Morgunblaðið - 23.12.2016, Page 44
FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 358. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Alibaba aftur á svarta listann
2. Gaman að fá kvenlegar línur aftur
3. Þyrlan kölluð út eftir alvarlegt …
4. Björk lætur fjölmiðla heyra það
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Söngkonan Jóhanna Guðrún syng-
ur á jólatónleikum í Vídalínskirkju í
kvöld kl. 20. Með Jóhönnu verður
gítarleikarinn Davíð Sigurgeirsson og
hyggjast þau flytja sín uppáhalds
jólalög í nýjum útsetningum.
Flytja uppáhalds jóla-
lög í nýjum útgáfum
Hljómsveitin
Árstíðir verður
með tvenna Þor-
láksmessu-
tónleika í dag í
Fríkirkjunni í
Reykjavík, kl. 16
og kl. 21.
Sérstakur gest-
ur á tónleikunum
verður Magnús Þór Sigmundsson en
leikin verða frumsamin lög í bland við
sérvalið jóla- og hátíðaefni.
Miðar fást á www.enter.is
Þorláksmessutón-
leikar Árstíða í kvöld
Jólastund verður haldin í Dómkirkj-
unni kl. 20:30 í kvöld. Á efnisskrá eru
hátíðleg sönglög og dúettar úr ís-
lenskum þjóðlagaarfi, óperum og
óratoríum í bland við sí-
gild amerísk jólalög.
Fram koma Hrafn-
hildur Árnadóttir
Hafstað, sópran, Guja
Sandholt, mezzo-
sópran og Matt-
hildur Anna
Gísladóttir pí-
anóleikari.
Hátíðleg jólastund í
Dómkirkjunni í kvöld
Á laugardag (aðfangadag jóla) Norðan og norðaustan 8-15 m/s,
en vestan 5-10 á S- og V-landi. Frost víða 0 til 5 stig.
Á sunnudag (jóladag) Norðaustanhvassviðri eða -stormur og
talsverð slydda eða snjókoma, en rigning á Austfjörðum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi norðaustanátt, 18-23 m/s með
snjókomu eða slyddu A-til og hlýnar þar, mun hægari og él V-til.
VEÐUR
Aron Pálmarsson og
knattspyrnumaðurinn Gylfi
Þór Sigurðsson eru báðir á
meðal tíu efstu manna í
kjöri Samtaka íþróttafrétta-
manna á íþróttamanni árs-
ins í sjötta skipti á sjö ár-
um.
Listi yfir þá 10 íþrótta-
menn sem eru í efstu sæt-
unum er birtur í dag. Eygló
Ósk Gústafsdóttir, íþrótta-
maður ársins 2015, er
einnig á listanum. »2
Tveir með í sjötta
sinn á sjö árum
„Ég á von á því að spila út tímabilið
með Þór og klára skólann í vetur. Þá
legg ég tilbúnari af stað út,“ segir
Tryggvi Snær Hlinason, körfuknatt-
leiksmaður sem slegið hefur í gegn
með Þór á Akureyri. Tryggvi Snær
stefnir á atvinnumennsku í
körfuknattleik eftir
þetta leiktímabil.
Hann hefur lokið
iðnnámi í raf-
virkjun og mun
einnig ljúka stúd-
entsprófi áður en
hann heldur á
vit ævintýr-
anna. »1
Tryggvi Snær stefnir á
atvinnumennsku í vor
„Fótboltinn er aðeins öðruvísi en á
Ítalíu. Hér er minna um „taktískar“
æfingar og þetta snýst meira um lík-
amsstyrk. Maður þarf að vera sterk-
ur, líkamlega og einnig andlega, til að
spila yfir 40 leiki á tímabili. Ég hef
aldrei spilað svona marga leiki á
tímabili, spilaði mest 22 leiki á tíma-
bili á Ítalíu,“ segir Hörður B. Magnús-
son, liðsmaður Bristol City. »4
Þarf að vera sterkur, lík-
amlega og andlega
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þegar metsölulistar innlendra bóka eru skoðaðir
má sjá að Ragnar Helgi Ólafsson, myndlistar-
maður og skáld, hefur hannað kápur margra mest
seldu bókanna og reyndar einnig kápur fjölda
annarra bóka. Hann lítur samt ekki á sig sem
metsöluhöfund og gerir greinarmun á hönnun og
list. „Ég lít á það að hanna bókakápur sem þjón-
ustustarf og tek það alvarlega vegna þess að fólk
hefur lagt mikla vinnu í skrifin og ég reyni því að
gera mitt besta til að finna réttu kápurnar,“ segir
hönnuðurinn og listamaðurinn.
Petsamo eftir Arnald Indriðason, Aflausn eftir
Yrsu Sigurðardóttur, Drungi eftir Ragnar Jón-
asson, Jón lærði og náttúrur náttúrunnar eftir
Viðar Hreinsson og Skegg Raspútins eftir Guð-
rúnu Evu Mínervudóttur eru dæmi um bækur,
sem eru pakkaðar inn í kápu eftir Ragnar Helga,
en hann hannaði kápur á milli 20 og 30 innlendar
bækur á árinu og hefur sent frá sér yfir 500 bóka-
kápur undanfarin 20 ár, bæði á bækur hér heima
og erlendis. „Það er ábyrgðarhluti að hanna bæk-
ur en ég lít ekki svo á að ég sé persónulega í fimm
efstu sætum bóksölulistans,“ segir hann.
Margar skissur á fyrstu stigum
Hönnuðurinn fær venjulega handrit eða
vinnsluhandrit til þess að átta sig á efni sögunnar
og kynna sér andrúmsloft frásagnarinnar áður en
hann hefst handa. „Öðru gegnir með ævisögur og
fræðibækur, því þá þarf ég ekki endilega að lesa
allar bækurnar þótt gott sé að finna að minnsta
kosti lyktina af stílnum og textanum,“ segir hann.
Ragnar Helgi segist taka nótur við lesturinn og
svo setjist hann niður með hvítt blað. Á fyrstu
stigum geri hann margar skissur og beri þær und-
ir forleggjarann eða höfundinn enda hafi hann
ekki endilega lokaorðið um útlit verksins. Hann
segir umræðu um „réttustu“ bókakápuna mikil-
vægari en um „fallegustu“ kápuna. Sú síðar-
nefnda sé vafasöm iðja.
„Kápan verður hluti af listaverkinu, bókinni
sjálfri, og verður oft andlit verksins. Þess vegna
verður hún að endurspegla skrifin og segja satt
um verkið auk þess sem hún gegnir líka hlutverki
auglýsingar og er því markaðstæki. Því getur oft
myndast spenna í vinnunni, milli markaðs-
sjónarmiða og fagurfræðilegri atriða, vinnan felst
oft í því að finna jafnvægið á milli þessara þátta.“
Ragnar Helgi segir að bókarkápan gegni mikil-
vægu hlutverki til þess að staðsetja bókina fyrir
lesandann, hvernig bók sé um að ræða. Að finna
andblæ bókarinnar. „Stundum sér maður að
skáldsaga fær ljóðabókarlega kápu eða að ævi-
saga fær skáldsögukápu. Þá staðsetur kaupand-
inn bókina ekki rétt í huga sér.“
Vel heppnaðar kápur
Skýr tákn og spenna milli þeirra er oft merki
þess að vel hafi til tekist, að mati Ragnars Helga.
Hann nefnir kápuna á Afhjúpun eftir Yrsu. Titill-
inn sé sterkur og kápan vinni skipulega á móti
honum með því að mála yfir textann. „Þannig birt-
ist sjálfkrafa hugmyndaleg spenna og þessi virkni
finnst mér oft einkenna vel heppnaðar kápur.“
Fagurfræði er líka þáttur sem þarf að hafa í
huga, vinna með letur og leturgerðir til þess að
gera bókina áferðarfallega. „Mér finnst bestu
kápurnar vera þær þar sem þessi hugmyndalega
„dínamík“ er skýr og skörp,“ segir Ragnar Helgi.
Margar bókakápur skera sig úr. Ragnar Helgi
segir að til dæmis hafi verið gaman að gera kápur
á Heim til míns hjarta og Jarðnæði eftir Oddnýju
Eir Ævarsdóttur, fyrir nokkrum árum. Stolið frá
höfundi stafrófsins eftir Davíð Oddsson hafi opn-
að nýjar dyr. „Þá vann ég í fyrsta sinn einungis
með letur og hugmyndalega nálgun frekar en
hefðbundna myndskreytingu,“ segir hann og bæt-
ir við að kápan hafi þótt djörf á sínum tíma. Því
hafi hún verið send til höfundarins til að fá sam-
þykki hans og svarið hafi verið ánægjulegt og af-
dráttarlaust: „100%.“
Af nýútkomnum bókum tiltekur hann bók Við-
ars Hreinssonar um Jón lærða. „Ég sá um allt út-
lit bókarinnar á innsíðum og kápu, mikið verk og
skemmtilegt.“ Eins hafi verið gaman að vinna við
þrjár síðustu bækur Yrsu. „Ég held að það sé
einsdæmi í heiminum að hönnuður fái að setja
nafn metsöluhöfundar á kápuna og mála síðan yfir
það.“
Hannar kápur metsölubóka
Ragnar Helgi hittir
oftast í mark í samvinnu
við forlög og höfunda
Morgunblaðið/Ófeigur
Hönnuður Ragnar Helgi Ólafsson hefur hannað yfir 500 kápur undanfarna tvo áratugi.