Morgunblaðið - 23.12.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016
Kannanir sýna að flokkur Dagsog Hjálmars Sveinssonar
hefur ekki misst nema helming
fylgis síns á tæpum þremur árum.
Það er undravertafrek þegar
horft er til þess
hvernig haldið hef-
ur verið á mál-
efnum borgar-
innar.
Dagur og fé-lagar hans í
borgarstjórn töldu
augljóst að Hjálmar
Sveinsson væri
miklu meira úti að
aka en nokkur ann-
ar kjörinn fulltrúi
og því upplagður í
umferðarmálin.
Hjálmar var í viðtali í gær ogvísaði á bug orðum forstjóra
Vegagerðarinnar um að brýnt
væri að ráðast í framkvæmdir á
gatnakerfi Reykjavíkur.
Hjálmar sagði: „Að mínu matier engin önnur lausn í boði
(en að leggja áherslu á almenn-
ingssamgöngur). Það er búið að
margreyna hitt víða í heiminum
og m.a. í Reykjavík. Með því að
bæta sífellt við nýjum akreinum
og mislægum gatnamótum þá fyll-
ast þessar akreinar um leið.“
Staksteinar lásu þetta og réttnáðu að stöðva frúna. Hún var
á leið í búð að kaupa hangikjöt.
Var henni bent á að það þýddi
ekki neitt, því langlíklegast væri
að kjötið yrði étið. Yrðu heimilis-
menn síst betur settir eftir en áð-
ur. Frúin hélt sínu striki og sagði
bónda sinn úti að aka.
Ætli að sé laust sæti fyrirhann í umferðarnefnd?
Dagur B.
Eggertsson
Borgin Dagar uppi
STAKSTEINAR
Hjálmar
Sveinsson
Veður víða um heim 22.12., kl. 18.00
Reykjavík -1 skýjað
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri -1 léttskýjað
Nuuk -19 heiðskírt
Þórshöfn 2 rigning
Ósló 3 rigning
Kaupmannahöfn 4 þoka
Stokkhólmur 4 léttskýjað
Helsinki 4 léttskýjað
Lúxemborg 2 þoka
Brussel 6 þoka
Dublin 7 léttskýjað
Glasgow 4 skúrir
London 7 léttskýjað
París 8 alskýjað
Amsterdam 6 þoka
Hamborg 5 þoka
Berlín 2 rigning
Vín -2 þoka
Moskva 0 snjókoma
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 8 heiðskírt
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 6 skýjað
Winnipeg -7 skýjað
Montreal 0 snjókoma
New York 4 þoka
Chicago 1 heiðskírt
Orlando 17 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:23 15:32
ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:55
SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:36
DJÚPIVOGUR 11:02 14:52
Stefán Eiríksson,
fv. sviðsstjóri
velferðarsviðs
Reykjavíkur-
borgar, er nýr
borgarritari, en
borgarráð sam-
þykkti í gær
ráðningu hans.
Borgarritari er
æðsti embættis-
maður borgarinnar að borgarstjóra
undanskildum, en borgarritari er
einn staðgengla borgarstjóra.
Vinnubrögð við ráðningu borgar-
ritara voru harðlega gagnrýnd af
fullrúum Sjálfstæðisflokks, Fram-
sóknar og flugvallarvina í minni-
hluta borgarráðs. Ráðningin hafi
ekki verið á útsendri dagskrá fund-
arins og minnihlutinn ekki fengið
send nein gögn fyrir fundinn. Ekki
var orðið við ósk minnihlutans um að
fresta málinu til næsta fundar en 17
umsækjendur voru um stöðuna. Eru
þessi vinnubrögð sögð „algerlega
óviðunandi og ganga í berhögg við
reglur stjórnsýsluréttar,“ segir í
bókun minnihlutans, sem óskar þó
Stefáni velfarnaðar í starfinu.
Stefán er
nýr borg-
arritari
Vinnubrögð gagn-
rýnd í borgarráði
Stefán Eiríksson
„Þetta hefur verið mjög sérstakt,“
segir Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðar-
fjalli, um skíðafærið nú í haust. Síð-
ustu ár hefur svæðið yfirleitt verið
opnað um mánaðamótin nóvember/
desember en í ár hafa ekki enn skap-
ast skilyrði til að opnunar.
„Við framleiðum alltaf snjó en við
þurfum að hafa frostið. Núna er
þetta búið að vera svona í kringum
núll gráður og þá gerist voðalega lít-
ið í snjóframleiðslu.“ Framleiðslan
hófst þó í Hlíðarfjalli í fyrradag og
vonast Guðmundur til að hægt verði
að opna svæðið bráðlega. „Við erum
að láta okkur dreyma um að opna 27.
desember en þetta er voða tæpt.“
Snjóleysið hefur plagað flest
skíðasvæði á landinu og hafa Bláfjöll
einnig verið lokuð það sem af er
vetri. Þar vonast menn þó til að geta
opnað á öðrum degi jóla. „Það er
loksins kominn snjór sem virðist
ætla að halda. [...] [Við] erum bjart-
sýn á að fá það snjómagn sem þarf
til að geta opnað,“ segir á vefsíðu
skíðasvæðisins.
Skíðasvæði Tindastóls hefur verið
opið frá því í byrjun desember en að
sögn Viggós Jónssonar fram-
kvæmdastjóra er það eina skíða-
svæði landsins sem opið hefur verið
fram til þessa. „Við opnuðum 3. des-
ember þannig að við erum bara
montin með okkur.“
Vonast eftir skíðafæri yfir hátíðirnar
Skíðasvæði stefna á opnun í næstu viku Opið í Tindastóli í desember
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bláfjöll Margir vilja á skíði í fríinu.