Morgunblaðið - 23.12.2016, Side 20

Morgunblaðið - 23.12.2016, Side 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016 Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is Fagleg & persónuleg þjónusta Dæmi: BRAVILOR TH Vandaðar og traustar uppáhellivélar 2.900,- án VSK Þjónusta- & leigugjald á mán. Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki Hagkvæmara en þú heldur! Mikið úrval af öflugum vegg- og loftafestingum frá KÖNIG fyrir skjái og sjónvörp Ármúla 17, 108 Reykjavík, sími 552 8636, mbr.is Allt fyrir raftækni Veggfestingar Formaður óháðs mannréttindaráðs á Filippseyjum segir að það ætli að hefja rannsókn á yfirlýsingum Rod- rigo Duterte, forseta landsins, um að hann hafi sjálfur skotið menn til bana í herferð gegn sölu fíkniefna þegar hann var borgarstjóri Davao. Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna hefur sakað forsetann um morð og hvatt yfirvöld á Filipps- eyjum til að rannsaka málið. Chito Gascon, formaður mann- réttindaráðs Filippseyja, segir að það ætli að rannsaka þátt forsetans í drápum á fólki sem grunað er um sölu eða neyslu á fíkniefnum. Þótt ráðið geti ekki höfðað mál gegn Duterte meðan hann gegnir for- setaembættinu sé mikilvægt að rannsaka mál hans til að leggja grunninn að mögulegri saksókn síðar. Talið er að dauðasveitir hafi drepið hundruð manna í Davao þegar Duterte var borgarstjóri. Hermt er að nær 6.000 manns hafi verið drepin í herferð hans gegn fíkniefnum á Filippseyjum frá því að hann varð forseti í júní. FILIPPSEYJAR Meint manndráp forsetans rannsökuð AFP Morðingi? Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, flytur ræðu í Manila. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þýsk yfirvöld voru gagnrýnd í gær eftir að skýrt var frá því að 24 ára Túnisi, sem grunaður er um árásina í Berlín á mánudaginn var, hefði áður sætt rannsókn vegna gruns um að hann væri að undirbúa hryðjuverk. Að sögn þýskra fjölmiðla hafa spurningar vaknað um ástæður þess að manninum tókst að komast hjá handtöku og brottvísun úr landi þótt hann hefði verið undir eftirliti nokk- urra öryggisstofnana í Þýskalandi. „Yfirvöld voru með hann í sigtinu en samt tókst honum að hverfa,“ sagði í vefútgáfu vikublaðsins Der Spiegel. „Þeir vissu um hann. Samt gerðu þeir ekkert,“ sagði Berlínar- blaðið B.Z. Þýskir embættismenn hafa skýrt frá því að Túnisinn, Anis Amri, var grunaður um að styðja íslömsk öfga- samtök og undirbúa hryðjuverk. Der Spiegel segir að Amri sé á meðal 549 manna sem þýsk yfirvöld flokki sem mögulega hryðjuverkamenn. Talinn undirbúa sprengjuárás Þýskir saksóknarar sögðu að grunur hefði leikið á því að Amri hygðist fremja innbrot til að verða sér úti um peninga fyrir vopnum, „hugsanlega til að gera árás“. Haft hefði verið leynilegt eftirlit með hon- um frá mars til september í ár en þeir sem fylgdust með honum kom- ust aðeins að því að hann seldi stund- um fíkniefni í almenningsgarði í Berlín og lenti einu sinni í átökum á bar. Ekki komu fram neinar vís- bendingar um að hann væri að undir- búa hryðjuverk og eftirlitinu var því hætt, að sögn þýskra embættis- manna. Áður hafði Amri afplánað fang- elsisdóm á Ítalíu fyrir íkveikju og í Túnis var hann fundinn sekur um rán í réttarhöldum sem fóru fram að honum fjarstöddum, að sögn breska ríkisútvarpsins. The New York Times hafði í gær eftir bandarískum embættismönn- um að Amri hefði lesið sér til á net- inu um hvernig hægt væri að búa til sprengjur. Hann hefði haft samband við liðsmenn samtakanna Ríki íslams að minnsta kosti einu sinni á netinu. Þýskir fjölmiðlar hafa einnig skýrt frá því að Amri hafi umgengist þekkta öfgamenn úr röðum íslam- ista, meðal annars klerk sem var handtekinn í nóvember og er grun- aður um að hafa fengið unga menn til að berjast með liðsmönnum Ríkis ísl- ams í Sýrlandi og Írak á fyrri helm- ingi síðasta árs. Der Spiegel segir að hlerað símtal bendi til þess að Amri hafi boðist til að gera sjálfsvígsárás en að vísbendingarnar hafi verið svo óljósar að saksóknarar hafi ekki get- að notað þær til að ákæra hann. Ríki íslams hefur lýst árásinni í Berlín á hendur sér. Hermt er að dvalarleyfi Amris hafi fundist í flutn- ingabílnum sem ekið var á mann- margan jólamarkað í borginni. Dag- blaðið Süddeutsche Zeitung sagði í gær að fingraför Amris hefðu einnig fundist á hurð bílsins. Alls biðu tólf manns bana í árás- inni, þeirra á meðal pólskur bílstjóri flutningabílsins. Hann fannst látinn í bílnum, með skot- og stungusár. Berlínarbúar flykktust á jóla- markaðinn í gær þegar hann var opnaður í fyrsta skipti eftir árásina. Settur var upp steinsteyptur tálmi við markaðinn til að hindra aðra árás. Stefna Merkel gagnrýnd Árásin hefur kynt undir gagnrýni á Angelu Merkel, kanslara Þýska- lands, vegna stefnu hennar í málefn- um flóttamanna og hælisleitenda. Flokkurinn Annar kostur fyrir Þýskaland (AfD) hefur sakað Merkel um að bera ábyrgð á árásinni og seg- ir að hún hafi stefnt landinu í hættu með þeirri ákvörðun að opna landa- mærin fyrir flóttafólki frá Sýrlandi á síðasta ári, en hún varð til þess að rúm milljón hælisleitenda kom til Þýskalands. Forystumenn systurflokks Kristi- lega demókrataflokksins í Bæjara- landi hafa tekið undir gagnrýnina á stefnu stjórnarinnar í málinu og hvatt til þess að henni verði breytt. Að sögn fréttaveitunnar AFP hef- ur árásin orðið til þess að stefnan sætir nú einnig vaxandi gagnrýni innan flokks kanslarans, Kristilega demókrataflokksins, sem óttast fylgistap í kosningum til þýska þingsins á næsta ári. „Í landinu er stór hópur flótta- manna sem við vitum ekki hvað heita eða hvaðan þeir koma. Og það getur hugsanlega stefnt öryggi landsins í hættu,“ hefur AFP eftir kristilega demókratanum Klaus Bouillon, inn- anríkisráðherra sambandslandsins Saarlands. Helstu árásir sem samtökin Ríki íslams hafa lýst á hendur sér Fjöldi látinna Fjöldi særðra Magnanville 13. júní 2016 Hnífur Túnisborg 18. mars 2015 Byssur TÚNIS Sousse 26. júní 2015 Byssur, sprengjur Istanbúl 28. júní 2016 Sjálfsmorðsárásir TYRKLAND 38 47 12 12 12. jan. 2016 ÞÝSKALAND Ansbach 24. júlí 2016 Sjálfsmorðsárás 151 400 260 32 Würtzburg 18. júlí 2016 Hnífur 5 49 Orlando 12. júní 2016 Byssur FRAKKLAND BANDARÍKIN Nice 14. júlí 2016 Bíl ekið á fólk St. Etienne- du Rouvray 1 26. júlí 2016 Hnífur BELGÍA Brussel 48 Berlín 19. des. 2016 Bíl ekið á fólk EGYPTALAND Sínaí 31. okt. 2015 Flugvél grandað 22 86 2 224 19. mars 2016 4 Frá árinu 2015 350 París 130 13. nóv. 2015 Byssur, sprengjur Byssur 8.-9. jan. 2015* *12 létu lífið í árás á skrifstofur Charlie Hebdo 7. janúar. Árásarmennirnir tengdust al-Qaeda 340 22. mars 2016 Sjálfsvígsárásir 5 Yfirvöld gagnrýnd vegna árásarinnar  Túnisinn sem leitað er var undir eftirliti í nokkra mánuði Grunaður um árás Notaði sex dulnefni Anis Amri Túnisi Íslamisti, salafisti 1,78 m, 75 kg Júní 2016 Umsókn hans um hæli hafnað. Brottvísun úr landi tafðist Júlí 2015 Fór til Þýskalands Fyrir 2015 Bjó án dvalarleyfis á Ítalíu í þrjú ár Nóvember 2016 Sætti rannsókn vegna gruns um að hann undirbyggi hryðjuverk Heitið var jafnvirði tæpra 12 millj. króna fyrir upplýsingar sem leiddu til handtöku hans Sagður hættulegur og hugsanlega vopnaður 24 ára Of mikil notkun á Facebook um há- tíðirnar – og gláp á myndir af „full- komnum“ fjölskyldum að halda gleðileg jól – er líklegri til að valda vanlíðun en að koma fólki í hátíðar- skap, ef marka má nýja rannsókn Kaupmannahafnarháskóla. Rannsóknin leiddi í ljós að of- notkun á samfélagsmiðlum getur ýtt undir öfund. Rannsóknarmenn- irnir vara einkum við neikvæðum afleiðingum þess að „læðupokast“ á samfélagsmiðlum, án þess að eiga samskipti við aðra. Fólk sem hneig- ist til öfundar í garð annarra er hvatt til að taka sér hlé frá sam- félagsmiðlum um hátíðirnar. Rúmlega 1.300 manns, meirihlut- inn konur, tóku þátt í rannsókninni. Hún leiddi í ljós að „mikil notkun á félagsmiðlum á borð við Facebook getur haft slæm áhrif á tilfinninga- líf og lífsánægju fólks“. OFNOTKUN Á SAMFÉLAGSMIÐLUM GETUR ÝTT UNDIR ÖFUND Hvött til að hvíla sig á Facebook um jólin AFP Facebook Myndir af „fullkomnu“ fólki á félagsmiðlum geta ýtt undir öfund.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.