Morgunblaðið - 27.12.2016, Side 21
21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016
Ættarmót Um 30 álftir voru saman komnar á ísi lagðri Bakkatjörn í gær og hver veit nema þær hafi verið að minnast ættmóðurinnar Svandísar, hinnar frægu álftar sem nú er fallin frá.
Ómar
Reykjavík er alls-
konar borg fyrir alls-
konar fólk sem býr í
allskonar hverfum.
Tilvísun þessi er sótt í
ítarefni með aðal-
skipulagi Reykjavíkur
2010-2030 sem sam-
þykkt var í borgar-
stjórn hinn 26. nóv-
ember 2013. Þessi
stutta tilvísun gefur
svo sannarlega fögur fyrirheit um
skipulagsmál í sátt allra með heild-
arhagsmuni íbúa borgarinnar að
leiðarljósi, hvort sem það eru
heimili eða fyrirtæki, enda er sjálf-
sögð krafa að útsvarsgreiðendur
borgarinnar séu jafnsettir gagn-
vart sveitarfélaginu.
Hins vegar hafa misvísandi
skoðanir í fjölmiðlun undanfarið
um samgöngumál Reykjavíkur-
borgar vakið áleitnar spurningar
um forgangsröðun borgarinnar í
þeim efnum. Í nýlegri frétt í Morg-
unblaðinu áréttar
vegamálastjóri rétti-
lega að ástand ein-
stakra vegakafla í
borginni er mjög
slæmt. Gagnrýnir
vegamálastjóri fram-
kvæmdaleysi borgar-
innar sem hamli um
leið alla þátttöku
Vegagerðarinnar að
úrbótum á vegakerf-
inu. Það er sannarlega
áhyggjuefni að þegar
sérfræðistofnun hins
opinbera á sviði vegaframkvæmda
fellir slíkan áfellisdóm um ástand
vega skuli Reykjavíkurborg ekki
vinna úr slíkum ábendingum með
uppbyggilegum hætti. Í stað þess
að nýta sér framkomna gagnrýni
vegamálastjóra er honum svarað af
fulltrúa Reykjavíkurborgar í frétt
næsta dags m.a. undir þeim for-
merkjum að ferðamenn ráði ekki
áherslum á sviði samgöngumála.
Hvort sem það er við ferðamenn
að sakast eður ei að umferð hefur
aukist er staðreynd að vegakerfi
borgarinnar er víðast hvar fyrir
löngu sprungið. Langar biðraðir
við gatnamót og umferðarteppur
eru að verða meginregla frekar en
undantekning og því er um að
ræða ástand sem ekki er unnt að
hunsa til lengri tíma. Bættar al-
menningssamgöngur og átak af því
tagi er jákvæð nálgun á slíkt
vandamál en getur aldrei verið hin
eina lausn á því ástandi. Í því sam-
hengi benda SVÞ – Samtök versl-
unar og þjónustu á að fjöldi aðild-
arfyrirtækja samtakanna
grundvallar starfsemi sína á að af-
henda vörur ýmsum þjónustuað-
ilum, s.s. veitingastöðum, stórum
sem smáum verslunum, fyrir-
tækjum og opinberum fyrirtækjum
og stofnunum svo dæmi séu tekin.
Það er hagsmunamál fyrir þessa
aðila og viðskiptavini þeirra að
vörur séu afhentar á öruggan og
ábyrgan hátt. Hins vegar er það
staðreynd að takmörkun borgar-
yfirvalda á afhendingu, t.a.m. tak-
markaðir losunarstaðir og tak-
markað aðgengi sökum umferðar-
álags á vegakerfi, er til þess fallin
að hamla verulega starfsemi þess-
ara aðila. Breytingar á almenn-
ingssamgöngum munu ekki nýtast
þessum aðilum enda verða vörur
seint ferjaðar á milli staða með
leiðarkerfi almenningsvagna.
Í áðurnefndu aðalskipulagi
Reykjavíkurborgar er m.a. lögð
áhersla á uppbyggingu miðborg-
arinnar sem ferðamanna-, veit-
inga- og verslunarmiðborgar, sem
sagt allskonar miðborgar fyrir alls-
konar fólk. Slík allskonar borg
kallar á allskonar þjónustu og að-
föng og um leið allskonar lausnir
varðandi afhendingu og ferjun á
vörum.
Að mati SVÞ er óheppilegt að
ekki er tekið tillit til faglegra
ábendinga vegamálastjóra sem
með ábyrgum hætti vekur athygli
á þeim vandkvæðum sem blasa við
vegakerfinu í Reykjavíkurborg. Til
að standa undir nafni þarf alls-
konar borgin Reykjavík að mæta
þörfum allra en ekki sumra. Bætt-
ar almenningssamgöngur munu
ekki leysa þau vandamál sem nýjar
akreinar geta tekist á við og um-
bætur í vegakerfi eru því fyrir
löngu aðkallandi. SVÞ benda á að
það er sérstakt hagsmunamál að-
ildarfyrirtækja samtakanna að
grettistaki verði lyft af hálfu borg-
arinnar, og Vegagerðarinnar þar
sem á við, að leysa úr þeim um-
ferðarrembihnút sem vegakerfið í
Reykjavíkurborg er fyrir löngu
komið í. SVÞ skora því eindregið á
borgaryfirvöld að sýna vilja í verki
við það að takast á við samgöngu-
mál í borginni með hagsmuni allra
að leiðarljósi.
Eftir Lárus
M. K. Ólafsson » SVÞ skora því ein-
dregið á borgaryfir-
völd að sýna vilja í verki
við það að takast á við
samgöngumál í borginni
með hagsmuni allra að
leiðarljósi.
Lárus M.K. Ólafsson
Höfundur er lögmaður SVÞ –
Samtaka verslunar og þjónustu.
Samgöngur í allskonar borg