Morgunblaðið - 23.12.2016, Side 37

Morgunblaðið - 23.12.2016, Side 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016 Hamlet litla heillaðist ég af persónu Ófelíu, sem í okkar verki var barn. Hún þurfti að glíma við erfiða hluti, svo sem vanrækslu og rof af ýmsu tagi, sem ég tengdi sterkt við,“ segir Kristjana og bendir á að allir þurfi á einhverjum tímapunkti að gera upp líf sitt og æsku. „Mér fannst mikil- vægt að nota tónlistina til að um- breyta sorg í gleði og skapa fegurð úr ljótleika. Þess vegna fannst mér nauðsynlegt að ljúka plötunni á „Faðmlagi“ því kærleikurinn og sam- ræður eru lausnin á svo mörgum vandamálum,“ segir Kristjana. Spurð hvort það hafi verið með- vituð ákvörðun að skapa plötunni mjúkan og melankólískan hljóm svar- ar Kristjana því játandi. „Í samtali mínu við Daða lagði ég áherslu á að við yrðum að vera óhrædd við að stíga alla leið inn í fegurðina og skapa draumkenndan hljóm. Það var samt aldrei neinn ákveðinn hljóðheimur sem við sóttumst eftir, heldur þróað- ist þetta á löngum tíma. Stundum fengu trommurnar og gítarinn að túlka ofbeldið og ljótleikann en um- gjörðin er samt alltaf falleg,“ segir Kristjana og hrósar í hástert lista- fólkinu sem leikur með henni á plöt- unni. „Þeir eru frábærir tónlistar- menn og miklir ljúflingar sem gott er að ræða málin við. Þegar manni ligg- ur eitthvað á hjarta heppnast hlut- irnir. Og alltaf þegar maður hefur kærleikann og samtalið með sér í för getur manni ekki mistekist.“ Ýmislegt á teikniborðinu Kristjana segir ætlunina að halda útgáfutónleika í febrúar á næsta ári. „Það helgast af því að það hefur verið svo mikið að gera undanfarið,“ segir Kristjana, en nýverið kom út hljóm- diskur með tónlist Kristjönu úr Bláa hnettinum auk þess sem hún hefur verið að leika með Bergi Þór og Hall- dóru Geirharðsdóttur í trúðasýning- unni Jesú litla sem tekin var til sýn- inga í sjötta sinn um jól frá því hún var frumsýnd fyrir átta árum. Loka- sýningin í ár verður á annan í jólum. Spurð hvað sé fram undan hjá sér segir Kristjana ýmislegt vera á teikniborðinu, bæði í tónlistinni og leiklistinni. „Blái hnötturinn verður áfram í sýningu og ég þarf að sinna honum. Svo er ég að leika í Hamlet litli sem er skólasýning Borgarleik- hússins fyrir ellefu ára borg höfuð- borgarsvæðisins,“ segir Kristjana, sem reglulega kennir tónlistarspuna við tónlistardeild LHÍ og er vikulega með masterklass-námskeið fyrir söngdeild FÍH. „Mér finnst mér bera skylda til að miðla af reynslu minni.“ Ljósmynd/Baldur Kristjánsson Bambaló „Þegar maður hefur kærleikann og samtalið með sér í för getur manni ekki mistekist,“ segir tónlistarkonan Kristjana Stefánsdóttir. Saga þarf ekki að vera löng tilað vera góð. Sterk. Eft-irminnileg. Eitt þekktastadæmið er auðvitað sex orða sagan, For sale: baby shoes, never worn, sem gjarnan er eignuð Hem- ingway en einhverjir sem rannsakað hafa segja það rugl og rekja hana lengra aftur. Höfundurinn þá óþekktur, sýnist mér við lauslega at- hugun. Ef einhver á Íslandi kann þá list að segja sögu í fáum orð- um er það Gyrð- ir Elíasson. Það hefur hann margoft sýnt í smásagnasöfn- um sínum og stuttum skáld- sögum síðast- liðna áratugi. Og það gerir hann enn og aftur í nýjasta verki sínu, Langbylgju, sem hefur undirtitilinn „smáprósar“. Hér á landi er svolítið á reiki hvaða nafn- giftir eru notaðar á stutta, skáldaða, óbundna texta – örsaga, prósaljóð, smáprósi og vinjetta eru þau sem oftast sjást – en látum það liggja á milli hluta og köllum textana hér ein- faldlega sögur. Hundrað og fjórar talsins eru þær; flestar sagnanna ein til tvær síður, nokkrar aðeins lengri eða styttri, en sú lengsta rétt fyllir fimm síður í hinu litla broti bók- arinnar. Frásagnaraðferðin er ýmist í fyrstu eða þriðju persónu, tvær sagnanna þó í annarri persónu, og finnst manni val höfundar á sjónar- horni ávallt það rétta. Tímaramminn spannar frá um það bil seinna stríði og fram yfir árþúsundamótin (tvær sagnanna væri svo sem hægt að staðsetja í nálægri framtíð). „Glópa- gull“ er sú sem helst er hægt að fast- setja á fyrsta áratug þessarar aldar, þar sem Gyrðir speglar nútíðina á af- skaplega skemmtilegan hátt í fortíð- inni; strand hins hollenska gullskips á Skeiðarársandi árið 1667 er látið kallast á við bankahrunið þegar „þjóðarskúta okkar sjálfra […] strandaði, en dró um leið niður með sér þúsundir ellilífeyrisþega suður í hinni láglendu paradís túlípananna.“ Eins og búast má við í ljósi umfjöll- unarefnis ber gullát góðærisins á góma, sem inniheldur merkilega margt á einungis tveimur síðum. Sama má segja um aðrar af betri sögum sagnasafnsins, t.d. „Blóð- appelsínur“ þar sem skordýr stækka þar til mennirnir fá ekki við ráðið, en fengi ég einhverju ráðið krefði ég skáldið um meira af þeirri fantasíu. Allra stysta sagan er sjálf titilsagan, „Langbylgja“, með undirtitlinum „mínímalísk glæpasaga“ (ein af nokkrum slíkum í bókinni), þar sem segir frá konu sem snýr hakkavél, með samanbrotin jakkaföt sér við hlið og í útvarpinu ómar frétt um mann sem saknað hefur verið í þrjá daga. Aðeins fimmtíu og eitt orð er sagan sú og strax á eftir fylgir önnur með táknrænan titil, „Án orða“, sem þó er ívið lengri. Tómleiki og undirliggjandi ein- manakennd seytlar oft á milli lína í verkum Gyrðis. Hér má finna slíkt, en ekki er það ráðandi hreyfiafl, heldur þvert á móti finnst mér höf- undurinn bregða meira á leik en áður. Stundum um of, þegar orða- leikir teygja sig full langt, og kannski hefur skáldið ákveðið að leyfa sér það einu sinni í smá til- raunamennsku, í bók sem ber þenn- an titil. Að því sögðu skal það fært til bókar að oft hló ég eða brosti breitt, t.d. þegar sögumaður í „Gráma“ kveðst ekki geta opnað blöðin án þess að alvitringarnir þrír birtist með bull, ergelsi og firru, og yfir af- drifum danska svínabóndans í fyrstu sögu bókarinnar sem dettur út úr farþegaþotu og lendir inni í stofu hjá þýskum hjónum í úthverfi Berlínar, og á því ekki heimangengt aftur til svínanna sem sakna húsbóndans. Að byrja bókina á svínabónda gefur tón- inn fyrir dreifbýlissögusviðið sem dreifist víða um síðurnar, og ekki síð- ur öll þau dýr af ýmsum toga sem þar leynast – ferfætlingar, sexfætl- ur, áttfætlur og lappalausar verur. Erlenda lofthelgin er aftur á móti ekki lýsandi fyrir umgjörð sagnanna, verandi ein örfárra sem gerast utan íslenskra landsteina. Auk dýranna ganga bækur annarra höfunda ljós- um logum um síðurnar; þar er einna eftirminnilegust bók sem virðist þó uppdiktuð af hendi Gyrðis, mat- reiðslubókin Fylltir svanir, sem eignuð er Jung Chang, höfundi hinn- ar þekktu skáldsögu Villtir svanir. Sams konar stórfyndnum útúrsnún- ingi á þekktum bókatitlum, og upp- spuna annarra bóka og jafnvel höf- unda, er sáldrað yfir það gúmmelaði sem þetta sagnasafn er löngum stundum. Í sögunni „Tveir gráir skuggar“ nær þetta hámarki. Kannski segir það meira um les- andann en örsögurnar, en mér fannst þær lengri almennt betri, til dæmis „Grasaferð II“, „Minning um hund“ og „Auðmagnið“. Sú fyrst- nefnda í senn fögur og fyndin og veltir upp athyglisverðri pælingu um hvort náttúrufræðingurinn Jónas Hallgrímsson hefði gefið sig að skáldskapnum af því afli sem raunin varð ef faðir hans hefði ekki drukkn- að. En stuttar eða langar – frábærar, mjög góðar eða sæmilegar – þegar allt kemur til alls verður ekki annað sagt en örsögurnar í Langbylgju veiti tryggum lesendum Gyrðis það sem þá fýsir í. Mörgum í þeim hópi finnst hreinlega ólíft í skammdeginu sem nú liggur yfir landinu, fái þeir ekki hið minnsta einn bókarskammt af skáldskap hans í taugakerfið. Þótt efnið sé stundum gráleitt við fyrstu sýn glampar á það í meðhöndlun skagfirska skáldsins. Þeim sem fá svima, ógleði eða önnur ónot ef sögur eru ekki til lykta leiddar, allar lausir endar hnýttir og þess háttar, er ráð- lagt að stilla á aðrar bylgjur. Skáldið Gyrðir „kann þá list að segja sögu í fáum orðum…“ Gráir og glampandi skuggar Örsögur Langbylgja bbbbn Eftir Gyrði Elíasson. Dimma, 2016. 270 bls. innb. KRISTJÁN HRAFN GUÐMUNDSSON BÆKUR Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Mán 26/12 kl. 20:00 137. s Lau 14/1 kl. 20:00 141. s Fim 26/1 kl. 20:00 145. s Fös 6/1 kl. 20:00 138. s Sun 15/1 kl. 20:00 142. s Lau 28/1 kl. 20:00 146. s Sun 8/1 kl. 20:00 139. s Lau 21/1 kl. 20:00 143. s Sun 29/1 kl. 20:00 147. s Fim 12/1 kl. 20:00 140. s Sun 22/1 kl. 20:00 144. s Janúarsýningar komnar í sölu! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Mán 26/12 kl. 13:00 24.s. Lau 21/1 kl. 13:00 28.s Lau 11/2 kl. 13:00 32. s Sun 8/1 kl. 13:00 25.s Sun 22/1 kl. 13:00 29.s Sun 19/2 kl. 13:00 33. s Lau 14/1 kl. 13:00 26.s Sun 29/1 kl. 13:00 30. s Sun 15/1 kl. 13:00 27.s Lau 4/2 kl. 13:00 31. s Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Njála (Stóra sviðið) Mið 4/1 kl. 20:00 Lau 7/1 kl. 20:00 Síðasta s. Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur. Síðustu sýningar. Ræman (Nýja sviðið) Mið 11/1 kl. 20:00 Frums. Sun 15/1 kl. 20:00 3. sýn Fim 19/1 kl. 20:00 5. sýn Lau 14/1 kl. 20:00 2. sýn Mið 18/1 kl. 20:00 4. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 6. sýn Nýtt verk sem hlaut Pulitzer-verðlaunin 2014! Jólaflækja (Litli svið ) Mán 26/12 kl. 13:00 Aukas. Síðasta sýning. Jesús litli (Litli svið ) Mán 26/12 kl. 20:00 aukas. Síðasta sýning. Hún Pabbi (Litla svið ) Fös 6/1 kl. 20:00 Frums. Fös 13/1 kl. 20:00 3. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 5 sýn Lau 7/1 kl. 20:00 2. sýn Lau 14/1 kl. 20:00 4. sýn Lau 21/1 kl. 20:00 6. sýn Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning Salka Valka (Stóra svið) Mið 28/12 kl. 20:00 Fors. Mið 18/1 kl. 20:00 5. sýn Mið 1/2 kl. 20:00 11. sýn Fim 29/12 kl. 20:00 Fors. Fim 19/1 kl. 20:00 6. sýn Fim 2/2 kl. 20:00 12. sýn Fös 30/12 kl. 20:00 Frums. Fös 20/1 kl. 20:00 7. sýn Fös 3/2 kl. 20:00 13. sýn Fim 5/1 kl. 20:00 2. sýn Þri 24/1 kl. 20:00 8. sýn Mið 8/2 kl. 20:00 14. sýn Fös 13/1 kl. 20:00 3. sýn Mið 25/1 kl. 20:00 9. sýn Fim 9/2 kl. 20:00 15 sýn Þri 17/1 kl. 20:00 4. sýn Fös 27/1 kl. 20:00 10.sýn Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Djöflaeyjan (Stóra sviðið) Fös 30/12 kl. 19:30 32.sýn Sun 15/1 kl. 19:30 34.sýn Fim 26/1 kl. 19:30 36.sýn Sun 8/1 kl. 19:30 33.sýn Fös 20/1 kl. 19:30 35.sýn Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur! Maður sem heitir Ove (Kassinn) Fös 13/1 kl. 20:00 Akureyri Fim 26/1 kl. 19:30 34.sýn Sun 5/2 kl. 19:30 37.sýn Lau 14/1 kl. 20:00 Akureyri Fös 27/1 kl. 19:30 35.sýn Sun 22/1 kl. 19:30 aukasýn Lau 4/2 kl. 19:30 36.sýn Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik! Óþelló (Stóra sviðið) Mán 26/12 kl. 19:30 Hátíðarsýning Lau 14/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 3/2 kl. 19:30 9.sýn Fim 29/12 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/1 kl. 19:30 6.sýn Fim 9/2 kl. 19:30 10.sýn Lau 7/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 17/2 kl. 19:30 11.sýn Fös 13/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 2/2 kl. 19:30 8.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare! Gott fólk (Kassinn) Fös 6/1 kl. 19:30 Frums Fim 12/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 19/1 kl. 19:30 5.sýn Lau 7/1 kl. 19:30 2.sýn Lau 14/1 kl. 19:30 4.sýn Lau 21/1 kl. 19:30 6.sýn Nýtt og ágengt íslenskt verk um ungt fólk, ástarsambönd, ofbeldi og refsingu Gísli á Uppsölum (Kúlan) Fös 13/1 kl. 19:30 Mið 18/1 kl. 19:30 Sun 15/1 kl. 14:00 Fim 19/1 kl. 19:30 Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins. Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 12/1 kl. 20:00 1.sýn Lau 14/1 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/1 kl. 20:00 9.sýn Fös 13/1 kl. 20:00 2.sýn Fim 19/1 kl. 20:00 6.sýn Lau 21/1 kl. 22:30 10.sýn Fös 13/1 kl. 22:30 3.sýn Fös 20/1 kl. 20:00 7.sýn Fim 26/1 kl. 20:00 11.sýn Lau 14/1 kl. 20:00 4.sýn Fös 20/1 kl. 22:30 8.sýn Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 22/1 kl. 13:00 Frums Sun 5/2 kl. 13:00 3.sýn Sun 29/1 kl. 13:00 2.sýn Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa! Lofthræddi örninn Örvar (Kúlan) Fim 29/12 kl. 17:00 Lau 14/1 kl. 15:00 Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki. Íslenski fíllinn (Brúðuloftið) Lau 4/2 kl. 13:00 Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00 Lau 4/2 kl. 15:00 Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00 Sýningum lýkur í nóvember! ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.