Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 20.10.2016, Side 28

Fréttatíminn - 20.10.2016, Side 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 20. október 2016 Ung Framsókn er byrjuð á Tinder Býður á stefnumót í kjörklefanum. Margir notendur snjallsímafor- ritsins Tinder ráku upp stór augu þegar ein þeirra sem sóttist eftir að fara á stefnumót var engin önnur en UngFramsókn. Fyrir þá sem ekki vita er Tinder einskonar stefnumótapp. Ung kona, sem setti sig í sam- band við Fréttatímann, tók skjá- skot af því sem bar fyrir augu en í fyrstu kom upp mynd af teikni- myndafígúru þar sem stóð fyrir neðan: Sterkari millistétt? Líkt og sjá má af skjáskotunum, sem konan tók, telur UngFram- sókn upp ástæður fyrir því að viðkomandi eigi að „deita sig“ og nefnir meðal annars að hún hafi fjölgað störfum um 15.000 á þrem- ur árum, lækkað skuldir fjölda heimila og tekið á móti flótta- mönnum. Í persónulegum skilaboðum sem unga konan fékk frá flokkn- um, eftir að hafa látið í ljós áhuga sinn, var henni boðið að koma á stefnumót í kjörklefa 29. október næstkomandi þegar kosið verð- ur til Alþingis og hún hvött til að kynna sér stefnumál flokksins. Hnyttið svar konunnar má sjá á skáskotinu. | bg Hvað ætla mótmælendur að kjósa? Vöfflulykt umlykur húsnæði Kassa- gerðarinnar snemma morguns. Starfsmenn Kassagerðarinnar eru að funda með tveimur sérfræðing- um frá Þýskalandi sem eru ekki svo hrifnir af veðrinu á Íslandi og gæða sér á nýbökuðum vöfflum. „Mjög góð hugmynd að fá sér vöfflur á morgnana, við borðum ekki svo mikið af vöfflum í Þýska- landi. Gott að byrja daginn með svona vel, samt ekki alla daga,“ segja Jurgen Schankin og Stefan Zieglmeier, þýsku gestir Kassa- gerðarinnar. Rætt er um veðrið á Íslandi og finnst þeim vinum vera fremur erfitt að horfa upp á veðr- ið út um gluggann: „Það er mjög vindasamt hérna og kalt. Algert skítaveður. Við komum í gærkvöldi þannig við erum ekki búnir að sjá mikið en við fórum að borða í Perlunni í gær, það var voða áhugavert.“ Föstu starfsmenn Kassa- gerðarinnar eru ánægðir með þá morgna sem boðið er upp á vöfflur og finnst gaman að brjóta upp á vinnuvikuna með einhverju óvenjulegu og skemmtilegu: „Þess- ar vöfflur eru bara góðar fyrir meltinguna. Fyrir suma væri það snemmt að fá sér vöfflur klukkan 10 á morgnana en það er ekkert of snemmt fyrir okkur að fá svona fínirí því við mætum klukkan 7 í vinnuna. Þetta er eiginlega bara eins og hádegismatur fyrir okk- ur. Við erum ekki með margar morgunhefðir aðrar en að fá okkur bara kaffi saman kallarnir þegar við mætum, það er gaman að brjóta daginn aðeins upp,“ seg- ir Helgi Jónsson, verkstjóri Kassa- gerðarinnar. | hdó Morgunstund: Vöfflur í morgunsárið Nú fer að líða að kosningum og margir íhuga hvern skuli kjósa. Fréttatíminn gróf upp mynd af Wintris mótmælunum frá því í apríl, fyrr á þessu ári, þar sem um 26.000 manns mættu og mótmæltu spillingu. Mótmæl- endur kröfðust kosninga, nú er komið að kosningum. Hvað ætla mótmælendur að kjósa? Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Helga Dögg Ólafsdóttir helgadogg@frettatiminn.is Marta Sigríður Pétursdóttir Ég ætla að kjósa Pírata vegna þess að þau berjast fyrir kerfisbreytingum og gegnsæi í stjórnmálum. Það breytist ekkert fyrr en við breytum því hvernig við stjórnum okkur. Valdið á að vera dreift og koma að neðan en ekki að ofan, ég vil stjórn- völd sem vinna fyrir hagsmuni fjöldans en ekki hina fáu útvöldu. Hallveig Kristín Ég ætla að kjósa en er ennþá að ákveða hvaða flokk. Veit fyrir víst að ég mun ekki kjósa núverandi stjórnarflokka. Fyrir utan spill- ingu, nýfrjálshyggjurunk, Panama, þá þarf ég að borga hálfa milljón á ári í skólagjöld fyrir það að stunda nám í húsnæði þar sem mygla yfir löglegu hámarki hefur verið mæld í mörg ár, með ekkert aðgengi fyrir hjólastóla og kennara sem þurfa að sætta sig við umtalsvert lægri laun en aðrir háskólakennarar. Pírat- ar, VG, Björt framtíð – hvað sem er annað en þá sem stuðla að lungna- hrörnun listnema. Valur Gunnarsson Ég ætla að kjósa Pírata. Ég vil fá nýja stjórnarskrá, þó ekki væri nema af fagur- fræðilegum ástæðum. Það er þreytandi að hafa 91. grein sem flestar fjalla um forsetann þegar tekið er fram að í raun sé ekki verið að tala um hann. Plús, auðlindir eiga að vera í eigu þjóðar- innar. Mér finnst aðdáunarvert hjá þeim að reyna að stofna kosn- ingabandalag, kannski fáum við í kjölfarið skýrari línur og málefna- legri stjórnmál. Það eru nýir tímar í íslenskum stjórnmálum og Píratar fanga þann anda best. Og svo eru þeir líka vinir Evu Joly! Jóhann Kristófer Stefánsson Ég ætla að kjósa Pírata vegna þess að ég trúi því þeir hafi drifkraftinn til þess að koma með breyttar áherslur inn í stjórnmál á Íslandi. Ég hef tilfinn- ingu fyrir því að þau muni geta upprætt spillingu og frændhygli sem einkenna stjórnmál á Íslandi. Alma Mjöll Ólafsdóttir Ég veit ekki hvort ég eigi að kjósa Pírata, Vinstri græn eða engan. Það er erfitt að kjósa þegar maður hatar pólitík og hefur ekki trú á henni. Þegar manni finnst meira að segja póli- tíkusar firrtir um eyðileggingar- mátt sinn. Kjósendur firrtir, ein- angraðir og ringlaðir. Maður trúir varla lengur á góðu gæjana. Vöfflur í skítaveðri. Mynd | Rut Hnyttið svar við boði á stefnumót. þriðjudaginn 25. október, kl. 18 Listmunauppboð í Gallerí Fold Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is fimmtudag kl. 10–18, föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–16, sunnudag kl. 12–16, mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17 Si gu rb jö rn Jó ns so n Alfreð Flóki Uppboð í 20 ár Forsýning á verkunum fimmtudag til þriðjudags

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.