Morgunblaðið - 27.12.2016, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016
Erla Rún Guðmundsdóttir
erlarun@mbl.is
„Hugmyndin er að gera þetta sem
skemmtilegast fyrir áhorfendur,“
segir Hrólfur Sæmundsson barí-
tónsöngvari um tónleikana „Klass-
ískir gullmolar“ sem haldnir verða í
Hjallakirkju í kvöld, þriðjudag,
klukkan 19.30.
Það er Impromptu Opera sem
stendur fyrir tónleikunum en félagið
er í eigu Hrafnhildar Björnsdóttur
sópransöngkonu og Martyn Parkes
píanóleikara. Markmið Impromtu
Opera er að bjóða upp á tónlistar-
skemmtun fyrir alla, líka þá sem alla
jafna myndu af einhverjum ástæð-
um ekki íhuga að fara á klassíska
tónleika eða óperu.
Að sögn Hrafnhildar eru tónleik-
arnir þeir fyrstu á vegum Im-
promptu Opera Íslandi en fjölmarg-
ir tónleikar hafa fengið frábærar
viðtökur í Englandi og Skotlandi.
Hrafnhildur og Parkes koma þar
fram, oft ásamt fleiri söngvurum, og
auk þeirra verða Hrólfur, Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran
og Þorbjörn Rúnarsson tenór með í
för á tónleikunum í Hjallakirkju.
Á svið í Metropolitan
Hrólfur hefur í nógu að snúast í
söngnum og segir næstu þrjú árin
orðin fullbókuð. „Ég er núna að
syngja Macbeth í Þýskalandi og svo
er ég að syngja Carmen í Írlandi þar
á eftir. Svo er það Arianna frá Nax-
os í Þýskalandi, Hans og Gréta í
Noregi, La Traviata í Þýskalandi,
Dauðaborgin í Hollandi og svo Don
Giovanni í Þýskalandi. Þetta er bara
næsta ár.“ Þá má þess geta að
Hrólfur mun þreyta frumraun sína á
sviði í Metropolitan-óperunni í New
York innan tveggja ára.
Hrólfur og Hrafnhildur námu
bæði söng við Söngskólann í
Reykjavík og þekkjast ágætlega.
Hrólfur er mikið á flakki vinnu sinn-
ar vegna og hafði hugsað sér að vera
í fríi yfir jólin. „Ég var eiginlega bú-
inn að ákveða að taka ekki þátt í tón-
leikahavaríinu [í desember] en svo
spurði Hrafnhildur mig um þetta.
Þetta er skemmtilegt prógramm og
mig langaði að vera með svo ég sló
til. Þetta er góður tími milli jóla og
nýárs og góðir söngvarar.“
Galatónlist á efnisskránni
Efnisskráin samanstendur af arí-
um, dúettum og kvartett úr óperum
á borð við Carmen, La Traviata,
Rigoletto, Porgy and Bess og La
Bohème. „Þetta er allt eitthvað sem
við flest höfum sungið áður og á vel
við á svona nýárstónleikum. Þetta er
tónlist sem gjarnan er flutt á stórum
galatónleikum, svona „best of“ má
segja. Svo er aldrei að vita nema að
það læðist inn eitt jólalag eða svo.“
Hrólfur segir að lagt verði upp úr
því að áhorfandinn skemmti sér og
því verði stemningin létt. „Atriðin
verða tengd saman, jafnvel á leik-
rænan hátt. Við erum náttúrulega
öll mjög sviðsvön þannig að þetta
verður örugglega skemmtilegt.“
Hrafnhildur segir þau hjónin
langa til að gera tónleikana að árleg-
um viðburði svo hægt verði að gefa
sem flestum íslenskum söngvurum
tækifæri. „Á okkar litla landi
blómstrar menningin en það er
minna um óperutónlist. Okkur
finnst þetta tilvalin leið til að kynna
tónlist úr ýmsum óperum fyrir öll-
um en vonandi náum við til þess
hóps sem ekki fer að sjá óperur en
skiptir um skoðun eftir að hafa upp-
lifað tónleika með Impromptu
Opera.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Létt stemning Hrólfur Sæmundsson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Martyn Parkes, Hrafnhildur Björnsdóttir og
Þorbjörn Rúnarsson flytja aríur, dúetta og kvartett á tónleikum sínum í Hjallakirkju í kvöld.
Létt stemning og
leikrænir tilburðir
Impromptu Opera stendur fyrir tónleikum í Hjallakirkju
í kvöld kl. 19.30 Kynnt verður skemmtileg óperutónlist
Tónlistarrýnar breska ríkis-
útvarpsins, BBC, völdu plötu
bandarísku tónlistarkonunnar
Beyoncé, Lemonade, þá bestu sem
kom út á árinu. Hafði hún betur en
svanasöngur Davids Bowie,
Blackstar, sem kom út tveimur dög-
um fyrir dauða hans í janúar síðast-
liðnum.
Listinn yfir bestu plöturnar lítur
svona út:
1 Beyoncé: Lemonade
2 David Bowie: Blackstar
3 Frank Ocean: Blonde
4 Chance the Rapper:
Coloring Book
5 Solange: A Seat at the Table
6 Kanye West: Life of Pablo
7 A Tribe Called Quest:
We Got It From Here
8 Radiohead: A Moon
Shaped Pool
9 Angel Olsen: My Woman
10 Mitski: Puberty
11 Leonard Cohen:
You Want It Darker
12 Rihanna: Anti
13 Anderson Paak: Malibu
14 Bon Iver: 22, A Million
15 The 1975: I Like It When
You Sleep...
16 Anohni: Hopelessness
17 Car Seat Headrest:
Teens of Denial
18 Nick Cave & The Bad
Seeds: Skeleton Tree
BBC-rýnar segja plötu Beyoncé besta
AFP
Virt Á nýju plötunni fjallar Beyoncé um
áhrifamátt kvenna í samfélaginu.
Út er komið nýtt tölublað Þjóðmála, 4. hefti 12.
árgangur. Forsíðugrein ritsins fjallar um hrun
Samfylkingarinnar. Í þjóðmálaúttekt er fjallað
um konur og Sjálfstæðisflokkinn, Elías B. Elías-
son skrifar um orkuna okkar og sæstreng og
Björn Bjarnason um stjórnarmyndun án óða-
gots. „Byltingarstjórnarskrá“ nefnist grein eft-
ir Sigurð Má Jónsson, dr. Ásgeir Jónsson fjallar
um kvótakerfið í greininni „Sannleikur um sjáv-
arútveg“, Hjörtur J. Guðmundsson fjallar um
að ekki sé hægt að semja um varanlegar undan-
þágur frá reglum Evrópusambandsins, og grein
dr. Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar nefnist
„Til varnar smáríkjum“. Úgefandi og ritstjóri
Þjóðmála er Óli Björn Kárason.
Fjölbreytilegt efni í nýjum Þjóðmálum
SÝND KL. 8, 10.50 SÝND KL. 2, 5
2D ÍSL TAL - SÝND KL. 1.45, 3.50, 6
2D ENS TAL - SÝND KL. 5, 8 SÝND KL. 2, 8.15, 10.25
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
GLEÐILEG JÓL
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL AF
UMGJÖRÐUM
Á UNGA FÓLKIÐ
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu
Afgreiðum samdægurs