kemur ekki neinum stórum breytingum í
gegnum þingið.“
Þitt er valið
Þú velur að kaupa innréttinguna í
ósamsettum einingum, eða lætur okkur um
samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við
líka uppsetningu og endanlegan frágang.
Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum,
klæðningum og einingum
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
styrkur - ending - gæði
HÁGÆða DaNSKar
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið:
Mán. til föstudaga kl. 09 til 18
Laugardaga kl. 11 til 15