Fréttablaðið - 25.03.2017, Side 6
Metsölulisti
Eymundsson
Handbækur
14
.3
. – 2
0
.3
.2
0
171.
Metsölulisti
Eymundsson
Handbækur
14
.3
. – 2
0
.3
.2
0
172.
Metsölulisti
Eymundsson
Handbækur
14
.3
. – 2
0
.3
.2
0
173.
MIKILVÆG MÁLEFNI – MERKILEGAR BÆKUR
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsins | F i sk islóð 39
viðskipti Lækningavörufyrir-
tækið Kerecis hefur tryggt samstarf
við PolyMedics Innovation (PMI),
bandarískt-þýskt fyrirtæki sem
sérhæfir sig í vörum til meðhöndl-
unar á brunasárum. Ný vara Ker-
ecis, Omega3 Burn, verður á grunni
samningsins seld í Bandaríkjunum,
en sölunet PMI nær til 36 landa.
„Þetta er mikilvægur áfangi
fyrir okkur en með þessu erum við
komin með tvær vörur sem seldar
eru í gegnum tvö sölukerfi í Banda-
ríkjunum. Sáravöruna fyrir þrálát sár
sem við höfum verið að selja síðan
í ársbyrjun 2016 með eigin sölu-
mönnum og umboðssölumönnum
og svo þessa nýju vöru sem seld verð-
ur gegnum sérhæft söluteymi Poly-
Medics til brunasáradeilda sjúkra-
húsa vítt og breitt um Bandaríkin,“
segir Guðmundur Fertram Sigurjóns-
son, framkvæmdastjóri Kerecis.
Haustið 2014 samdi ísfirska Ker-
ecis við rannsóknarstofnanir banda-
rískra varnarmálayfirvalda. Vörur
Kerecis eru úr þorskroði. Sá samn-
ingur laut að rannsóknum á tækni
Kerecis til að meðhöndla alvarleg
brunasár. Lítur varan nú dagsins ljós.
„Nú í upphafi nær samstarfið
aðeins til Bandaríkjanna. Það er
líklegt að við munum víkka út
samstarfið til fleiri markaða,“ segir
Guðmundur Fertram. Markaður
fyrir brunavörur í Bandaríkjunum
var jafnvirði tæplega 80 milljarða
íslenskra króna árið 2016.
„Markmið okkar er að ná fimm
prósenta markaðshlutdeild á næstu
fimm árum.“
Varan [Kerecis Omega3 Burn]
byggir á sama grunni og vara Ker-
ecis fyrir þrálát sár [Kerecis Omega 3
Wound]. Unnið hefur verið að mark-
aðssetningu nýju vörunnar í tvö ár í
samstarfi við íslenska og erlenda
sérfræðinga. Þar á meðal er Tilrauna-
stöð Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum, Kerfislíffræðisetur Háskóla
Íslands, Rannsóknarmiðstöð banda-
ríska sjóhersins og Sárarannsóknar-
setur bandaríska landhersins.
„Til viðbótar því að loka sárum
hraðar og minnka sársauka benda
rannsóknir okkar til að öramyndun
sé minni þegar sáraroðið er notað, og
þar af leiðandi verði minni vanda-
mál með skerðingu á hreyfigetu,“
segir Guðmundur Fertram.
Lengi hefur besta meðhöndlun
alvarlegra brunasára verið talin
skinnágræðsla þar sem húð er flutt
af einum stað líkamans á annan.
Aðrar vörur til meðhöndlunar
brunasára eru gjafahúð af svínum
eða húð látins fólks. Gjafahúð fylgir
sýkingarhætta sem kallar á flóknar
vinnsluaðferðir. Engin smithætta er
á milli þorsks og manna og því eru
öll innihaldsefni þorskroðsins varð-
veitt í vörur Kerecis og hefur verið
sýnt fram á í fjölmörgum klínískum
rannsóknum að virknin verður því
betri.
svavar@frettabladid.is
Stefna á 5% hlut af Bandaríkjamarkaði
Kerecis hefur gert samning um sölu á nýrri vöru til meðhöndlunar á brunasárum á Bandaríkjamarkaði. Fyrirtækið stefnir á 5 prósenta
hlut af 80 milljarða króna markaði innan fimm ára. Sölunet samstarfsaðila Kerecis spannar 36 þjóðlönd sem litið er til á næstu árum.
Flýja heimili sín
Maður flytur börn og eigur sínar á kerru út úr íröksku borginni Mósúl. Hörð orrusta írakska hersins gegn hryðjuverkasamtökunum Íslamska
ríkinu hefur staðið yfir undanfarið en írakski herinn reynir nú að ná borginni á sitt vald. Fjöldi borgara hefur flúið heimili sín. nordicphotos/AFp
Til viðbótar því að
loka sárum hraðar
og minnka sársauka benda
rannsóknir okkar til að
öramyndun sé minni þegar
sáraroðið er notað.
Guðmundur Fert-
ram Sigurjónsson,
framkvæmda-
stjóri Kerecis
Leiðrétting
Í Fréttablaðinu í gær sagði að
einungis ein kona hefði fengið
réttindi hæstaréttarlögmanns á
síðustu tólf mánuðum. Samkvæmt
upplýsingum frá Lögmannafélaginu
voru konurnar fleiri. Ekki fæst þó
gefið upp hversu margar þær voru.
Misskilningurinn byggðist á því að
konum með hrl. réttindi fjölgaði í
heild um eina milli ára en lögmenn
geta lagt inn réttindi sín og því voru
fleiri en ein sem fengu réttindi.
LögregLumáL Fangaverði á Litla-
Hrauni, sem talinn er hafa farið
langt fram úr meðalhófi er beita
þurfti fanga valdi í upphafi árs,
hefur verið vikið frá störfum. Þrír
aðrir fangaverðir eru grunaðir um
að hafa hylmt yfir með honum og
kunna að eiga yfir höfði sér refs-
ingu.
Málið er rannsakað sem sakamál.
„Ég get staðfest að upp hafi komið
mál í fangelsinu sem er þess eðlis að
stofnunin taldi rétt að tilkynna það
til lögreglu. Það gerðum við um leið
og málið kom upp á mánudaginn
síðasta,“ segir Páll Winkel fangelsis-
málastjóri.
Halldór Valur Pálsson, forstöðu-
maður fangelsisins á Litla-Hrauni,
vildi hins vegar ekki tjá sig um málið.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun valdbeiting fanga-
varðarins hafa að mjög miklu leyti
verið andleg og særandi og verið
niðurlægjandi fyrir fangann. – sa
Rannsókn á
fangaverði
2 5 . m a r s 2 0 1 7 L a u g a r D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
8
5
-1
D
B
0
1
C
8
5
-1
C
7
4
1
C
8
5
-1
B
3
8
1
C
8
5
-1
9
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K