Fréttablaðið - 25.03.2017, Qupperneq 26
www.apotekarinn.is
- lægra verð
Eyrnadropar við verk og bólgu
Við eyrnaverk og bólgu í tengslum
við miðeyrnabólgu
• Hjálpar einnig við að fjarlægja
eyrnamerg úr hlustinni
• Hentar börnum
• Gefið sem úði, auðvelt í notkun
• 100% náttúruleg innihaldsefni
• 15 ml glas Nýtt
OTIKON_5x10-Apotekarinn copy.pdf 1 07/03/17 13:58
sem það tekst og það var þannig
í minni fjölskyldu. Ég fann aldrei
beint þennan jólaanda. Þegar ég fór
svo að læra um Biblíuna komst ég að
því að uppruni jólanna stangast á við
það sem hann er sagður vera. Hann
er sagður vera afmæli Jesú Krists en
þetta er hátíð sem kemur frá heið-
inni trú. Frá þeim sem trúðu á sólina
og tunglið en ekki Guð og Jesú. Í sögu
kristinnar trúar var á einhverjum
tímapunkti alls konar trú blandað
saman til að friða samfélag þess tíma.
Þegar maður lærir svona mikið um
Biblíuna og fer að bera virðingu fyrir
trúnni þá vill maður að hlutirnir séu
réttir og mér finnst persónulega ekki
rétt að halda hátíð sem er sögð vera
samkvæm Biblíunni en stangast á
við það sem Biblían er í rauninni að
kenna.“
Hið sama gildi um afmæli. „Afmæli
er ekki kristin hátíð, og frum-
kristnir menn héldu ekki þá hátíð.
Í Biblíunni er aðeins tvisvar sinnum
minnst á afmæli og í bæði skiptin
voru kristnir menn teknir af lífi svo
mér finnst það ekki viðeigandi að
taka þátt í þeirri hátíð.“
Afstaða Votta Jehóva
til samkynhneigðar
„Fólk heldur að Vottar Jehóva séu
með þvílíka fordóma en það er alls
ekki. Fólk má lifa sínu lífi eins og það
vill. Það hefur enginn rétt til að setja
sig í eitthvert dómarasæti og halda
að maður sé betri en einhver annar
af því að maður lifir lífinu svona eða
hinsegin. Samkynhneigðir eru fólk
eins og hvert annað og eiga rétt á því
að komið sé fram við þá af virðingu
og kærleik eins og allir aðrir,“ segir
Linda um afstöðu Votta Jehóva til
samkynhneigðar.
Aftur á móti segir hún að samkyn-
hneigð sé ekki samkvæm Biblíunni
og því sé ekki hægt að vera með-
limur í Vottum Jehóva ef maður er
kominn út úr skápnum. „Samkvæmt
Biblíunni var mannkynið skapað
sem karl og kona saman. Okkur var
einnig ætlað að vera fullkomin og lifa
í fallegri paradís á jörð, en við erum
auðvitað, á svo margan hátt, komin
langt frá þessum uppruna bæði sem
mannkyn og jörð. Samkynhneigð
er því partur af ófullkomleika, eins
og allir eru ófullkomnir. Samkyn-
hneigðir eru ekkert ófullkomnari en
annað fólk og ég hef kynnst mörgu
yndislegu samkynhneigðu fólki en
þegar maður boðar orð Guðs og
finnst það vera góður leiðarvísir þá
þarf maður að vera tilbúinn til þess
að fylgja stöðlum Guðs eftir bestu
getu.“
Mælt er með því að Vottar Jehóva
eignist maka í sömu trú. „Biblían er
skrifuð okkur til hagsbóta og þegar
maður er með einhverjum sem er
með sömu gildi og maður sjálfur
þá gengur sambandið oft betur
en annars. En þetta fer allt saman
eftir frjálsum vilja þó Biblían mæli
með því að vera með einhverjum af
sömu trú. Það er auðveldar . Þegar
Linda segist alltaf hafa haft sína barnatrú en verið dæmigerður íslenskur unglingur sem svaf af sér fermingarfræðsluna og fermdist fyrir pakkana. FréttAbLAðið/ViLheLm
Linda Ósk segir að í Biblíunni sé
mælt með því að halda sig frá
blóði. „Þetta er mjög viðkvæmt
umræðuefni. Oft er spurt hvort
við viljum að börnin okkar deyi,
en auðvitað vill það enginn og það
vilja allir halda lífi og vilja það besta
fyrir börnin sín. Okkur er kennt að
bera mikla virðingu fyrir lífi.
Það er að koma mikið í ljós í
nýjustu rannsóknum að þessi
mikla blóðgjöf sem verið hefur í
læknavísindunum er ekki jafn sak-
laus og talið hefur verið. Ef þú færð
átta mismunandi blóðgjafir í þig
þá færðu í raun átta mismunandi
DNA í líkamann sem getur reynst
erfitt fyrir hann að vinna úr. Í Dan-
mörku kom nýlega tilkynning þar
sem fólk, sem hafði fengið blóð-
gjöf á ákveðnu tímabili, var beðið
um að koma til skoðunar því það
voru miklar líkur á að það hefði
smitast af AIDS. Fólk hefur alveg
jafn mikið dáið við það að fá blóð
eins og ekki. Það er ekki jafn mikið
talað um það í fjölmiðlum en ef
maður kannar þetta vel kemur
í ljós að mikið er um aukaverk-
anir af blóðgjöf. Það hefur orðið
ákveðin vakning í læknavísindum
að undanförnum árum varðandi
þetta málefni.“
Fréttablaðið bar þessar full-
yrðingar undir Tómas Guðbjarts-
son, yfirlækni á Landspítalanum.
Hann segir allt gert til að koma til
móts við kröfur Votta Jehóva. „Það
er engin spurning að blóðgjafir al-
mennt eru lífsbjargandi á hverjum
degi. Við gætum ekki framkvæmt
þær opnu hjartaaðgerðir sem við
erum að gera án þess að hafa blóð.
Ég hef sjálfur gert að áverkum á
fólki á Íslandi þar sem hefur þurft
næstum 50 lítra af blóði. En við
skurðlæknar eru meðvitaðir um
óskir Votta Jehóva. Þeir eru flestir
tilbúnir að tengjast hjarta- og
lungnavél, sem er fyllt með vökva
sem er í alls konar efni en ekki
blóð. Í þeim aðgerðum er reynt
allt til að halda blóðtapi í skefjum.
Það er gert samkomulag um það
að ef blæðir mikið eftir aðgerðina
þá sé ekki gefið blóð og þeir eru
þá heldur til í að láta lífið eftir það.
Þetta er auðvitað stressandi fyrir
teymið og skurðlækninn en þetta
er samt gert. En það er samt rétt
sem hún segir að blóð er í raun
vefur úr annarri manneskju. Það
eru rannsóknir sem sýna að þetta
bælir aðeins ónæmiskerfið. Það er
ekki æskilegt að gefa neinum blóð
nema hann þurfi þess. Ég og mitt
rannsóknarteymi höfum stundað
miklar rannsóknir á hvernig við
getum dregið úr þeim, en þær eru
engu að síður algjörlega nauðsyn-
legur hluti af okkar vopnum til að
fleyta sjúklingum í gegnum stórar
aðgerðir.“
Myndi hafna blóðgjöf
Þegar Þú skírist sem
Vottur JehóVa Þá
ertu að taka á Þig
ákVeðna ábyrgð og
segJa að Þér Þyki bibl-
ían innihalda bestu
gildin og Þú VilJir
gera Þitt besta til að
fylgJa Þeim. ef Þú
síðan ákVeður að
fara á móti ÞVí Þá
getur Þú ekki Verið
Vottur JehóVa leng-
ur. Þetta er pínu eins
og að sækJa um Vinnu
í banka. Þá Þarf að
fylgJa reglum og
stefnu bankans.
fólk giftir sig og sækir blessun frá
Guði þá er gott að hafa í huga að
hann er búinn að setja ákveðinn
leiðarvísi um hvernig hjónabandið
virkar best og í Biblíunni eru tól til
þess að hjálpa fólki að stuðla að góðu
hjónabandi. Það getur samt auðvitað
margt komið upp en það er betra að
fólk reyni að vinna í sambandinu í
stað þess að hlaupa frá því eins og er
mjög algengt í dag.“ Hún segist hafa
hrifist af því hversu mörg sterk pör
séu innan safnaðarins, samanborið
við mörg brotin sambönd í kringum
sig áður.
„Það að vera Vottur Jehóva finnst
mér vera mikill heiður. Maður er að
bera nafn þess æðsta í heiminum,
Jehóva (Jehóva er nafn Guðs sem
tekið hefur verið úr flestum Biblíu-
þýðingum síðustu aldar). Maður
er í raun eins og fulltrúi Guðs, þess
sem skapaði allt og er yfir öllu. Ég
hélt að ég myndi aldrei verða Vottur
Jehóva en þegar maður hefur öðlast
þá þekkingu sem er að finna í Biblí-
unni þá langar mann að verða það
á endanum. Ég sé ekki eftir þeirri
ákvörðun.“
visir.is Lengri útgáfa er á Vísi.
2 5 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r26 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
8
5
-3
6
6
0
1
C
8
5
-3
5
2
4
1
C
8
5
-3
3
E
8
1
C
8
5
-3
2
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K