Morgunblaðið - 27.12.2016, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.12.2016, Blaðsíða 10
Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er afskaplega gott að vera búin að fá þennan dýrgrip til Ís- lands. Ung frænka mín kom heim með hann í kjöltunni. Hún hélt á honum heim og hafði litla dreng- inn sinn í sætinu við hliðina í flug- vélinni,“ sagði Ásdís Elísabet Rík- arðsdóttir um fallega útskorinn ask eftir Ríkarð Jónsson föður hennar. Askurinn er nú kominn heim eftir nærri 90 ára vist í Dan- mörku og síðar Svíþjóð. Morgunblaðið greindi frá því 19. desember í fyrra að fornmunasali í Gautaborg í Svíþjóð væri með fag- urlega útskorinn ask til sölu. Á botn asksins var áletrun: „Íslensk- ur askur úr íslensku efni, íslensk vinna, íslenskur stíll. Ríkarður Jónsson 1927.“ Ásdís kvaðst ekki hafa haft hugmynd um tilvist asks- ins fyrr en hún las um hann í Morgunblaðinu. Hún og Ólöf tví- burasystir hennar voru fjögurra og hálfs árs þegar faðir þeirra skar gripinn út. Þær vildu eignast askinn til að setja hann á Ríkarðs- safn á Djúpavogi. Frænka þeirra systra, sem fyrr er nefnd, er búsett í Svíþjóð og sá um samskipti við fornmunasalann ytra fyrir þeirra hönd. Nokkur til- boð bárust í askinn, m.a. frá Dan- mörku, en svo fór að tilboði Rík- arðsdætra var tekið. Þar með var askurinn á leið heim en forn- gripasalinn hafði áður nefnt að eðlilegast væri að gripurinn yrði seldur til Íslands. Komu daglega á vinnustofuna Ásdís sagði að faðir hennar hefði verið með vinnustofu í bak- húsi að Laugavegi 1. Hann keypti Grundarstíg 15 í kringum árið 1927 og þar bjó fjölskyldan í 73 ár. Ríkarður flutti vinnustofu sína í ytri stofuna á Grundarstígnum. Þar var vinnustofa hans í mörg ár þar til byggt var við húsið. „Við komum á vinnustofuna hvern einasta dag og maður sá hvert einasta handtak. Hann var svo viss og vissi nákvæmlega hvar hvert einasta járn var í rekka fyrir ofan vinnuborðið. Pabbi hefði ekki verið svona mikilvirkur ef hann hefði ekki verið svona viss. Það var svo mikið sem kom frá hans hendi,“ sagði Ásdís. Ríkarður var með nema og að- stoðarmenn. Engu að síður fór hann sjálfur yfir hvern grip og hreinskar áður en gripurinn var afhentur. Þær Ólöf og Ásdís hafa verið vakandi fyrir því að kaupa muni eftir föður þeirra sem eru falir. Þær keyptu m.a. lágmynd eftir Ríkarð sem fréttist af til sölu í Góða hirðinum. Fást enn við útskurð Ríkarður Jónsson, myndhöggv- ari og myndskeri (f. 1888, d. 1977), og María Ólafsdóttir, eiginkona hans (f. 1883, d. 1967), eignuðust fjögur börn. Elstur var Ríkarður Már arkitekt, ævinlega kallaður Már. Hann var fæddur 1915 og lést aðeins 31 árs árið 1946 frá eiginkonu og þremur ungum börnum. Már lærði útskurð hjá föður sínum frá blautu barnsbeini og kenndi síðar útskurð í Reykja- vík. Næst var Björg Sóley, fædd 1918, dáin 2010. Hún var gift Pétri Þorsteinssyni lögfræðingi og áttu þau fjögur börn. Yngstar eru tvíburarnir Ólöf Margrét og Ásdís Elísabet, fæddar 14. júní 1922. Björg og Ólöf fengust báðar við útskurð á uppvaxtarárunum á Grundarstíg en Ásdís kvaðst hafa æft sig svo stíft á píanó að hún veiktist af sinaskeiðabólgu og sleppti útskurðinum. Sumir núlifandi í frændgarði og afkomendahópi Ríkarðs Jóns- Útskorinn dýrgripur kominn heim Morgunblaðið/Árni Sæberg Askurinn kominn heim Ásdís Ríkarðsdóttir vissi ekki af askinum fyrr en greint var frá tilvist hans í Morgunblaðinu fyrir rúmu ári síðan. Veggklukka Veggklukkuna seldi Ríkarður til Danmerkur. Frænka þeirra systra átti klukk- una og mælti svo fyrir að þær skyldu fá klukk- una eftir að hún væri öll.  Askur sem Ríkarður Jónsson skar út 1927 og gefinn var til Danmerkur er kominn til Íslands  Afkomendur Ríkarðs dreymir um að byggt verði nýtt safnhús yfir Ríkarðssafn á Djúpavogi 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016 Rolls-Royce Marine Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður Sími 569 2100 • hedinn.is Service Provider

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.