Morgunblaðið - 27.12.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 27.12.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. 3.500 kg heildarburður • Verð 959.677 kr. +VSK Bílaflutningavagn Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Fyrirbyggir exem • Betri og sterkari fætur „Ég býst ekki við því að hróflað verði við úrskurði kjararáðs, þrátt fyrir óánægju,“ segir Benedikt Jó- hannesson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og for- maður Viðreisnar, spurður um síð- asta úrskurð kjararáðs frá 29. okkt- óber um laun forseta Íslands, þingfararkaup alþingismanna og launakjör ráðherra. „Verið er að leiðrétta alls konar inngrip undan- farina ára og því á ég ekki von á að gripið verði inn í ákvörðun kjarar- áðs.“ Úrskurðanefndir aftur inn Alþingi samþykkti rétt fyrir jól frumvarp Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra og formanns Sjálf- stæðisflokksins, um kjararáð. Í því felst að fækkað er verulega þeim sem kjararáð ákvarðar laun og önnur starfskjör. Á síðustu metrum frumvarpsins komu fram breytingar þess eðlis að kjararáð ákveður einnig laun og starfskjör nefndarmanna yfirskatta- nefndar, úrskurðarnefndar umhverf- is- og auðlindamála, kærunefndar út- lendingamála og úrskurðarnefndar velferðarmála sem eru í fullu starfi. Úrskurður kjararáðs stendur Morgunblaðið/Eggert Alþingi Samþykkt var frumvarp Bjarna Benediktssonar um kjararáð rétt fyrir jól þar sem stéttum fækkar sem falla undir úrskurði kjararáðs.  Kjararáð ákvarðar laun úrskurðarnefnda Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Verð á flugeldum hjá Slysavarnar- félaginu Landsbjörg verður ívið lægra í ár heldur en í fyrra. Undir- búningur stendur nú yfir hjá björg- unarsveitum um allt land og að sögn Þorsteins Gunnarssonar, upplýs- ingafulltrúa Landsbjargar, er búist við góðri sölu í ár. Þorsteinn segir verðlækkunina til- komna vegna gengisbreytinga auk góðra samninga björgunarsveitanna við birgja sína. Björgunarsveitirnar hafa unnið að undirbúningi flugeldasölunnar allt árið og verður hún með svipuðu sniði og fyrri ár. „Þetta er með hefðbundnu sniði. Undirbúningurinn hófst í fyrstu viku janúarmánaðar, þegar menn fóru yf- ir árið og byrjuðu að plana næstu áramót. Innkaupin eiga sér stað á fyrstu mánuðum ársins og þá fer af stað framleiðsla fyrir okkur sem tek- ur mið af þörfum okkar, óskum við- skiptavina okkar og þeim reglum og stöðlum sem hér gilda,“ segir hann. Hluti af íslensku þjóðarsálinni Sölustaðir björgunarsveitanna eru staðsettir um land allt, en í ár eru þeir 111 talsins. Að sögn Þor- steins er nú unnið að því að koma sölustöðunum upp. „Salan sjálf hefst 28. desember og við gerum ráð fyrir góðri sölu, enda er það hluti af íslensku þjóðarsálinni að skjóta upp flugeldum og njóta áramótanna á þennan hátt,“ segir hann. „Auðvitað helst þetta svolítið í hendur við kaupmátt þjóðarinnar. Samt fylgjast sveiflurnar ekki ná- kvæmlega, vegna þess að þetta er það sterkur hluti í áramótahefðinni. Margir leggja fyrir allt árið, setja alla dósapeningana í þetta eða klink. Undirbúningur fyrir flugeldakaupin hefst oft strax og áramótin eru lið- in.“ Breitt vöruúrval Allir eiga að að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi hjá björgunar- sveitunum að sögn Þorsteins. „Við höfum lagt ofurkapp á það að vera með það mikla breidd í vöruúrvalinu að það eiga allir að geta fundið það sem þeir bæði vilja og þurfa,“ segir hann og bætir við að björgunarsveit- irnar kaupi meðvitað meira inn til að ekkert vanti og haldi löggiltan flug- eldalager. Þorsteinn minnir á að öryggið skuli í hávegum haft. „Það er varla að maður sjái fjöl- skyldur skjóta upp flugeldum án þess að vera með gleraugu. Við höf- um líka lagt áherslu á að mjög ung börn séu með heyrnarhlífar og erum með þær á sölustöðum okkar,“ segir hann. Landsbjörg lækkar flugeldaverð  Gengisbreytingar og samningar við birgja skila sér í lægra verði  111 sölustaðir Landsbjargar  Búast við góðri sölu í ár  Undirbúningur og innkaup fyrir áramótin hafa staðið yfir allt árið Morgunblaðið/Freyja Gylfa Undirbúningur Liðsmenn Flugbjörgunarsveitarinnar voru í óða önn að undirbúa flugeldasöluna í gær þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.