Morgunblaðið - 27.12.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.12.2016, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016 Ættarmót Um 30 álftir voru saman komnar á ísi lagðri Bakkatjörn í gær og hver veit nema þær hafi verið að minnast ættmóðurinnar Svandísar, hinnar frægu álftar sem nú er fallin frá. Ómar Reykjavík er alls- konar borg fyrir alls- konar fólk sem býr í allskonar hverfum. Tilvísun þessi er sótt í ítarefni með aðal- skipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem sam- þykkt var í borgar- stjórn hinn 26. nóv- ember 2013. Þessi stutta tilvísun gefur svo sannarlega fögur fyrirheit um skipulagsmál í sátt allra með heild- arhagsmuni íbúa borgarinnar að leiðarljósi, hvort sem það eru heimili eða fyrirtæki, enda er sjálf- sögð krafa að útsvarsgreiðendur borgarinnar séu jafnsettir gagn- vart sveitarfélaginu. Hins vegar hafa misvísandi skoðanir í fjölmiðlun undanfarið um samgöngumál Reykjavíkur- borgar vakið áleitnar spurningar um forgangsröðun borgarinnar í þeim efnum. Í nýlegri frétt í Morg- unblaðinu áréttar vegamálastjóri rétti- lega að ástand ein- stakra vegakafla í borginni er mjög slæmt. Gagnrýnir vegamálastjóri fram- kvæmdaleysi borgar- innar sem hamli um leið alla þátttöku Vegagerðarinnar að úrbótum á vegakerf- inu. Það er sannarlega áhyggjuefni að þegar sérfræðistofnun hins opinbera á sviði vegaframkvæmda fellir slíkan áfellisdóm um ástand vega skuli Reykjavíkurborg ekki vinna úr slíkum ábendingum með uppbyggilegum hætti. Í stað þess að nýta sér framkomna gagnrýni vegamálastjóra er honum svarað af fulltrúa Reykjavíkurborgar í frétt næsta dags m.a. undir þeim for- merkjum að ferðamenn ráði ekki áherslum á sviði samgöngumála. Hvort sem það er við ferðamenn að sakast eður ei að umferð hefur aukist er staðreynd að vegakerfi borgarinnar er víðast hvar fyrir löngu sprungið. Langar biðraðir við gatnamót og umferðarteppur eru að verða meginregla frekar en undantekning og því er um að ræða ástand sem ekki er unnt að hunsa til lengri tíma. Bættar al- menningssamgöngur og átak af því tagi er jákvæð nálgun á slíkt vandamál en getur aldrei verið hin eina lausn á því ástandi. Í því sam- hengi benda SVÞ – Samtök versl- unar og þjónustu á að fjöldi aðild- arfyrirtækja samtakanna grundvallar starfsemi sína á að af- henda vörur ýmsum þjónustuað- ilum, s.s. veitingastöðum, stórum sem smáum verslunum, fyrir- tækjum og opinberum fyrirtækjum og stofnunum svo dæmi séu tekin. Það er hagsmunamál fyrir þessa aðila og viðskiptavini þeirra að vörur séu afhentar á öruggan og ábyrgan hátt. Hins vegar er það staðreynd að takmörkun borgar- yfirvalda á afhendingu, t.a.m. tak- markaðir losunarstaðir og tak- markað aðgengi sökum umferðar- álags á vegakerfi, er til þess fallin að hamla verulega starfsemi þess- ara aðila. Breytingar á almenn- ingssamgöngum munu ekki nýtast þessum aðilum enda verða vörur seint ferjaðar á milli staða með leiðarkerfi almenningsvagna. Í áðurnefndu aðalskipulagi Reykjavíkurborgar er m.a. lögð áhersla á uppbyggingu miðborg- arinnar sem ferðamanna-, veit- inga- og verslunarmiðborgar, sem sagt allskonar miðborgar fyrir alls- konar fólk. Slík allskonar borg kallar á allskonar þjónustu og að- föng og um leið allskonar lausnir varðandi afhendingu og ferjun á vörum. Að mati SVÞ er óheppilegt að ekki er tekið tillit til faglegra ábendinga vegamálastjóra sem með ábyrgum hætti vekur athygli á þeim vandkvæðum sem blasa við vegakerfinu í Reykjavíkurborg. Til að standa undir nafni þarf alls- konar borgin Reykjavík að mæta þörfum allra en ekki sumra. Bætt- ar almenningssamgöngur munu ekki leysa þau vandamál sem nýjar akreinar geta tekist á við og um- bætur í vegakerfi eru því fyrir löngu aðkallandi. SVÞ benda á að það er sérstakt hagsmunamál að- ildarfyrirtækja samtakanna að grettistaki verði lyft af hálfu borg- arinnar, og Vegagerðarinnar þar sem á við, að leysa úr þeim um- ferðarrembihnút sem vegakerfið í Reykjavíkurborg er fyrir löngu komið í. SVÞ skora því eindregið á borgaryfirvöld að sýna vilja í verki við það að takast á við samgöngu- mál í borginni með hagsmuni allra að leiðarljósi. Eftir Lárus M. K. Ólafsson » SVÞ skora því ein- dregið á borgaryfir- völd að sýna vilja í verki við það að takast á við samgöngumál í borginni með hagsmuni allra að leiðarljósi. Lárus M.K. Ólafsson Höfundur er lögmaður SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Samgöngur í allskonar borg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.