Morgunblaðið - 23.12.2016, Side 35

Morgunblaðið - 23.12.2016, Side 35
DÆGRADVÖL 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016 FANGAR HINN SANNA ANDA JÓLANNA Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert sérstaklega sannfærandi í samræðum þínum við samstarfsfélaga og ættingja. Stjórnendur veita þér aukna ábyrgð því þú hefur sýnt það og sannað að þér er treystandi. 20. apríl - 20. maí  Naut Viss atburður mun hafa djúp áhrif á þig og gera þér ókleift um skeið að sjá hlutina í sínu rétta ljósi. Allir sem hitta þig sjá að þar fer manneskja sem veit hvað hún vill og hvert hún stefnir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Notaðu daginn til þess að taka til og þrífa í skúmaskotum heimilisins. Það get- ur tekið á að sinna öllum svo vel sé. Ekki láta plata þig í jólagjafainnkaupum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Horfðu fram hjá því fólki sem reynir að espa þig upp því það er ekki þess virði að kasta perlum fyrir svín. Sýndu skoðunum annarra virðingu þótt þú sért ósammála þeim. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ættir að hafa það í huga í dag að þótt áhyggjur geti haldið fyrir okkur vöku þá skila þær yfirleitt litlum árangri. Reyndu að ala ekki á ótta annarra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ekki flýta þér um of og ekki borða í óhófi. Allur þinn tími er skipulagður næstu vikur. Taktu bara einn dag í einu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú æðir áfram án þess að skeyta um áhrif þess á fólkið í kringum þig gæti það ógnað vináttu þinni við einhvern. Nú væri ráð að virkja fjölskylduna til góðra verka. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ýmsar breytingar sem nú eru að ganga yfir fara í taugarnar á þér. Mundu bara að ekki er allt sem sýnist. Þú þráir að komast í kyrrð og ró úti í sveit. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vinir þínir bjóða þér að gera hluti sem hljóma ekki vel í fyrstu. Notaðu tækifær- ið næst þegar þú átt lausa stund og taktu til hendinni heima. 22. des. - 19. janúar Steingeit Fyrrverandi kærastar birtast hugs- anlega óvænt í lífi þínu. Reyndu að láta ekki á neinu bera og brostu hringinn. Ekki er allt gull sem glóir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér finnst þú enn eiga margt ógert en mundu að hlutum má auðveldlega skjóta á frest. Þér léttir þegar þú færð réttar upplýsingar um nágrannann. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert full/ur af orku og gætir auð- veldlega sigrað keppni í bjartsýni. Allt er best í hófi. Það á vel við að birta Þorláks-drápu eftir Ólaf Stefánsson á þessum dýrðardegi: Það hermt var um heilagan Þorlák, heimamann suður á landi, sem þreyði þar flest sín ár, að aldrei hann blótaði veðri né vindi, hver var þó ei alltaf smár. Hann varð líka helgur maður, en af heimslyst miður kunnur, þó bættist í búr hans sár, af bruggi, þeim fínasta miði, sem gerði sig ár eftir ár. Því biskupinn blessaði mjöðinn, búhnykk á Skálholtsstað. Nú leggur enginn lengur í ker. löggjafinn bannar það. Í „Sögu daganna“, bók Árna Björnssonar, er margvíslegan fróð- leik að finna um Þorláksmessu. Ár- ið 1876 héldu Íslendingar í Kaup- mannahöfn samkomu á Þorláks- messu og var sunginn níu erinda borðsálmur eftir Björn M. Olsen undir laginu „Svend Tveskæg havde sig en Mand“ og er þetta annað erindið: Já – heitum á þann mæta mann sem mítur bar og fjölmörg undur áður vann um aldirnar. Hann benti forðum bljúgri sjót á betra heim og gladdi hugum hrellda snót og hryggan beim. Vér heitum á Þorlák hinn helga. Stúdentafélag Reykjavíkur hélt samkomu á Þorláksmessu 1897. Þar var sungið kvæði undir sama lagi og „Máninn hátt á himni skín“ og munu tvö síðustu erindin hafa valdið hneykslan: Einn: Hampar glasi helgi Jón hellir drjúgum á líka Gvendur góði Guði sjálfum hjá. Allir: Drekka þar dýrlingar dátt er allt og kátt; heilags Þorláks hátíð er þar haldin í nátt. Einn: Bindindið er bannað þar biskupunum þeim; drottinn styður drukkna dýrlingana heim. Allir: Helgir menn hjálpi oss himninum að ná. Í herrans nafni helgan Þorlák heitum við á. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Drápa og góðgæti á Þorláksmessu Í klípu „FÁÐU ÞÉR SMÁKÖKU. ÉG SINNI SJÚKLINGNUM FREKAR EN VEIKINDUNUM.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HÁLSHNYKKUR!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... erfið þegar hlutirnir ganga ekki upp eins og þú vildir. GRETTIR, HVAÐ SEGIRÐU UM ÞETTA FYRIR LÍSU?… HRUKKUKREM Í GJAFAÖSKJU! ÞÚ MUNT DEYJA EINMANA, EINMANA GAMALL MAÐUR HELGA, ÉG VAR AÐ KOMA ÚR SEX MÁNAÐA VÍKING FRÁ ENGLANDI SEINT Í NÓTT… ÉG HELD ÞAÐ SÉ KOMINN TÍMI TIL AÐ RÁÐA GARÐYRKJU- MANN! Tap er aldrei ofarlega í huga Vík-verja enda er hann keppnis- maður og tekur þátt í keppni til þess að sigra. Eftir að hafa kynnst sigurtilfinningunni vill maður helst ekki lenda í öðru eða þriðja sæti, eins og Heimir Guðjónsson, þjálfari Íslandsmeistara FH, komst að orði í viðtali við Moggann í fyrradag. x x x A er ekki sjálfgefin einkunn ískóla, ekki frekar en sigur í keppni. Víkverji tók þátt í jóla- bókabingói í vikunni. Spilaðar voru tíu umferðir, þar sem vinningur var veittur fyrir allar réttar tölur í einni lóðréttri röð hverju sinni. Nokkrar aukatölur voru dregnar út í hverri umferð. Ellefta umferð var ein lóðrétt röð og tólfta umferð tvær lóðréttar raðir þar sem tölur úr elleftu umferð giltu áfram. Loka- umferðin var svo allt spjaldið. x x x Penninn skráði samviskusamlegaallar upplesnar tölur. Dregnar voru út 73 tölur og veittur 41 aðal- vinningur en í mörgum tilfellum voru nokkrir með bingó á sama tíma og fengu þá aðrir aukavinning. x x x Allir á stóru borði Víkverja nemahann og annar til fengu vinning og jafnvel fengu nokkrir fjarstaddir vinninga. x x x Rausnarlega var veitt, allarhelstu jólabækurnar í boði fyrir utan konfekt og annað góðgæti. Þeir sem ekki fengu vinning drógu tölu og fengu bók með viðkomandi tölu að launum. Víkverji dró töluna 19 og fagnaði sem sigurvegari, því hærri tölu er ekki hægt að fá (1+9=10). x x x Innileg fagnaðarlæti brutust út íkolli Víkverja en aðrir viðstaddir létu sér fátt um finnast. Hann bar samt höfuðið hátt enda gekk hann úr salnum með hæstu einkunn og góða bók og hafði látið sig hafa það að eyða hádeginu í tóma vitleysu, í stað þess að vinna, með það að leið- arljósi að á jólum er aðalatriðið að vera með. vikverji@mbl.is Víkverji Varpið allri áhyggju ykkar á hann því að hann ber umhyggju fyrir ykkur. (I Pét. 5:7)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.