Morgunblaðið - 23.12.2016, Side 1

Morgunblaðið - 23.12.2016, Side 1
Morgunblaðið/Eggert Jólafrí Þingmenn slógu á létta strengi á síðustu metrunum í gær. Jón Birgir Eiríksson Laufey Rún Ketilsdóttir Alþingi var frestað seint í gærkvöldi og voru fjárlög fyrir árið 2017 sam- þykkt með 27 atkvæðum stjórnar- flokkanna, en 33 þingmenn greiddu ekki atkvæði. Höfðu þingmenn á orði að samvinna hefði tekist vel í þinginu síðustu metrana og í lokaræðu sinni sagði Steingrímur J. Sigfússon, for- seti Alþingis, að þinglokin væru söguleg í ljósi þess að ekki hefði tek- ist að mynda nýja ríkisstjórn í kjöl- far kosninga í lok október. Haraldur Benediktsson, formaður fjárlaganefndar, sagði alla flokka hafa skorið af hugmyndum sínum. „Það er ljóst að frumvarpið er málamiðlun og þingmenn sæta þeirri málamiðlun af myndugleik. Hér er enginn að fá stefnu sinni framfylgt, en allir geta sagst hafa átt þátt í lausninni,“ sagði hann. Mestur styr stóð um frumvarp um jöfnun lífeyrisréttinda starfsmanna á opinberum markaði og almennum, en 38 þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu, 14 greiddu at- kvæði gegn því og átta sátu hjá. Fundum Alþingis var frestað til 24. janúar nk. Samþykkt var að ef til niðurskurð- ar eða uppsagna kæmi hjá Landspít- alanum á árinu, yrðu samþykkt fjár- aukalög og spítalanum tryggt fé. „Ég hef ekki heyrt um svona áður, en óvenjulegir tímar kalla á óvenju- legar lausnir og við fögnum því vissulega að þarna sé Alþingi að tryggja óbreyttan rekstur Landspít- alans,“ sagði Páll Matthíasson, for- stjóri Landspítalans. Fjárlög í þverpólitískri sátt  Fundum Alþingis frestað  Lög um jöfnun lífeyrisréttinda samþykkt  Fjárlög samþykkt með minnihluta atkvæða  Baktrygging fyrir Landspítala á næsta ári MÞingstörfin »4 F Ö S T U D A G U R 2 3. D E S E M B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  301. tölublað  104. árgangur  VARÐ SNEMMA ÁHUGASÖM UM TEIKNINGU BAMBALÓ VEITTI HENNI HUGREKKI SAGA ALMENNRA BORGARA Á ÖRLAGATÍMA HEILLAÐIST AF ÓFELÍU 36 LAND FÖÐUR MÍNS 12KRISTÍN FRÁ MUNKAÞVERÁ 36 dagur til jóla 1 kertasníkir kemur í kvöld www.jolamjolk.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gjafakort fyrir tvo á gamanleik eins og þeir gerast bestir Úti að aka 9.950 kr. Miði fyrir tvo á þessa vinsælu fjölskyldusýningu og geisladiskur með tónlistinni Blái hnötturinn 10.600 kr. Gjafakort fyrir tvo ásamt leikhús- máltíð fyrir sýningu eða í hléi Ljúffengt leikhúskvöld 12.950 kr. Gefðu töfrandi stund í jólagjöf! Gjafakort Borgarleikhússins AFP Leit Þýska lögreglan leitar enn Túnisans, Anis Amri, sem er grunaður árásarmaður.  Alls hafa 664 einstaklingar látist í hryðjuverkaárásum sem Ríki ísl- ams hefur lýst á hendur sér frá árinu 2015. Á sama tíma hafa 1.419 manns særst í þessum árásum. Árásin á jólamarkað í Berlín í vikunni, þar sem vöruflutningabíl var ekið á fólk, var sextánda árás samtakanna frá 2015 en þýsk stjórnvöld leita enn árasarmanns- ins, Anis Amri, frá Túnis. Hann hafði verið undir eftirliti lögreglu í nokkra mánuði. »20 664 hafa látist í hryðjuverkaárásum Sigurður Friðriksson, hóteleigandi í Reykjavík, stendur í dag fyrir árlegri skötuveislu í Stúdíó 29 að Snorrabraut 29. Undirbúningur var langt kominn síðdegis í gær, en hér virða Sigurður og starfsmenn hans, Agniezska og Louie, fyrir sér skötubitana. Að sögn Sigurðar hefur veislan ver- ið vel sótt frá því hún var fyrst haldin árið 2006 og er ávallt vel af henni látið. „Ekki einn maður hefur verið óánægður með skötuna,“ segir hann léttur. Hann segir erlenda ferðamenn nokkuð forvitna um veisluna. Skötu, matreidda með þessum hætti, sé ekki að finna á hverju strái. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ferðamenn forvitnir um skötuna Landsmenn og veitingahús undirbúa skötuveislur fyrir daginn í dag  Banaslys varð á Holtavörðuheiði um klukkan 14.30 í gær þegar fólksbifreið á norðurleið og jepp- lingur á suðurleið lentu í árekstri. Ökumaður fólksbifreiðarinnar lést, en farþegi og ökumaður jepplings- ins sluppu með lítil meiðsl en voru fluttir með þyrlu á slysadeildina í Fossvogi til skoðunar og aðhlynn- ingar. Alls hafa nú 17 einstaklingar látist á árinu í umferðarslysum. 17 manns hafa látist í banaslysum í ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.