Morgunblaðið - 23.12.2016, Page 28

Morgunblaðið - 23.12.2016, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016 Þegar leiðir skilja er við hæfi að þakka. Þakka fyrir liðnar stundir sem geymdar eru í safni minninganna. Á Eyrarvegi 18, hjá henni Gunnu og honum Pétri föðurbróður okkar, var eins og tíminn stæði í stað. Að minnsta kosti þau árin sem við systurnar munum hvað best. Þangað var gott að koma. Rólegheit og vin- gjarnlegt viðmót, Rás 1 í bak- grunninum. Nægur tími gefinn Guðrún Jóna Hansdóttir ✝ Guðrún JónaHansdóttir fæddist 11. febrúar 1926 að Uppsölum á Hellissandi. Hún lést 25. október 2016 á Dvalarheim- ilinu Fellaskjóli, Grundarfirði. Guðrún var gift Pétri Breiðfjörð Sigurjónssyni frá Norður-Bár í Grundarfirði, f. 30.11. 1918, d.28.4. 2011. Þau eignuðust þrjú börn, þrjú barnabörn og níu barnabarnabörn. Útför Guðrúnar fór fram 12. nóvember 2016 í kyrrþey að ósk hinnar látnu. til að taka á móti gestunum, spyrja frétta og segja sög- ur. Við systurnar nutum þess að fá sögur úr sveitinni, heyra frásagnir af fólkinu okkar og til- finningu fyrir því sem var. Þetta var okkur sérstaklega mikilvægt eftir að pabbi dó, en við vor- um þá á barns- og unglingsaldri. Börnum er það sérlega mikil- vægt að heyra sögurnar af sínu fólki, sögur sem næra og styrkja ræturnar, samhengið og „límið“ í tilverunni. Bæði höfðu þau Gunna og Pétur gott minni og svo voru þau líka viljug að segja frá, hvort með sínum hætti. Við syst- urnar erum þakklátar fyrir þess- ar stundir, við eldhúsborðið á Eyrarveginum, fyrir góðu jóla- kökuna hennar Gunnu (útgáfan með engum rúsínum fyrir Pétur og Dagnýju), fyrir kleinurnar og stjanið. Fyrir að vera ávallt vel- komnar. Blessuð sé minning Guðrúnar Hansdóttur. Björg, Steinþóra og Dagný Ágústsdætur. ✝ Sjöfn Jóhann-esdóttir fædd- ist á Húsavík 27. október árið 1924. Hún lést í Hvammi, Dvalarheimili aldr- aðra á Húsavík, 23. nóvember 2016. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sig- ríður Sigurjóns- dóttir húsmóðir, f. í Mýrarkoti á Tjör- nesi 6. ágúst 1895, d. 11. janúar 1990, og Jóhannes Guðmunds- son, kennari á Húsavík, f. 22. júní 1892 á Þórólfsstöðum í Kelduhverfi, d. 30. september 1970. Bræður hennar eru Sigurjón, f. 1926, fv. skólastjóri Gagn- fræðaskólans á Húsavík, búsett- ur þar, Ásgeir Guðmundur, f. 1931, fv. forstjóri Inn- kaupastofnunar ríkisins, búsett- ur í Kópavogi og yngstur var Gunnar Páll, f. 1936, kjötiðn- aðarmaður og afgreiðslumaður á Húsavík, sem nú er látinn. Sjöfn giftist 20. september 1947 Héðni Ólafssyni, bónda og rafvirkja frá Fjöllum í Keldu- hverfi, f. 14. janúar 1918, d. 16. júlí 1992. Foreldrar Héðins voru Ólafur Jónsson, bóndi á Fjöllum, 25. júní 1959, í sambúð með Ragnhildi Jónsdóttur. Þau eiga tvo syni, Hjalta og Jóhannes, og tvö barnabörn. 6. Kolbrún, f. 19. júní 1965, í sambúð með Peter Nielsen. Þau eiga tvo syni, Magnús Inga og Tómas Inga. Sjöfn ólst upp á Húsavík, gekk í Barnaskóla Húsavíkur og einn vetur í Unglingaskóla Benedikts Björnssonar. Hún stundaði nám við Húsmæðra- skólann á Laugum veturinn 1946-47, og á stríðsárunum réð hún sig í vist einn vetur í Reykjavík. Þegar Sjöfn giftist Héðni flyt- ur hún til hans að Fjöllum í Kelduhverfi og býr þar í 46 ár. Þau byggðu nýtt hús á Fjöllum og flytja í það árið 1959. Friðný, tengdamóðir hennar, kaus að fylgja þeim Héðni í nýja húsið og bjuggu þær saman allt þar til ári eftir að Héðinn lést, að Friðný fór á öldrunardeild Sjúkrahúss Þingeyinga á Húsa- vík. Sjöfn gekk í Kvenfélag Keldhverfinga og starfaði þar í mörg ár. Hún ferðaðist bæði innanlands og utan og fór m.a. tvær ferðir til Kanada og nokkr- ar ferðir til Kolbrúnar dóttur sinnar í Danmörku og Svíþjóð. Tveimur árum eftir lát Héð- ins flutti hún í Túngötu 7 á Húsavík og átti þar heimili allt þar til hún þurfti að fara á dval- arheimilið Hvamm. Útför Sjafnar fór fram í kyrr- þey 3. desember 2016. f. 21. nóvember 1881, d. 19. maí 1953, og Friðný Sigurbjörg Sig- urjónsdóttir, f. 31. ágúst 1898, d. 27. maí 1999. Sjöfn og Héðinn eignuðust sex börn. Þau eru 1. Ólafur Jón, f. 18. maí 1948, kvæntur Dalrósu Huldu Kjart- ansdóttur, f. 13. apríl 1950. Þau eiga þrjú börn, Kristínu Svan- hildi, Héðin og Eydísi og tvö barnabörn. 2. Sigríður Guðrún, f. 4. febr- úar 1950, gift Evert Kristni Evertssyni. Þau eiga eina dótt- ur, Sjöfn, tvö barnabörn og eitt barnabarnabarn. 3. Sigurbjörg Friðný, f. 14. nóvember 1952, gift Magnúsi Sigurðssyni. Þau eiga fjórar dætur, Kolbrúnu Sjöfn, Svövu Hrönn, Sigríði Katrínu og Mar- gréti Önnu og níu barnabörn. 4. Jóhannes Páll, f. 3. janúar 1956, kvæntur Svandísi Ebbu Stefánsdóttur. Þau eiga fjögur börn, Sjöfn, dreng sem fæddist andvana, Ósk og Rúnar og fimm barnabörn. 5. Guðmundur Sigurgeir, f. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. Þessi orð úr Spámanninum eftir Kahlil Gibran koma upp í hug okkar systra þeg- ar við hugsum til elsku ömmu Sjafnar. Það var hægt að ræða um allt við ömmu, hvort heldur það var eitthvað sem hæst bar í þjóðfélag- inu eða hvað var að gerast í lífi okkar systra. Hún hringdi alltaf í okkur á afmælisdögunum okkar og líka þegar makar okkar og börn, langömmubörnin hennar, áttu afmæli. Hjá ömmu og afa á Fjöllum runnu morgunmatur, hádegismat- ur, kaffi, kvöldmatur og kvöldkaffi saman í eitt. Það var alltaf spennandi að fara í búrið með ömmu, þar var alltaf eitthvað gott að finna, kleinur, kanilsnúða eða jafnvel gráfíkj- uköku. Ekki breyttist það þegar amma flutti á Túngötuna eftir að afi dó. Amma vildi ávallt vera þar sem fjölskyldan hennar var og eftir að við eignuðumst sumarbústaðinn okkar, Sigurhæðir, var hún dug- leg að koma þangað. Oftar en ekki lagði hún sig í sóf- ann í stofunni og þegar okkur fannst börnin okkar hafa einum of hátt og vorum hræddar um að amma gæti ekki hvílt sig og buð- um henni að færa sig inn í her- bergi, afþakkaði hún alltaf og sagði að sér fyndist svo gott að heyra í okkur. Við rifjum reglulega upp bíl- ferðina sem við systur fórum með ömmu fyrir nokkrum árum, frá Akureyri til Reykjavíkur. Eitt- hvað höfum við systur sagt á leið- inni því amma hló mikið og hristi hausinn yfir bullinu í okkur. Enda var amma mikill húmoristi, hafði gaman af því að heyra skemmti- legar sögur, sagði skemmtilega frá og tók sjálfa sig ekki alvarlega. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú varst okkur og allt sem þú gafst okkur og fjölskyldum okkar. Kolbrún Sjöfn, Svava Hrönn, Sigríður Katrín og Margrét Anna. Það nálgast 50 ár síðan ég kom í Fjöll í Kelduhverfi í fyrsta skipti, sem væntanlegur tengdasonur þeirra hjóna Sjafnar og Héðins. Mér var strax tekið sem einum af fjölskyldunni bæði af hendi þeirra hjóna og barna þeirra. Ég varð þess fljótt áskynja að það bjó mikill kraftur og seigla í tengdamóður minni. Á barna- skólaaldri byrjaði hún að vinna við að stokka og beita línu neðan við Bakkann á Húsavík. Afrakstur vinnunnar rann til foreldra henn- ar þar sem faðir hennar átti við mikil veikindi að stríða um árabil. Ung að árum fékk hún berkla í annan fótinn. Hún lét það þó ekki aftra sér frá því að taka til hend- inni og hélt ótrauð áfram að gera það sem þurfti þrátt fyrir að eiga lengi í þessum veikindum. Eftir að hún giftist Héðni og flutti í Fjöll var í mörg horn að líta. Bærinn Fjöll stendur neðst í Kelduhverfi og var í alfaraleið á þeim tíma, eða allt þar til þjóðveg- urinn var lagður fyrir Tjörnes. Gönguleiðin til Húsavíkur lá upp frá bænum, um Tunguheiði og akvegurinn við túngarðinn, um Reykjaheiði. Ekkert þótti sjálf- sagðara en að bjóða þeim hress- ingu sem áttu leið um. Fyrstu 20 árin sem Sjöfn bjó á Fjöllum var ekkert rafmagn til að létta undir við heimilisverkin. Hún þvoði því allan þvott í höndunum og hrærði og hnoðaði í allt brauð. Vegna vinnu Héðins utan heimilis og síð- ar veikinda hans um árabil bætt- ust bústörfin einnig við dagleg verkefni Sjafnar. Börnin urðu sex og varð vinnudagurinn bæði lang- ur og strangur. En með óbilandi ró, yfirvegun, jákvæðni og bjart- sýni stóð hún alltaf keik. Hún gladdist yfir stóra hópnum sínum og fjölskyldunni allri. Ekk- ert þótti henni betra en að fá fólkið sitt í heimsókn og hafa það hjá sér og mikið gladdist hún þegar ákveðið var að börn og fjölskyldur hittust um miðjan júlí á hverju ári heima á Fjöllum. Þar var hún hrókur alls fagnaðar. Sjöfn hafði ánægju af því að ferðast og naut þess. Ógleyman- leg er vikuferð sem Sjöfn og Héð- inn fóru með okkur fjölskyldunni um Vestfirði og eftir að Héðinn lést fór hún m.a. með okkur um Austfirði og í heimsókn til Kollu dóttur sinnar í Danmörku. Eftir að Sjöfn flutti til Húsavík- ur komum við oft til hennar. Eitt ár var ég í vinnu á Húsavík og hélt til hjá henni. Þá bar ýmislegt á góma hjá okkur og heilu kvöldin grúskuðum við í ættfræði, sem var áhugamál okkar beggja. Við lás- um Ættir Þingeyinga í þaula. Ýmsan fróðleik er að finna í þeim bókum en það var heldur ekki komið að tómum kofunum hjá henni. Þegar við byggðum okkur sum- arbústað í landi Fjalla var Sjöfn oft hjá okkur. Við tókum hana með okkur frá Húsavík og hún dvaldi hjá okkur helgi eða nokkra daga í einu. Hún naut þess að koma aust- ur í Fjöll og ekki fannst henni verra ef hópurinn var stór og líf og fjör í kringum hana. Aldrei hefur borið skugga á þau samskipti sem við Sjöfn höfum átt í þá nærri hálfu öld sem leiðir okk- ar fléttuðust saman. Ég þakka þér samfylgdina og alla þá góðvild og hjálpsemi sem þú sýndir mér, elsku Sjöfn, allt frá fyrstu kynn- um. Guð blessi minningu þína. Magnús Sigurðsson. Föðursystir mín, Sjöfn Jóhann- esdóttir frá Fjöllum í Kelduhverfi, er fallin frá, 92 ára að aldri. Sjöfn kom sterkt inn í mitt líf þegar ég fór í sveit til hennar og Héðins Ólafssonar eiginmanns hennar að Fjöllum í Kelduhverfi . Í fjögur sumur frá níu ára aldri var ég í Fjöllum hjá Sjöfn sem var mér sem móðir og veitti mér mik- inn stuðning. Að koma í Keldu- hverfi að vori á seinni hluta sjötta áratugar var mjög ólíkt því sem nú er, hafís lá úti á Öxarfirði, mik- ill kuldi í lofti og kom fyrir að snjó- aði fram í júnímánuð. Vorin gátu- verið erfið með kaldri norðanátt, en um leið og vindátt snerist í suð- ur með hlýju lofti þá breyttist Kelduhverfið í fallega og blómlega sveit. Þetta umhverfi var krefjandi fyrir unga bóndakonu, ekkert raf- magn á bæjum og samgöngur erf- iðar. Sjöfn eignaðist sex börn og byggði upp fallegt heimili utan um fjölskylduna. Vinnudagurinn var langur og handtökin mörg á stóru heimili og oft bættust við börn yfir sumartímann eins og ég og bróðir minn Þór. Mikið var um gesti og höfðinglega tekið á móti þeim á heimili Héðins og Sjafnar. Sjöfn var ávallt glaðlynd og yf- irveguð þótt mikið gengi á á heim- ilinu. Fljótlega áttaði ég mig á hversu fróð og minnug Sjöfn var á sögur og fólk. Ættartengsl og fæðingardaga gat hún rakið enda- laust. Er ég eltist gerði ég mér betur grein fyrir þessum mikla hæfileika og þeirri greind sem hún bjó yfir. Er ég ekki í neinum vafa um að hefði hún verið uppi á tíma þar sem skólaganga var auðveld og aðgengileg þá hefði henni sóst sú leið mjög auðveldlega. Oft minnist ég þess þegar Héðinn var að undirbúa sig í verkefni við að rafvæða byggingar í Norður- Þingeyjarsýslu, þá stóð Sjöfn ávallt klár á því hvaða efni og í hvaða magni þyrfti í viðkomandi verkefni og virtist Héðinn treysta mikið á hennar framlag við þenn- an undirbúning. Sjöfn var ákaflega ættrækin og fylgdist vel með hvað við höfðum fyrir stafni. Hún hafði þá reglu í áratugi að hringja í okkur systk- inin og Sigurveigu eiginkonu mína á afmælisdögum okkar til að fagna með okkur og fylgjast með lífi okkar. Hún var hógvær en hafði gaman af kraftmiklum sögum um sýslunga sína og var stolt af upp- runa og frændgarði. Héðinn lést árið 1992 eftir erfið veikindi. Þegar aldurinn færðist yfir Sjöfn þurfti hún að glíma við heilsuleysi en með seiglu og æðru- leysi og miklum stuðningi frá börnum sínum tókst henni að búa ein lengi vel en síðustu árin bjó hún að dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu að Hvammi á Húsavík. Hún var ávallt höfðingi heim að sækja, létt í lund og naut þess að vera innan um fólk. Sjöfn hefur nú kvatt eftir langa og frjósama ævi, sjálfsagt södd líf- daga. Eftir sitja hlýjar minningar um þessa góðu og tryggu frænku. Megi minning hennar lifa. Lárus Ásgeirsson. Sjöfn Jóhannesdóttir Ég og amma vor- um alltaf nánar. Hún lagði mikið í sambandið okkar, mikið sem ég er henni þakklát. Stundirnar í Klukkuberginu voru margar og dásamlegar. Við bök- uðum mömmubrauð, uppskrift sem amma fékk mömmu til að skrifa á blað fyrir sig stuttu áður en hún dó. Ástarpungarnir henn- ar ömmu voru bestir, ég get kall- að fram lyktina samstundis, þá sat ég á eldhúsborðinu og horfði á hana rúlla ástarpungunum upp í lófanum með skeið og skellti þeim svo í feitina af mikilli fag- mennsku. Mikið var um bakstur og huggulegar stundir uppi í rúmi með ömmu sem gjarnan nuddaði tásurnar, klóraði haus- inn eða teiknaði á andlitið með fingrinum. Á meðan ég lá í dekr- inu á brjóstinu hennar hlustaði ég á sögurnar hennar. Og nóg átti hún af þeim. Allt sannar sögur nógu vel kryddaðar til að gera þær að góðum skemmtisögum. Ævintýrakonan Binna hékk ekki heima alla daga. Við þurft- um auðvitað að hlaupa um allar trissur helst með smá látum. Í sund – amma kom með í renni- brautina, fjöruferðir, með ömmu voru þær á brókinni úti í sjó með þara á hausnum, enda mikilvægt Bryndís Sigurðardóttir ✝ Bryndís Sig-urðardóttir fæddist 16. júlí 1929. Hún lést 10. desember 2016. Útför Bryndísar var gerð 21. desem- ber 2016. að sprella. Ég fékk að kynnast vinkon- um hennar sem ekki eru af verri endan- um. Við fórum á skauta, í sveitaferð- ir og til útlanda. Listinn af skemmt- un er svo sannar- lega ekki tæmandi og flakkið gerði það að verkum að erfitt gat reynst að ná í okkur, farsímalausar á flakki. Amma vann líka hjörtu vina minna en margir þeirra komu með mér í heimsóknir í Klukku- bergið. Amma hélt fjörinu alltaf gangandi, hún var lífsglöð og sá björtu hliðarnar á lífinu. Mér er minnisstætt þegar ég hélt afmæl- isveislu um 13 ára. Þá mætti amma með fulla poka af allskonar fötum, bjartir litir í alls konar skemmtilegum stílum. Veislan varð að hópi stelpna íklæddum sturluðum kjólum með kókosboll- ur og rúsínubuff sem hún sótti í Kolaportið. Amma var virkilega þolinmóð, hún reyndi alltaf að skilja mig og án þess að segja of mikið eða skammast: „æi Brynja mín“ var nóg. Nú kveð ég stóra blómið mitt, þennan risa karakter sem hún amma var. Ég mun hlakka til að hitta hana í hinni víkinni eins og hún orðaði það. Ég mun minnast hennar og segja sögur af henni við alla sem heyra vilja. Hún kenndi mér svo margt, jákvæðn- in, orkan, leitin að lífinu í sinni bestu mynd.Hún mun alltaf fylgja mér. Brynja Jónsdóttir. ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta athofn@athofn.is - www.athofn.is ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919 Inger Steinsson Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Þjónusta ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD              Uppl. í s: 788 8870 eða murumogsmidum@murumogsmidum.is Múrum og smíðum ehf Smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.