Fréttablaðið - 25.03.2017, Side 32

Fréttablaðið - 25.03.2017, Side 32
Heimsálfan græna hefur lengi verið draumur helstu ferðalanga. Afríka býður upp á allt: hvítar strendur, náttúrufegurð, dýralíf, ótrúlega ætt- bálkamenningu og lifandi borgar- líf. Margir hafa sett verðmiðann fyrir sig þegar þeir hafa verið að íhuga ferðalag þangað, það er hins vegar hægt að komast til margra landa álfunnar og ferðast þar um á verði hefðbundins bakpokaferða- lags. Sjálf eyddi ég tæpum þremur mánuðum í álfunni fyrr á þessu ári, á ferðalagi um Malaví og Sambíu, og að vinna og ferðast um í tvo mánuði í Gana. Allt eru þetta tiltölulega örugg og ódýr lönd sem bjóða upp á stór- kostlegar upplifanir. Fyrir dýravini býður suðurhluti álfunnar upp á mesta fjörið. Þar er hægt að komast á safarí og keyra um milli helstu aðalpersóna Konungs ljónanna. Það vita það ekki allir en helstu dýr Afríku eru ekki á vappi á götunni heldur mega þau einungis eiga heima í þjóðgörðum þar sem þau njóta ákveðinnar verndar. Sjálf heimsótti ég South Luangwa-þjóð- garðinn, níu þúsund ferkílómetra- gimstein í Sambíu. Þar var hægt að gista í tvær nætur, fá allar máltíðir og heimsækja þjóðgarðinn tvisvar með leiðsögumanni fyrir 150 doll- ara. Aðstaðan og maturinn var frá- bær og alveg ótrúleg upplifun að vera umkringd dýrum bæði í þjóð- garðinum en líka á landi hótelsins. Fíll kíkti í heimsókn og ruddi niður girðingu, aparnir sátu í kringum okkur þegar við lásum við stöðu- vatnið þar, og maður þurfti að læsa dyrunum á kvöldin enda flóðhestar duglegir að spássera um á nóttunni. Afríka er ódýrari en þú heldur Marga ferðalanga dreymir um ferðalag um Afríku enda mjög fjölbreytt afþreying þar í boði. Margir setja þó verðið fyrir sig, en ef vel er skoðað er hægt að lifa tiltölulega ódýrt á bakpokaferðalagi um „álfuna grænu“. Allir geta fundið eitthvað fyrir sinn smekk í heimsálfunni hvort sem það er að fylgjast með dýralífi, mannlífi, heimsækja fallega fossa eða slaka á við hvíta strönd. NORDICPHOTOS/GETTY/N. RUFFALO skoða vatnadýralíf í suðurhluta Afr- íku geta einnig heimsótt Mósambík og Zanzibareyju við Tansaníu. Gana er með langa strandlengju þar sem eru þægileg gistiheimili frá austri til vesturs. Í vestri er sérstaklega vinsælt að prófa brimbretti, en varasamt er að synda nokkurs staðar án þess að vera búin að athuga ölduganginn en öldurnar eru mjög sterkar víðast hvar við ströndina. Í öllum Afríkuríkjum er að finna fjölbreytta menningu hvað varðar mat, listir og tónlist. Vestur-Afríka er sérstaklega þekkt fyrir trommu- menningu sína, en talið er að hún hafi borist til Karíbahafseyja og haft áhrif á þróun tónlistar þar. Hægt er að fara á trommunámskeið í Gana, eða ein- faldlega fara á vinsæla skemmtistaði til að heyra hressa tóna. Í Malaví er einnig vinsælt að spila á trommur við varðeld á ströndinni, algjör hápunkt- ur í ferð minni þangað. Í Sambíu eru svo skemmtilegar danshefðir, sumar hverjar sem eru sérstaklega fyrir konur og iðkaðar í aðdraganda hátíða eins og brúðkaupa. Hægt er að kaupa afrískar grímur víða, en fyrir þá sem eru til í smá handavinnu er skemmti- legast að búa eina slíka til en það er í boði í Cape Coast í Gana. Hægt er að fara á matreiðslunámskeið og læra að gera helstu þjóðarréttina víða en þau geta verið ansi dýr, einfaldara er ef maður þekkir einhvern innfæddan að fá bara að fylgjast með. Styttra, auðveldara og ódýrara er að ferðast um Afríku en margir gera sér grein fyrir. Einnig er friðsælla í flest- um löndum en margir halda. Áður en haldið er í Afríkureisu þarf auðvitað að skoða vel hvernig aðstæður eru í viðkomandi landi, passa upp á bólu- setningar og taka malaríulyfin með, en það er allt þess virði til að upp- götva þessa ótrúlegu álfu. Ef Tenerife eða borgarferð til Evrópu hljómar ekki nógu spennandi sem næsta ferð mæli ég eindregið með að draga fram bakpokann og koma sér suður. Meðalkostnaður við að ferðast um í Gana, Malaví og Sambíu Gana Sambía Malaví Flug Flug til og frá helstu staða í Afríku kostar 100 til 150 þúsund krónur frá Íslandi. Algengt er að fljúga í gegnum London, París eða Amster- dam, allt eftir því hvaða löndum Afríkuríkin tilheyrðu áður. Gisting 10 til 20 dollarar nóttin fyrir her- bergi fyrir par eða koju í átta manna herbergi á hosteli eða skála. Matur Undir 600 krónum fyrir máltíð á „local“ veitingastöðum í Gana og Malaví eða götumat (sem er almennt öruggur). Ódýrast er að borða matinn sem ræktaður er á svæðinu sem er oftast kjúklingur, hrísgrjón og baunir. Í Sambíu eru máltíðir oft innifaldar í verðinu fyrir safarípakka. Ávextir og götumatur er ódýr en höfuð- borgin Lúsaka er mun dýrari. Samgöngur Ódýrast er að ferðast milli staða í rútum eða smárútum og í Gana má deila leigubílum fyrir undir 100 krónum milli helstu staða í bæjum. Rútur í Sambíu eru á áætlun en í Malaví fara þær ekki af stað fyrr en þær fyllast. Smárútur í Gana fara ekki af stað fyrr en þær hafa fyllst sem oftast tekur um klukkutíma. Ef nokkrir ferðast saman getur borgað sig að semja við leigu- bílstjóra um heilan dag. Það kostar um 5.000 krónur fyrir hálfan dag í Gana. Sæunn Gísladóttir saeunn@frettabladid.is Helstu lönd sem bjóða upp á safarí eru auk Sambíu Suður- Afríka, Tansanía, Botsvana og Kenýa. Þó er hægt að kynna sér dýralíf í fleiri löndum. Bæði Gana og Malaví eru með þjóðgarða sem vert er að heimsækja. Ég fékk fylli mína í Sambíu og kaus frekar að heimsækja fílaverndarsvæði í Sambíu og mónumarkettina í regn- skógi í Volta-héraði í Gana, enda var það ódýrara en annað safarí og skemmtileg leið til að kynnast einu dýri sérstaklega. Þeir sem hafa meiri áhuga á lands- lagi en dýrum geta sleppt safarí og farið beint í að skoða náttúruna í öllum þessum löndum. Fyrir fjalla- garpa er ógrynni af fjöllum í boði til að klífa. Þekktasta fjall Afríku er án efa Kilimanjaro sem tekur marga daga að klífa og kostar mörg hundruð þúsund krónur að fá að heimsækja. Þeir sem vilja verja minna fé geta farið á eigin vegum eða með leið- sögumanni gegn vægu gjaldi, venju- lega undir nokkrum þúsund krónum, upp á fjöll í Malaví og Gana. Útsýnið þar er stórfenglegt, sérstaklega nálægt Malavístöðuvatninu og í Volta-héraði í Gana. Oft- ast er hægt að skipuleggja göngur í með milligöngu gisti- heimila. Það eru ekki bara fjöll í þessum löndum heldur eru einnig fallegir fossar. Viktoríufossa má heimsækja bæði Simbabve- og Sambíumegin, einnig eru minni fossar í norður- hluta Sambíu og margir í Gana. Það er eiginlega ekkert betra en að ganga í gegnum frumskóg og enda gönguna á sundi í ískaldri bunu úr fossi eins og til dæmis við Wli-foss í Gana sem sagður er vera hæsti foss Vestur-Afríku. Sambía og Malaví eru landlukt. Þrátt fyrir það er hægt að slaka á á ströndinni ef maður heimsækir löndin tvö. Malavístöðuvatnið er tæplega 30 þúsund ferkílómetrar að stærð og er frábært að gista á Nkahta Bay svæðinu þar og slaka á á ströndinni, snorkla í stöðuvatninu eða þá fara í bátsferð og stinga sér fram af klettum. Þeir sem vilja sér- staklega njóta stranda og þess að 2 5 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r32 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 2 5 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 0 4 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 8 4 -F B 2 0 1 C 8 4 -F 9 E 4 1 C 8 4 -F 8 A 8 1 C 8 4 -F 7 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.