Morgunblaðið - 23.12.2016, Side 16

Morgunblaðið - 23.12.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016 OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16 BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS ILMKERTI OG HÍBÝLAILMIR Í SÉRFLOKKI Maison Holiday tinaskja 325 ml. kr. 4.300 Japonica Tinaskja 118 ml. kr.2.450 Japonica Híbýlailmur 177 ml. 5.990 Room & Body Mist 100 ml. 4.500 Maison Holiday Glerkrús með loki í gjafakassa 355 ml. kr. 8.900 Ilmur af jólum VOLUSPA Slegið var upp jólagjafaveislu í flug- stöðinni í nágrenni Kulusuk á Grænlandi í fyrradag, þar sem börnin í þorpinu fengu jólagjafir frá Íslandi. „Þetta var óskaplega skemmtileg ferð,“ segir skipuleggjandinn, Hrafn Jökulsson, forseti skákfélagsins Hróksins, en með honum í för voru Stefán Herbertsson, formaður Ka- lak, vinafélags Íslands og Græn- lands, og Gáttaþefur. Konurnar í prjónahópi Gerðubergs útbjuggu sérmerktar gjafir eftir að hafa feng- ið nafnalista frá grunnskólanum í Kulusuk, en í honum eru 40 börn og á annan tug í leikskólanum. Börnin fengu auk þess jólasveinahúfu frá Flugfélagi Íslands, helsta bakhjarli verkefnisins, og sælgæti frá Nóa Sí- ríusi. Fimmta ferðin á einu ári Flogið var til Kulusuk með áætl- unarvél Flugfélags Íslands að morgni og aftur heim með sömu vél síðdegis, en flugið tekur um einn og hálfan tíma. Tryggvi Jónsson flug- stjóri og Magnús Ingi Magnússon flugmaður tóku þátt í hátíðarhöld- unum og Sigrún Heiða Hilmars- dóttir flugfreyja aðstoðaði Gáttaþef við að deila út gjöfunum. Hrafn segir að tækifæri hafi gef- ist til þess að spjalla svolítið við börnin, sem hafi flest gengið í góða veðrinu drjúgan spöl úr þorpinu í flugstöðina. „Við þekkjum börnin í Kulusuk mjög vel en þetta var fimmta ferð Hróksins til Kulusuk á 365 dögum,“ segir hann. Samskonar jólasveinaferð var fyrst farin fyrir ári, en síðan hefur Hrókurinn staðið fyrir skákhátíðum og námskeiðum auk þess sem mörg börn frá Kulu- suk hafa komið á sundnámskeið á Íslandi. „Það fer vel á því að við ræktum tengslin sérstaklega í þessu litla þorpi en við vinnum miklu víðar á Grænlandi og viljum efla tengslin við landið allt og á sem flestum svið- um,“ segir Hrafn. steinthor@mbl.is Ljósmyndir /Hrafn Jökulsson Gleði Hún leyndi sér ekki gleðin sem gjafirnar vöktu hjá börnunum. Hrafn Jökulsson forseti Hróksins er hér lengst til hægri í jólapeysu. Færðu börnum á Grænlandi gjafir  Jólapakkaveisla í flugstöðinni í ná- grenni Kulusuk Ferð Enginn akvegur er á milli Kulusuk og flugvallarins. Flest börnin komu gangandi en sum komu með fjölskyldum sínum á hunda- eða vélsleðum. Gjafir Sigrún Heiða Hilmarsdóttir flugfreyja aðstoðaði Gáttaþef við að deila út gjöfunum og ánægja skein úr hverju andliti í flugstöðinni. Dóra Hlín Ingólfs- dóttir, rannsóknar- lögreglukona, lést í gær, 67 ára að aldri. Dóra Hlín var fædd 17. ágúst 1949 en foreldrar hennar voru Ingólfur Finn- björnsson loft- skeytamaður og Jó- hanna Bjarn- freðsdóttir bókavörður. Dóra Hlín lauk gagnfræðiprófi og síðar námi frá lög- regluskólanum en hún var önnur af tveimur fyrstu konum í sögu lögreglunnar til að klæðast lögreglubúningi og gegna almennum lögreglustörf- um, 30. júní 1974. Hún var ráðin sem rannsóknar- lögreglukona við stofnun Rann- sóknarlögreglu Reykjavíkur árið 1977 og fluttist svo sjálfkrafa til Rannsóknarlögreglu ríkisins (RLR) þegar það embætti var stofnað. Þaðan fór hún til lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar RLR var lögð niður árið 1997 en þar starfaði hún til starfsloka árið 2014. Dóra Hlín var mikill brautryðj- andi í meðferð kynferðisbrota innan lögreglunnar. Hún hlaut viðurkenningu fyr- ir vel unnin störf fyrir lögregluna og í þágu almennings þegar hún lét af störfum. Dóra Hlín var ein af stofnendum Stígamóta. Þá var hún einnig einn stofnenda Kríanna, hagsmunafélags lögreglukvenna, og fyrsti formaður fé- lagsins sem sett var á laggirnar ár- ið 1994. Dóra Hlín starfaði með Kvennalistanum og tók síðar þátt í stofnun Samfylkingarinnar en hún starfaði einnig með flokkn- um. Sambýlismaður Dóru Hlínar var Erlingur Kristjánsson smið- ur. Dóra Hlín giftist Benedikt Lund árið 1982 og skildu þau árið 1991 en þau áttu eitt barn, Sig- rúnu Helgu Lund. Þá giftist Dóra Hlín Guðmundi Guðbjörnssyni árið 1970 en þau skildu árið 1974. Þau áttu eitt barn, Jóhönnu Guð- mundsdóttur. Barnabörnin eru fjögur. Útför Dóru Hlínar fer fram eftir áramót og verður auglýst síðar. Andlát Dóra Hlín Ingólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.