Morgunblaðið - 23.12.2016, Page 32
32 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016
)553 1620
Lauga-ás hefur
frá 1979 boðið
viðskiptavinum
sínum upp á úrval
af réttum þar sem
hráefni, þekking
og íslenskar
hefðir hafa verið
höfð að leiðarljósi.
Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
laugaas@laugaas.is • laugaas.is
Við bjóðum m.a. upp á:
Súpur
Grænmetisrétti
Pastarétti
Fiskrétti
Kjötrétti
Hamborgara
Samlokur
Barnamatseðil
Eftirrétti
Guðbjörg Theo-dórsdóttir rekurbílasöluna K.
Steinarsson ásamt
eiginmanni sínum,
Kjartani Steinarssyni,
en hún á 50 ára afmæli
í dag. „Ég er viður-
kenndur bókari og svo
er ég launafulltrúi hjá
fyrirtækinu, sendill,
ræstitæknir og allt sem
þarf.“
K. Steinarsson er
með umboð fyrir Öskju
og Suzuki á Suður-
nesjum og selur m.a.
Kia og Mercedes-Benz.
„Við seljum einnig not-
aða bíla og erum í góðu
samstarfi við Blue Car
Rental. Yfirleitt hefur
desember verið rólegur
í gegnum árin en það
hefur þó verið nóg að
gera í mánuðinum á
þessu ári og þetta ár er
allt búið að vera mjög
gott.
Áhugamál mín eru
fjölskyldan og svo fer
ég í jóga. Ég les mikið
og bíð spennt eftir því að fá nýjustu bækurnar bæði í afmælisgjöf
og jólagjöf.“
Guðbjörg ætlar að vera með opið hús fyrir ættingja og vini, en
það er föst venja hjá henni. „Ég er með opið hús frá hádegi og
fram eftir kvöldi, fólk er að kaupa jólagjafir og í matinn og kemur
hingað við. Ég ætla að leggja aðeins meira í veitingarnar núna en
venjulega í tilefni stórafmælisins.“
Jólahaldið verður með hefðbundnum hætti hjá Guðbjörgu. „Við
verðum heima og eftir að eldri drengurinn flutti að heiman til
Hafnarfjarðar þá kíkjum við á hann og ömmudrengina á aðfanga-
dagskvöld. Þetta er svo stutt að fara, 25 mínútna akstur.“
Synir Guðbjargar og Kjartans eru Theodór, f. 1988, sambýlis-
kona hans er Elva Björk Traustadóttir, og Sigtryggur, f. 1990.
Ömmudrengirnir eru Hjörvar Breki, f. 2014, og Kjartan Trausti, f.
2016.
Nóg að gera í bílasöl-
unni í mánuðinum
Guðbjörg Theodórsdóttir er fimmtug í dag
Jólatréð skreytt Hjörvar Breki setur jóla-
stjörnu á tréð með aðstoð frá Guðbjörgu. G
uðmundur Ingi Leifsson
fæddist í Hafnarfirði
23.12. 1946 en ólst upp í
Reykjavík. Hann var
tíu sumur í sveit hjá
föðurfólki sínu á Hjaltastöðum í
Skagafirði, Þorsteini, föðurbróður
sínum, og Sigríði Márusdóttur, konu
hans.
Á unglingsárunum tók Guð-
mundur þátt í kristilegu starfi, sat í
stjórn Kristilegra skólasamtaka og
var ritstjóri Kristilegs skólablaðs og
starfaði auk þess nokkur sumur í
sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi á
námsárunum.
Guðmundur lauk kennaraprófi og
stúdentsprófi frá Kennaraskóla Ís-
lands 1968, hóf þá nám við Norsk
Lærerakademi í Bergen og síðan við
Óslóarháskóla í uppeldis- og
kennslufræðum og kristinfræðum.
Að loknu námi í Noregi, árið 1974,
varð Guðmundur námsstjóri í skóla-
rannsóknardeild menntamálaráðu-
neytisins við gerð námskrár og þró-
un námsefnis í samfélagsfræði, í
samvinnu við „Samfélagsfræðihóp-
inn“ undir leiðsögn dr. Wolfgangs
Edelstein.
Haustið 1978 varð Guðmundur
skólastjóri við Grunnskólann á Hofs-
ósi, varð síðan fræðslustjóri Norður-
landsumdæmis vestra á Blönduósi
1982 og þar til embætti fræðslu-
stjóra voru lögð niður 1996. Hann
var stundakennari við Fósturskóla
Íslands í uppeldis- og sálfræði og við
guðfræðideild HÍ í trúarlífsuppeldis-
fræði.
Haustið 1997 varð Guðmundur
skólastjóri Dalbrautarskóla. Sá skóli
starfaði á vegum Barna- og ung-
lingageðdeildar Landspítalans.
Guðmundur Ingi Leifsson, fyrrv. fræðslustjóri – 70 ára
Frá brúðkaupi Laufeyjar Fríðu F.v.: Helga Rut, Anna Kristín, afmælisbarnið, Laufey Fríða, Elín og Dóra Guðrún.
Nýtti hesta í meðferð
við hegðunarvanda
Riðið útt í Árbliki í Grímsnesi Guðmundur Ingi er hér með Önnu Kristínu,
dóttur sinni, og fjórum yngstu afastelpunum á baki öldungnum Funa.
Skúli Norðdahl,
fyrrv. verkamaður
hjá Fossi og síðar
hjá Ístex, er sjö-
tugur í dag.
Árnað heilla
70 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Ari Björn Jónsson fæddist 16. júní 2016 kl. 15.40. Hann vó 3.854 g og
var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Guðrún Indriðadóttir og Jón Valdimarsson.
Nýir borgarar
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frámerkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
stórafmælum, hjónavígslum, barns-
fæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón