Morgunblaðið - 27.12.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.12.2016, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016 Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Mikið óveður gekk yfir Norðurhluta Evrópu um jólahátíðina en í Færeyj- um bárust lögreglunni um 350 til- kynningar um eignatjón vegna óveð- urs sem náði hámarki sínu á aðfangadag en þá mældust vindhvið- urnar mest um 70 metra á sekúndu. „Börnin eru að fara í fyrsta skipti út úr húsi í dag í þrjá daga,“ sagði Baldur Helgi Benjamínsson, sem staddur er í Þórshöfn í Færeyjum. Þar dvelur hann yfir jól og áramót ásamt fjölskyldu sinni en veðrið var að mestu gengið niður þegar mbl.is náði tali af honum í gær. Rafmagnið hafði tvisvar sinnum farið af Þórshöfn síðan fjölskyldan kom á Þorláks- messu en Baldur tók fram að hann hafi oft upplifað vont veður á Íslandi en þó aldrei eins hvasst og í Færeyj- um. „Mjög óþægileg lífsreynsla“ Stormurinn, sem fengið hefur nafn- ið Urd, gengur nú yfir Danmörku, Noreg og Svíþjóð en síðdegis í gær voru um 13.000 heimili í suðurhluta Noregs rafmagnslaus. Það hefur áhrif á um 30.000 manns samkvæmt upplýsingum frá norskum yfirvöld- um. Lögreglan á Jótlandi í Danmörku réð fólki frá ferðalögum sem ekki væru brýn nauðsyn en þá voru tré tekin að rifna upp, lausir hlutir að fjúka og rúður að brota. Þetta sagði á vefmiðilinum DRdk. Flugvél á vegum flugfélagsin SAS, á leið frá Íslandi, náði hvorki að lenda í Kaupmannahöfn eða Malmö í gær- dag vegna mikilla vindhviða. Hilmar Jökull Stefánsson, sem staddur var í flugvélinni, lýsti því í samtali við Morgunblaðið hvernig mikil skelfing hafi gripið um sig í vélinni þegar flug- stjórinn þurfti á síðustu stund að hætta við lendingu í Malmö. „Þetta var mjög óþægileg lífs- reynsla. Það var mikill stormur og vindur en þegar vélin var um 30-40 metra frá flugbrautinni kom rosaleg- ur hliðarvindur svo hann á ekki kost á öðru en að rífa vélina upp,“ segir Hilmar Jökull en stuttu síðar hafi eld- ingu slegið niður í vinstri væng vél- arinnar. „Það kom stórkostlegur kippur í vélina og næstu tvær mín- útur voru hræðilegar, vélin flaksaði fram og til baka og hristist öll. Það fór fólk að gráta – þetta var eins og í bíó- mynd þar sem næsta skref var að vél- in rifni,“ bætir hann við. Vélin hafði sig þó úr storminum og náði að lenda stuttu síðar á dönsku eyjunni Born- holm rétt áður en stormurinn náði þar að landi. Óveður skekur Skandinavíu  Vindhviður mældust mest 70 m/sek. í Færeyjum  Stormurinn Urd gengur yfir Danmörku, Noreg og Svíþjóð  Eldingu laust niður í flugvél SAS á leið frá Malmö AFP Stormur Veður var slæmt í Færeyjum, Noregi, Svíþjóð og Danmörku yfir jólin. Eignatjón varð í Færeyjum þar sem lögregla fékk 350 tilkynningar. Rússneskir björgunarmenn fundu brak rússnesku herflugvélarinnar sem hrapaði í Svartahaf aðfaranótt jóladagsmeð 92 manns um borð. Brakið fannst á 27 metra dýpi en meira en þrjú þúsund björgunar- menn leituðu að brakinu og þeim sem fórust. Talsmaður rússneska hersins staðfesti í gær að kafarar hefðu fundið „tvo hluta af stjórn- unarbúnaði vélarinnar“. Flugvélin var af gerðinni Tu-154 og var á leið til Latakia-héraðs í Sýr- landi til að skemmta rússneskum hermönnum þar í landi. Á meðal far- þeganna var starfsfólk hersins, blaðamenn og liðsmennAlexandrov- kórsins sem er opinber kór rúss- neska hersins. Í hópnum voru einnig hljóðfæraleikarar og dansarar. Búið er að fljúga með tíu lík og 86 líkams- hluta til Moskvu, höfuðborgar Rúss- lands, til DNA-greiningar. Yfirvöld telja ekki að um hryðju- verk hafi verið að ræða þrátt fyrir að svarti kassi vélarinnar sé enn ófund- inn. Rannsókn slyssins beinist að fjórum mögulegum ástæðum; mis- tökum flugmanns, tæknibilunar, galla í eldsneyti eða aðskotahlutar í vélinni. Þetta staðfestir öryggis- málastofnun Rússlands samkvæmt frétt AFP. laufey@mbl.is Rússnesk flugvél hrapaði  Fundu brak og lík í Svartahafi  Ekki talið vera hryðju- verk  60 liðsmenn Alexandrov-kórsins á meðal farþega AFP Sorg Fólk lagði blóm við húsnæði kórsins til minningar um hina látnu. ALLAR SERÍUR OGJÓLAVÖRUR* „Ég hef sannfæringu fyrir þessari hugsjón vegna þess að ég er sann- færður um að ef ég hefði gefið aftur kost á mér og talað fyrir henni þá tel ég að ég hefði getað fengið meiri- hluta Bandaríkjamanna til þess að fylkja liði bak við hana,“ sagði Bar- ack Obama, forseti Bandaríkjanna, en síðasta tímabili hans sem forseta lýkur innan þriggja vikna. Sagði hann flesta Bandaríkjamenn vera hlynnta þeim umbótum sem komið hafi verið á og stefnt að í forsetatíð hans þrátt fyrir að Donald Trump, pólitískur andstæðingur Obama, hafi verið kosinn forseti í nóvember síð- astliðnum. Þetta sagði forsetinn í viðtali í hlaðvarpsþættinum „The Axe Files“ sem framleiddir eru fyrir CNN og AFP greinir frá. Hann var bæði heimspekilegur og hryggur í bragði í viðtalinu, að hluta vegna þess að demókratar töpuðu kosningunum. „Það er aldrei gaman að tapa,“ sagði hann en fólk ætti ekki að vanmeta opinberu niðurlæg- inguna sem fylgdi því að tapa í stjórnmálum. „Það er ólíkt öllu sem flestir upplifa á fullorðinsárum, höfnunin,“ bætir hann við. Þá væri hann stoltur af þeim ár- angri sem hann hafi náð í embætti og þakkaði það „krafti Bandaríkja- manna“, sem sérstaklega mætti sjá hjá yngri kynslóðum. Heimsóttu Perluhöfn á Hawaii Obama fór einnig í sína síðustu jólaheimsókn til Hawaii á jóladag en þar heimsækir hann bandaríska her- menn á herstöðina. Að þessu sinni hélt forsætisráð- hera Japan, Shinzo Abe, einnig til Hawaii til að heimsækja Perluhöfn ásamt Obama, en tilgangur ferðar- innar er að leggja áherslu á áratuga- sátt og samvinnu milli þjóðanna tveggja eftir síðari heimsstyrjöldina. „Við megum aldrei aftur endutaka slíkan hrylling,“ hafði Abe á orði. Obama hefði get- að unnið Trump  Heimspekilegur og hryggur í viðtali AFP Síðasta sinn Forsetahjónin heim- sóttu herstöðina á Hawaii á jóladag. Varnarmálaráðherra Ísrael, Avig- dor Lieberman, gagnrýndi í gær áætlaða ráðstefnu um frið í Mið- Austurlöndum, skipulagða af Frökkum. Ráðstefnan yrði ekkert annað en ný „Dreyfus-réttarhöld“ og hvatti franska gyðinga til að flytja til Ísrael. Ráðstefnan verður haldin 15. janúar og munu fulltrúar 70 landa taka þátt. Markmið ráðstefnunnar er að ýta friðarviðræðum milli Ísraels og Palestínu aftur úr vör eftir langt hlé. Ísrael hefur áður látið vanþóknun sína á ráðstefn- unni í ljós og vill frekar eiga í beinum viðræðum við Palestínu- menn. „Þetta er ekki friðarráðstefna, þetta er dómstóll gegn ríkinu Ísr- ael,“ sagði Lieberman við flokks- menn Yisrael Beitenu-stjórnmála- flokksins að því er fram kemur á upptöku sem flokkurinn gerði op- inbera. Þetta segir í frétt AFP. „Þetta verður nútímaútgáfa Drey- fus-réttarhaldanna sem verið er að undirbúa í París og verða haldin 15. janúar. Í stað þess að aðeins einn gyðingur sé fyrir dómi verða allir gyðingar og ísraelska ríkið,“ bætti hann við. Ný „Dreyfus-réttarhöld“ í stað friðarráðstefnu  Vilja frekar tala beint við Palestínu „Skemmdir eru miklar,“ segir Arnfrid Vestergaard, bóndi í Götu í Austurey í Færeyjum. Nokkrar skemmdir urðu á mann- virkjum þar en sýnu meiri í Klakksvík, þar sem hússtjórnarskóla tók ofan. „Það bjargaði miklu að áður en óveðrið nú um jólin skall á höfðu björgunarsveitir og lög- regla farið um og varað fólk við,“ segir Arnfrid sem hefur búið í Austurey í þrjú ár. Áður var hún á Suðurey. Þar lenti hún þrívegis í því, þar af tvisvar um jól, að heimili hennar skemmd- ist illa í ofsaveðri. Raunar hafa oft orðið búsifjar í Suðurey vegna veðurs, en að þessu sinni sluppu eyjaskeggjar betur en aðrir Færeyingar frá veðurofs- anum. Viðvaranir gerðu gagn MIKLAR SKEMMDIR Arnfrid Vestergaard

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.