Morgunblaðið - 23.12.2016, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016
MERRY
CHRISTMAS
23. desember 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 112.89 113.43 113.16
Sterlingspund 139.22 139.9 139.56
Kanadadalur 83.83 84.33 84.08
Dönsk króna 15.881 15.973 15.927
Norsk króna 12.983 13.059 13.021
Sænsk króna 12.27 12.342 12.306
Svissn. franki 110.23 110.85 110.54
Japanskt jen 0.9598 0.9654 0.9626
SDR 151.27 152.17 151.72
Evra 118.07 118.73 118.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.6135
Hrávöruverð
Gull 1130.55 ($/únsa)
Ál 1730.0 ($/tonn) LME
Hráolía 55.52 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Alls voru 1.010 fyrirtæki tekin til gjald-
þrotaskipta á tólf mánaða tímabili frá
desember 2015 til nóvember síðastlið-
ins, borið saman við 618 tólf mánuðina
þar á undan. Það þýðir að gjaldþrotum
fyrirtækja hefur fjölgað um 63% á milli
tímabila. Í nóvember einum voru 100
fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta.
Í flokki heild- og smásöluverslana og
ökuktækjaviðgerða voru 202 gjaldþrot
síðustu tólf mánuði og tvöfölduðust þau
næstum á milli ára. Þá voru 176 gjaldþrot
í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð
sem er 42% aukning á milli ára.
Gjaldþrot yfir eitt þús-
und talsins síðasta árið
STUTT
Ólafur Fáfnir Sigurgeirsson
olafur@mbl.is
Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,14% í desember að því er fram
kemur í nýjustu verðbólgumæling-
um Hagstofu Íslands sem birtar
voru í gær. Verðbólgan yfir árið, frá
desember í fyrra til desember í ár,
mælist því 1,9%. Húsnæðisliðurinn
heldur áfram að halda verðbólgunni
uppi en kostnað-
ur við búsetu í
eigin húsnæði
hækkaði um
1,6% í desember.
„Húsnæðisverð
hefur verið að
hækka mjög
hratt, eða yfir
1% á mánuði að
jafnaði yfir síð-
ustu átta mánuði,
og við höfum
ekki séð svona miklar hækkanir síð-
an árið 2008,“ segir Jón Bjarki
Bentsson hjá Greiningu Íslands-
banka.
Innflutt verðhjöðnun sterk
„Á móti kemur að innfluttar
vörur eru að lækka talsvert og
þessir tveir kraftar, hækkun hús-
næðisverðs og lækkun á innfluttum
vörum togast á,“ segir Jón Bjarki,
en vísitala neysluverðs án húsnæðis
lækkaði um 0,18% í desember.
„Það sem kom okkur mest á
óvart í mælingunni nú í desember
var að fargjöld til útlanda lækkuðu
mun minna heldur en við áætluðum,
en það sem hins vegar einkennir
þessa mælingu einnig eru áhrifin af
styrkingu krónunnar. Við höfum
stundum velt því fyrir okkur hvort
gengisáhrifin séu að koma nógu
sterkt fram, en að þessu sinni erum
við að sjá lækkun á velflestum inn-
fluttum vöruflokkum og hefur sá
liður áhrif til 0,22% lækkunar á vísi-
tölunni,“ segir Jón Bjarki.
„ Það var mjög hröð styrking
krónunnar á tímabilinu ágúst til og
með nóvember. Þau áhrif eiga eftir
að koma fram að talsverðu leyti og
við eigum því eftir að sjá áfram-
haldandi verðlækkunaráhrif inn-
fluttra vara á næstunni.“
Verðbólga undir markmiði
Verðbólgan heldur áfram að vera
undir verðbólgumarkmiði Seðla-
bankans en hún mælist 1,9% yfir
síðustu 12 mánuði eins og fyrr seg-
ir. Ef húsnæðiskostnaður er undan-
skilinn þá hefur vísitalan lækkað um
0,8% á þessu ári. Þeir liðir hennar
sem telja til hækkunar eru innlend-
ar vörur og grænmeti sem hækkuðu
um 1,2%. Af þeim liðum vísitölunnar
sem hafa áhrif til lækkunar má
nefna innfluttar vörur en alls lækk-
uðu þær um 3,5% á síðustu 12 mán-
uðum. Ef áfengi og tóbak er undan-
skilið þá lækka þær enn meir eða
4%.
Mjög mismunandi er hversu mik-
ið innfluttar vörur hafa lækkað. Til
að mynda hefur fataefni lækkað um
29% yfir síðustu 12 mánuði meðal
annars vegna styrkingar krónunnar
og tollaniðurfellingar um síðustu
áramót. Föt hafa hins vegar lækkað
um 6,5% á sama tíma.
Krónan ræður verðbólguþróun
„Líklegast er að meðan það er
svona mikill uppgangur í ferðaþjón-
ustunni og gengið heldur áfram að
styrkjast halda eftirspurnaráhrifin í
hagkerfinu áfram, sem koma svo
fram í hækkandi húsnæðisverði og
vaxandi launakostnaði,“ segir Jón
Bjarki. „Þrátt fyrir að innflutningur
hafi aukist hröðum skrefum hefur
það ekki haft mikil áhrif á geng-
isþróunina, vegna mikillar aukning-
ar í gjaldeyristekjum af ferðaþjón-
ustunni. Þetta fer ekki að snúast
fyrr en hægir á þessum vexti.
Sennilegast verður orsakasamheng-
ið þannig að krónan hætti að styrkj-
ast þegar fer að hægja á vexti
ferðaþjónustunnar og það myndi þá
toga verðbólguna aftur upp.“
Húsnæði keyrir
verðbólguna áfram
Vísitala neysluverðs, ársbreyting %
20
18
16
14
12
10
8
6
4
2
0
2006 2007 2008 2009 2010 2011 20132012 2014 2015 2016
Verðlagsþróun á árinu
» Föt hafa lækkað um 6,5% yf-
ir árið, frá desember í fyrra til
desember í ár.
» Kvenmannsföt hafa lækkað
um 7,7% og barnaföt um 6,3%.
» Karlmannsskór hafa hins
vegar hækkað um 1,4%.
» Innfluttur matur hefur lækk-
að m.a. vegna styrkingar krón-
unnar og lækkaði pasta um
7,3% og hrísgrjón um 9,9%.
Verðhjöðnun í ár ef húsnæðisliðurinn er undanskilinn
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fjarskipti hafa náð samkomulagi við
365 miðla um kaup á ljósvakamiðla-
og fjarskiptaþjónustu síðarnefnda
fyrirtækisins og er kaupverðið 2,2
milljarðar króna, samkvæmt til-
kynningu Fjarskipta til Kauphallar.
Fjarskipti, sem er móðurfélag Voda-
fone, greiðir 500 milljónir fyrir starf-
semina auk þess að seljandi fær í
sinn hlut tæplega 32,4 milljónir hluta
í Fjarskiptum á genginu 52,5 krónur
á hlut. Að auki yfirtaka Fjarskipti
vaxtaberandi skuldir 365 miðla að
fjáhæð 4,6 milljarða króna. Kaupin
eru enn háð skilyrðum og forsendum
sem útfærð verða nánar í kaupsamn-
ingi sem ráð er fyrir gert að verði
undirritaður á nýju ári.
Þegar tilkynnt var um viðræður
milli samningsaðila í lok ágúst síð-
astliðins kom fram að forsendur um
kaupverð yrðu byggðar á upplýsing-
um seljanda og hver rekstrarhagn-
aður þeirrar starfsemi sem skipta
myndi um hendur væri. Var þar gert
ráð fyrir að verðið gæti numið allt að
3,4 milljörðum króna og að 1,7 millj-
arðar yrði greiddir í reiðufé. Niður-
staðan er hins vegar að greiðsla í
reiðufé er 1,2 milljörðum króna
lægri en þá var áætlað og kaupverðið
sömuleiðis lægra sem þeirri upphæð
nemur.
Aðrar breytingar ekki ljósar
Spurður út í áhrif sölunnar á 365,
segir Sævar Freyr Þráinsson, for-
stjóri fyrirtækisins, að ekki sé tíma-
bært að upplýsa um það. „Nú hefur
samkomulag náðst um kaupverðið
og það er mjög mikilvægur áfangi.
Hins vegar munum við síðar, þegar
það er tímabært, tilkynna um áhrifin
af þessum viðskiptum.“ Vísar Sævar
Freyr þar til mögulegra breytinga á
rekstri fyrirtækisins en það mun
áfram halda úti rekstri fréttastofu.
Þá mun fyrirtækið enn eiga Frétta-
blaðið og vefinn visir.is.
Morgunblaðið/Ómar
Sala 365 miðlum verður skipt upp
með sölunni til Fjarskipta.
2,2 milljarðar fyrir ljós-
vaka- og fjarskiptahluta 365
Verðið 1,2 milljörðum króna lægra en áætlað var í ágúst
● Velta bílaleiga
hér á landi á fyrstu
átta mánuðum árs-
ins nam 30,8 millj-
örðum króna og
hefur ríflega fjór-
faldast frá árinu
2010 þegar veltan
var 7,3 milljarðar.
Í Hagsjá Lands-
bankans segir að
um sé að ræða
28% aukningu frá sama tímabili í fyrra.
„Vöxturinn í tekjum bílaleiga hefur verið
töluvert góður á síðustu árum sem
rekja má til mikillar fjölgunar erlendra
ferðamanna hér á landi,“ segir í Hag-
sjánni.
Velta gististaða, farþegaflutninga
með flugi og veitingasölu og -þjónustu
hefur ekki vaxið jafnhratt á sama tíma-
bili. Þannig hefur velta gististaða ríflega
þrefaldast og velta veitingaþjónustu
tvöfaldast. Velta farþegaflutninga með
flugi hefur síðan aukist um 70%.
Fjórföldun í veltu bíla-
leiga frá árinu 2010
Ferðalangar Vöxt-
ur er í útleigu bíla.
Jón Bjarki
Bentsson