Fréttablaðið - 25.03.2017, Síða 29

Fréttablaðið - 25.03.2017, Síða 29
Samfélagsábyrgð og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna Velkomin á morgunverðarfund 30. mars nk. Ný Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun eru viðmið til að takast á við fjölþætt vandamál. Hvernig þau verða uppfyllt er í höndum ríkja heims og mikilvægt að stjórn­ völd, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar láti til sín taka. Landsvirkjun mun leggja áherslu á þrjú af heimsmarkmiðunum sem falla vel að áherslum fyrirtækisins; loftslagsmál, sjálfbæra orkuvinnslu og jafnrétti. Á fundinum deilum við reynslu okkar og leitum leiða til að skýra hvernig fyrirtæki geti breytt hnatt­ rænum viðmiðum í raunverulegar aðgerðir. Loftslagsmál - heimsmarkmið 13 Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar Jafnrétti kynjanna - heimsmarkmið 5 Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu Sjálfbær orka - heimsmarkmið 7 Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs Fundarstjóri: Stella Marta Jónsdóttir, forstöðumaður verkefnastofu Landsvirkjunar Hótel Reykjavík Natura 30. mars 2017 kl. 8:30-10:00 (morgunkaffi hefst kl. 8.00) Við hvetjum fólk til að mæta á fundinn með umhverfisvænum ferðamáta Allir velkomnir Skráning á www.landsvirkjun.is Geta hnattræn viðmið orðið að raunverulegum aðgerðum? Virðing fyrir heimili og fjölskyldu Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er sér- staklega vikið að fjölskyldulífi þess. 1 Aðildarríkin skulu gera árangursríkar og viðeigandi ráð- stafanir í því skyni að uppræta mismunun gagnvart fötluðu fólki í öllum málum sem lúta að hjónabandi, fjölskyldu, for- eldrahlutverki og samböndum, á sama hátt og gildir um aðra, til þess að tryggja megi: l að réttur alls fatlaðs fólks, sem til þess hefur náð tilskildum aldri, til að ganga í hjónaband og stofna fjölskyldu, með frjálsu og fullu samþykki hjóna- efnanna, sé virtur, l að réttur fatlaðs fólks til óheftr- ar og ábyrgrar ákvarðanatöku um fjölda barna og tíma milli fæðinga og til að hafa aðgang, þar sem tekið er tillit til aldurs, að upplýsingum og fræðslu um getnað og fjölskylduáætlanir sé viðurkenndur og að því séu tiltæk nauðsynleg ráð sem gera því kleift að nýta sér þennan rétt. l að fatlað fólk, þ.m.t. börn, fái haldið frjósemi sinni til jafns við aðra. Seinfærir foreldrar eru fyrst og fremst fólk og manneskjur,“ segir dr. Hanna Björg Sigurjóns- dóttir, prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands. Hanna Björg hefur í aldarfjórðung rannsakað líf og aðstæður fjölskyldna þar sem for- eldrar eru seinfærir . „Það eru engar rannsóknir, mér vitanlega, sem hafa sýnt fram á bein tengsl greindar og hversu hæf við erum sem foreldrar. Það er hins vegar mýta sem margir trúa. Margir halda að seinfærir foreldrar séu allt öðruvísi en aðrir foreldrar,“ segir Hanna Björg og bendir á að sein- færir foreldrar séu jafn misjafnir og þeir eru margir. „Í öllum fjölskyldum erum við misjafnlega sett með svo margt. Það sem skiptir máli er hvert stuðningsnetið er í kringum okkur, hver reynslan er, hvað við þekkjum til barna, hvernig hefur verið hugsað um okkur. Það er svo margt sem skiptir máli þegar kemur að færni okkar sem foreldra.“ Hanna Björg segir að með fullgild- ingu samnings Sameinuðu þjóðanna sé gerð krafa um að við virðum rétt fatlaðs fólks til fjölskyldulífs. Að barn sé aldrei tekið af foreldrum sínum einungis vegna fötlunar foreldris eða barns. Samningurinn sé skýr að því leyti. Hér á landi er fjöldi seinfærra fjöl- skyldna. Hanna Björg segir þó mikil- vægt að hengja sig ekki í greiningar. Stærsta vandamál seinfærra foreldra séu fordómar og vantrú á hæfni þeirra sem uppalenda. „Ég ítreka að það er svo margt sem skiptir máli í færni foreldra. Það er bara ekki klippt og skorið. Eitt af því sem fólk hefur lýst er að þegar það segir frá því hver staða þess er, hver greiningin er, þá breytist framkoman við það. Það er stutt í það að fólk setji samasemmerki á milli seinfærni og þess að vera vanhæfur uppalandi,“ segir hún. Hanna Björg segir að þeir sem veita seinfærum fjölskyldum stuðning verði að trúa á foreldrana og virða tengsl foreldra og barns. „Stuðningur- inn þarf að beinast bæði að fjölskyld- unni sem heild og hverjum einstakl- ingi í fjölskyldunni. Svo er mikilvægt eins og María nefnir að stuðningur sé reglulegur og veittur til langs tíma. Þjónustan á líka að vera sveigjanleg og foreldrar eiga að upplifa sig við stjórn. Sumir þurfa mikinn stuðning, aðrir minni. Margir eru mjög góðir for- eldrar en þurfa mismikinn stuðning. Fyrst og fremst manneskjur Fyrst og fremst þurfa þeir sem eru í stuðningshlutverki að hlusta og koma ekki fram af dómhörku. Það er mjög margt gott fólk sem er að veita stuðning. Það á ekki að stjórna. Það á að styðja. Ef við viljum að fólki mistakist, þá tölum við í boðhætti. Ef við komum inn með fordóma, þá finnum við yfirleitt það sem staðfestir fyrirframgefnar hugmyndir okkar. Við þurfum að vera næm og horfa á styrkleikana líka. Við erum flest með þessar fyrirframgefnu hugmyndir um hvernig foreldrar eiga að vera, hvað þeir eiga að gera. Við þurfum eiginlega að reyna að vera víðsýnni og virða fjöl- breytileikann,“ segir Hanna Björg og segir líklegt að íslenskt fjölskyldulíf sé mun fjölbreyttara en margur heldur. Hönnu Björgu þykir vænt um að fylgjast með börnum seinfærra for- eldra vaxa úr grasi. „Mér þykir mest vænt um að sjá hversu sterk tengsl eru á milli barna og foreldra í þessari stöðu. Og að sjá að langflest barnanna sem voru send í fóstur hafa komið til baka, viljað taka upp samband við foreldra sína.“ Hanna Björg Sigurjónsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. fréttaBlaðið/gva h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 29l A U g A R D A g U R 2 5 . m A R s 2 0 1 7 2 5 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 0 4 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 8 5 -1 3 D 0 1 C 8 5 -1 2 9 4 1 C 8 5 -1 1 5 8 1 C 8 5 -1 0 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.