Morgunblaðið - 23.12.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016
Grísk jógúrt
Ofurfæða! Stútfull af góðri fitu og próteini
Lífrænar
mjólkurvörur
www.biobu.is
Morgunmatur:
Grísk jógúrt, múslí, sletta
af agave
Eftirréttur:
Grísk jógúrt, kakó, agave
chia fræ
Köld sósa:
Grísk jógúrt, handfylli rifin gúrka,
2 hvítlauksrif, salt og pipar
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
Þær breytingar sem fjárlaganefnd
leggur til á útgjöldum ríkissjóðs, frá
því sem ráðgert var í frumvarpi til
fjárlaga 2017, nema samtals nær 11
milljörðum króna.
Á fundi Alþingis í gær mælti Har-
aldur Benediktsson, formaður fjár-
laganefndar, fyrir breytingartillögu
nefndarinnar við fjárlagafrumvarp-
ið. Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær náðist sátt í nefnd-
inni um þessar breytingar í
fyrrakvöld.
Meðal annars er gert ráð fyrir að
Landspítalinn fái tvo milljarða til
viðbótar við þá rúmu 59 milljarða
sem frumvarp til fjárlaga gerði ráð
fyrir.
Annars vegar er áskilið að viðbót-
in verði nýtt til að taka á svonefnd-
um fráflæðisvanda. Hins vegar er
ráðgert að verja fé til endurbóta og
viðhalds á húsnæði spítalans.
Svo sem kunnugt er hafa fjármál
Landspítala verið mikið til umræðu
að undanförnu. Kom meðal annars
fram af hálfu Páls Matthíassonar,
forstjóra Landspítalans, að rúmlega
fimm milljarða vanti til að mæta
fjárþörf spítalans miðað við þau
áform sem birtust í fjárlagafrum-
varpinu. Samkvæmt því höfðu þó út-
gjöld til spítalans verið aukin um
tæpa fjóra milljarða frá því sem áður
var. Var á það bent að sú aukning
færi að mestu til að mæta launa-
hækkunum og í verðlagsbætur.
Aukin framlög til löggæslu
Þá var einnig af hálfu fjárlaga-
nefndar lagt til að tímabundið verði
framlög til löggæslumála í landinu
aukin. Er um að ræða 400 milljónir,
en í fjárlagafrumvarpinu hafði verið
lagt til að framlög til löggæslu yrðu
aukin um 600 milljónir.
Nemur því hækkunin til þessa
málaflokks einum milljarði króna.
Landhelgisgæsla fær meira
Jafnframt leggur fjárlaganefnd til
að framlag til Landhelgisgæslu
verði aukið um 100 milljónir og nem-
ur framlag til þess málaflokks tæp-
um fjórum milljörðum, samkvæmt
tillögunni. Fram hefur komið af
hálfu Landhelgisgæslunnar að
tekjur hennar hafi dregist verulega
saman og því hafði verið óskað eftir
300 milljóna króna hækkun fram-
lags á fjárlögum. Þess hafði ekki
sést stað í fjárlagafrumvarpinu en
nú verður breyting á því.
Samgöngur og háskólar
Framlög til samgangna verða
samkvæmt tillögunni aukin um
4.560 milljónir króna. Nemur því sá
liður fjárlaganna 34 milljörðum
króna á næsta ári. Aukinheldur ger-
ir tillaga fjárlaganefndar ráð fyrir
auknum útgjöldum til háskólanna í
landinu sem nemur tæpum 1,1 millj-
arði króna.
Fjöldi annarra breytinga
Af öðrum tillögum til breytinga af
hálfu fjárlaganefndar eru þær helst-
ar að dregið verði úr framlögum til
mála tengdum ferðaþjónustu um
600 milljónir frá því sem áður var
ráðgert.
Framlag til framhaldsskóla
hækkar um 400 milljónir til viðbótar
við þá tæpu 28,5 milljarða sem fjár-
lagafrumvarp gerði ráð fyrir.
Þá hækka framlög til heilsugæslu
um 150 milljónir umfram þá 21,8
milljarða sem frumvarpið tilgreindi.
Framlag til velferðarráðuneytis
vegna stuðnings við fjölskyldur og
börn hækkar um 50 milljónir. Jafn-
framt fara 30 milljónir til lýðheilsu,
forvarna og eftirlits, til viðbótar 2,6
milljörðum sem greindi í frumvarp-
inu. Stjórnsýsla velferðarmála fær
svo 90 milljóna króna viðbótarfram-
lag ofan á 5,3 milljarða eins og áform
voru um.
Framlög til forsætisráðuneytis
lækka um 100 milljónir frá frum-
varpinu og verða undir einum millj-
arði króna.
Að síðustu gerir tillaga fjárlaga-
nefndar ráð fyrir að liðurinn skattar
og innheimta vaxi um 47,5 milljónir
frá því sem var í frumvarpinu.
Morgunblaðið/Eggert
Þingfundur Þingmenn föðmuðust og óskuðu hver öðrum gleðilegra jóla að loknum þingfundi seint í gærkvöldi. Þing kemur næst saman 24. janúar nk.
Ellefu milljarða aukning
Fjölmargir liðir fjárlaga hækka Dregið úr við ferðaþjónustu og forsætis-
ráðuneyti um 700 milljónir Aukið við Landspítala, löggæslu og háskóla
Létt andrúmsloft
var á Alþingi í
gærkvöldi, þegar
önnur umræða
um fjárlög fór
fram, en athygli
vakti að nefndar-
menn fjárlaga-
nefndar þökkuðu
hver öðrum og
hrósuðu í hástert.
Silja Dögg
Gunnarsdóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, sagði traust hafa
myndast manna á milli. „Með því að
treysta hvort öðru fáum við almenn-
ing til að treysta okkur,“ sagði hún
og hrósaði formanni nefndarinnar,
Haraldi Benediktssyni, fyrir. „Takk
fyrir og gleðileg jól,“ sagði hún.
Þorsteinn Víglundsson, formaður
Viðreisnar, þakkaði formanni og
öðrum nefndarmönnum einnig fyrir
samstarfið. Að loknum ræðum þing-
manna tók Steingrímur J. Sigfússon,
forseti Alþingis, til máls. „Lítur út
fyrir að fullþakkað sé fyrir í fjár-
laganefnd,“ sagði hann og uppskar
mikinn hlátur þingheims.
Fullþakkað
fyrir í fjár-
laganefnd
Þakklæti og hlátur
í umræðu um fjárlög
Steingrímur J.
Sigfússon
Pawel Bartos-
zek, þingmaður
Viðreisnar,
þakkaði Stein-
grími J. Sigfús-
syni, forseta Al-
þingis, fyrir að
kjósa með veit-
ingu ríkisborg-
araréttar til Pa-
wels og móður
hans fyrir um 19
árum síðan. Þetta kom fram í
ræðu Pawels í umræðum um frum-
varp um veitingu ríkisborgara-
réttar, en Steingrímur er eini nú-
verandi þingmaðurinn sem greiddi
atkvæði um ríkisborgararétt Paw-
els.
Sagðist Pawel vonast til þess að
Steingrímur sæi ekki of mikið eftir
ákvörðun sinni og vöktu ummælin
kátínu og hlátrasköll í þingsal, en
þeir Steingrímur sitja á þingi hvor
fyrir sinn stjórnmálaflokkinn, líkt
og kunnugt er. Að þessu sinni
samþykkti Alþingi að veita 31
manni íslenskan ríkisborgararétt.
Þakkaði fyrir
ríkisborgara-
réttinn
Pawel
Bartoszek
Í tengslum við forsendur fjárlaga
2017 samþykkti Alþingi nokkra
hækkun gjalda á áfengi, eldsneyti og
fleira á fundi sínum í gær.
Hækkun áfengisgjalda leiðir til
nokkurrar hækkunar á útsöluverði
áfengis, að öðru óbreyttu. Ekki er víst
að breytingarnar komi fram að fullu
né að þær miðist við áramót, þar sem
birgjar ráða miklu um verðlagningu.
Eins og fram kemur í töflu hér til
hliðar er hækkunin á flösku af al-
gengri tegund vodka 213 krónur, 227
krónur á flösku af algengu koníaki og
3 lítra kassi af algengu rauðvíni
hækkar um 203 krónur.
Einnig voru nokkrar breytingar
gerðar á eldsneytisgjöldum. Sem
dæmi um áhrif þeirra breytinga mun
bensínlítri hækka um 4,90 krónur.
Telur Félag íslenskra bifreiðaeigenda
að árlegur kostnaðarauki vegna þessa
sé 12 þúsund krónur að meðaltali á
hvern bíl. Þá var einnig samþykkt að
gjald vegna vegabréfa skyldi hækka
um fimmtung. Almennt verð fyrir
vegabréf hækkar úr 10.250 krónum í
12.300 og verð fyrir vegabréf með
hraðþjónustu hækkar úr 20.250 krón-
ur í 24.300 krónur. jonth@mbl.is
Nokkur hækkun vegna
fjárlagafrumvarpsins
Eldsneyti og
áfengi hækka Tegund Vodki Rauðvín Bitter Koníak Bjór Rauðvín
Stærð (ml) 700 750 700 700 500 3000
Styrkur 37,5% 13,5% 21,0% 40,0% 5,0% 13%
Verð 1 .des 2016 5.099 1.999 4.980 8.999 359 6.599
Verð 1. jan 2017 5.312 2.052 5.106 9.226 369 6.802
Hækkun % 4,2% 2,7% 2,5% 2,5% 2,8% 3,1%
Hækkun í kr. 213 53 126 227 10 203
„Við fögnum því að þarna sé Al-
þingi að tryggja óbreyttan rekstur
Landspítalans,“ segir Páll Matt-
híasson, forstjóri Landspítalans,
en fjárlaganefnd samþykkti í gær-
kvöldi að ef kæmi til niðurskurðar
eða uppsagna á komandi ári hjá
Landspítalanum yrðu samþykkt
fjáraukalög og spítalanum tryggt
það fjármagn sem þyrfti til að
koma í veg fyrir þær aðgerðir.
Ráðuneyti og ráðherra litu það
öðrum augum en Landspítalinn
hvort spítalanum væri tryggt
nægt fjármagn í fjárlögum til að
veita grunnþjónustu en fjár-
laganefnd brást við áhyggjum
forsvarsmanna spítalans með
baktryggingu, inngjöf upp á tvo
milljarða og eftirgjöf eldri halla.
„Svo er það nýrrar ríkis-
stjórnar að gefa í – menn boðuðu
meira í kosningunum en að það
yrði ekki skorið niður,“ segir Páll.
Óbreyttur rekstur tryggður
VIÐBRÖGÐ FORSTJÓRA LANDSPÍTALANS