Fréttablaðið - 25.03.2017, Qupperneq 12
Efnahagsmál „Þetta kemur ekki
á óvart og þetta er rétt skilið hjá
meginþorra fólks myndi ég ætla. En
þetta voru náttúrlega bara síðustu
skrefin,“ segir Breki Karlsson, for-
stöðumaður Stofnunar um fjár-
málalæsi.
Helmingur þeirra sem afstöðu
taka í skoðanakönnun Frétta-
blaðsins, Stöðvar 2 og Vísis telur að
afnám fjármagnshafta hafi engin
áhrif fyrir þá og fjármál þeirra.
Rúmlega 30 prósent telja það hafa
mjög lítil eða lítil áhrif. Einungis
rúm 20 prósent telja afnám hafta
hafa mikil eða mjög mikil áhrif.
Hinn 12. mars síðastliðinn var
tilkynnt að höft yrðu afnumin að
fullu tveimur dögum seinna. Í til-
kynningu vegna ákvörðunarinnar
sagði að fjármagnsflæði að og frá
landinu yrði nú gefið frjálst og ein-
staklingar, fyrirtæki og lífeyrissjóðir
geti fjárfest erlendis án takmarkana.
„Þetta er ekki síst mikilvægt
fyrir lífeyrissjóði sem þurfa að
dreifa áhættu af fjárfestingum
sínum,“ sagði í tilkynningunni.
Á þeim tíma var helst óttast að
breytingarnar myndu hafa þau
áhrif að gengi krónunnar myndi
snarlækka með tilheyrandi verð-
hækkunum á innfluttum vörum.
Það hefur ekki gengið eftir, en evran
var þó fjórum krónum dýrari í gær
en hún var 12. mars.
„Þessi síðustu skref sem voru
tekin um daginn hafa svo sem engin
bein áhrif á hið almenna heimili,“
segir Breki Karlsson.
Hins vegar séu óbeinu áhrifin þau
að væntingar ættu að standa til þess
að vaxtakjör ríkisins batni. Þá muni
Seðlabanki Evrópu hugsanlega skrá
krónuna aftur sem gjaldmiðil sem
hann hafi ekki gert síðan í desember
2008. Við það muni tiltrú á krónuna
aukast.
„Ó b e i n t h e f u r þ a ð þv í
áhrif á heimilin,“ segir hann.
Breki segir breytinguna sem varð
um síðustu áramót hafa haft mun
meiri áhrif á almenning „Þegar fólki
var gefin heimild til að versla með
gjaldmiðil,“ útskýrir Breki og bendir
á að í raun hafi verið stigin nokkur
skref við haftaafnámið og þau verið
þannig að almenningur hafi varla
tekið eftir þeim.
„Það er frábært og þýðir að vel
hefur tekist til og að þau hafa ekki
haft óeðlileg áhrif á gengi krónu
umfram venjulegar sveiflur,“ segir
Breki.
Hringt var í 1.242 manns þar til
náðist í 791 samkvæmt lagskiptu
úrtaki dagana 20. og 21. mars. Svar-
hlutfallið var 63,7 prósent. Þátttak-
endur voru valdir með slembiúrtaki
úr þjóðskrá. Svarendur skiptust
jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir
búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða
áhrif telurðu að afnám fjármagns-
hafta muni hafa fyrir þig og þín
fjármál? Alls tóku 64 prósent þeirra
sem náðist í afstöðu til spurningar-
innar, 33 prósent sögðust óákveðin
og 3 prósent svöruðu ekki spurn-
ingunni.
jonhakon@frettabladid.is
Flestir telja að
afnám hafta
snerti þá ekki
Helmingur svarenda í nýrri könnun telur afnám
fjármagnshafta engin áhrif hafa á sig. Rúm 30
prósent telja áhrifin lítil eða mjög lítil. Ekki óvænt,
segir forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi.
Þessi síðustu skref
sem voru tekin um
daginn hafa svo sem engin
bein áhrif á hið almenna
heimili.
Breki Karlsson,
forstöðumaður
Stofnunar um
fjármálalæsi
Eigum til á lager ítalskt skrautjárn sem hentar í handrið o..
Getum einnig sérpantað smíðajárn.
ÍTALSKT SMÍÐAJÁRN
Ingi@jarnprydi.is | Gsm: 822 1717
Volvo atvinnutækjasvið Brimborg ReykjavíkBíldshöfða 6 • Sími 515 7000 Hrafn
• Beinn sími 515 7174
hrafnv@brimborg.is
Við eigum til glæsilegar nýjar og notaðar
Volvo hópferðabifreiðar til sölu sem hægt er að
afhenda með skömmum fyrirvara.
Volvobus.is
STUTTUR AFHENDINGARTÍMI Á HÓPFERÐABIFREIÐUM
Volvo rútur_stuttur afhendingartími_3x12_20170323_draft2.indd 1 23/03/2017 13:04
Skipholti 50b • 105 Reykjavík • Sími 569 0900
Fax 569 0909 • lifbank@lifbank.is • www.lifbank.is
Ársfundur
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn
miðvikudaginn 26. apríl næstkomandi kl. 17.00.
Fundurinn verður haldinn á Icelandair Hotel Reykjaví k
Natura, Þingsal 2-3.
Dagskrá:
1.
2.
3.
Venjuleg störf ársfundar skv. 6. gr.
samþykkta sjóðsins
Tillaga sjóðfélaga til breytinga á 2. gr.
samþykkta
Önnur mál
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna
Tillaga til breytinga á samþykktum Lífeyrissjóðs banka-
manna liggur frammi á skrifstofu sjóðsins að Skipholti 50b.
Einnig má nálgast tillöguna og allar nánari upplýsingar á vef
sjóðsins www.lifbank.is
✿ Viðhorf til afnáms haftanna
samfélag Viðhaldsvinna og upp-
bygging á Ásmundarsal við Freyju-
götu 41 er hafin. Opna á húsið form-
lega vorið 2018.
Fjárfestarnir og hjónin Sigurbjörn
Þorkelsson og Aðalheiður Magnús-
dóttir keyptu húsið og borguðu fyrir
það 168 milljónir. Áður var Listasafn
ASÍ með starfsemi þar í um árabil.
„Okkur langar til að það verði líf
í húsinu á meðan á framkvæmdum
stendur og kynnum því til leiks
Ásmundarsal í endurnýjun,“ segir
Aðalheiður. „Við stefnum að því að
vera með uppákomur og sýningar í
húsinu. Eins verður hægt að koma
hér við. Fólk getur þá fylgst með
framkvæmdum og upplifað eitthvað
skemmtilegt á sama tíma.
Sýningargestir gætu þurft að vera
með öryggishjálma á næstu mán-
uðum,“ segir hún og hlær.
Fyrstu sýningar voru opnaðar á
HönnunarMars, á fimmtudag. – bb
Framkvæmdir hafnar við Ásmundarsal
48,5%
5,
90
%
14
,7%
16%
15%
Hvaða áhrif telurðu að
afnám fjármagnshafta
muni hafa fyrir þig og
þín fjármál?
n Mjög mikil n Mikil
n Lítil n Mjög lítil
n Engin
2 5 . m a r s 2 0 1 7 l a U g a r D a g U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
8
5
-1
8
C
0
1
C
8
5
-1
7
8
4
1
C
8
5
-1
6
4
8
1
C
8
5
-1
5
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K