Fréttablaðið - 25.03.2017, Síða 32
Heimsálfan græna hefur lengi verið draumur helstu ferðalanga. Afríka býður upp á allt: hvítar strendur,
náttúrufegurð, dýralíf, ótrúlega ætt-
bálkamenningu og lifandi borgar-
líf.
Margir hafa sett verðmiðann
fyrir sig þegar þeir hafa verið að
íhuga ferðalag þangað, það er hins
vegar hægt að komast til margra
landa álfunnar og ferðast þar um á
verði hefðbundins bakpokaferða-
lags. Sjálf eyddi ég tæpum þremur
mánuðum í álfunni fyrr á þessu ári,
á ferðalagi um Malaví og Sambíu, og
að vinna og ferðast um í tvo mánuði
í Gana. Allt eru þetta tiltölulega örugg
og ódýr lönd sem bjóða upp á stór-
kostlegar upplifanir.
Fyrir dýravini býður suðurhluti
álfunnar upp á mesta fjörið. Þar er
hægt að komast á safarí og keyra um
milli helstu aðalpersóna Konungs
ljónanna. Það vita það ekki allir en
helstu dýr Afríku eru ekki á vappi á
götunni heldur mega þau einungis
eiga heima í þjóðgörðum þar sem
þau njóta ákveðinnar verndar. Sjálf
heimsótti ég South Luangwa-þjóð-
garðinn, níu þúsund ferkílómetra-
gimstein í Sambíu. Þar var hægt að
gista í tvær nætur, fá allar máltíðir
og heimsækja þjóðgarðinn tvisvar
með leiðsögumanni fyrir 150 doll-
ara. Aðstaðan og maturinn var frá-
bær og alveg ótrúleg upplifun að
vera umkringd dýrum bæði í þjóð-
garðinum en líka á landi hótelsins.
Fíll kíkti í heimsókn og ruddi niður
girðingu, aparnir sátu í kringum
okkur þegar við lásum við stöðu-
vatnið þar, og maður þurfti að læsa
dyrunum á kvöldin enda flóðhestar
duglegir að spássera um á nóttunni.
Afríka er ódýrari en þú heldur
Marga ferðalanga dreymir um ferðalag um Afríku enda mjög fjölbreytt afþreying þar í boði. Margir setja þó
verðið fyrir sig, en ef vel er skoðað er hægt að lifa tiltölulega ódýrt á bakpokaferðalagi um „álfuna grænu“.
Allir geta fundið eitthvað fyrir sinn smekk í heimsálfunni hvort sem það er að fylgjast með dýralífi, mannlífi, heimsækja fallega fossa eða slaka á við hvíta strönd. NORDICPHOTOS/GETTY/N. RUFFALO
skoða vatnadýralíf í suðurhluta Afr-
íku geta einnig heimsótt Mósambík
og Zanzibareyju við Tansaníu. Gana
er með langa strandlengju þar sem
eru þægileg gistiheimili frá austri til
vesturs. Í vestri er sérstaklega vinsælt
að prófa brimbretti, en varasamt er
að synda nokkurs staðar án þess að
vera búin að athuga ölduganginn en
öldurnar eru mjög sterkar víðast hvar
við ströndina.
Í öllum Afríkuríkjum er að finna
fjölbreytta menningu hvað varðar
mat, listir og tónlist. Vestur-Afríka
er sérstaklega þekkt fyrir trommu-
menningu sína, en talið er að hún hafi
borist til Karíbahafseyja og haft áhrif
á þróun tónlistar þar. Hægt er að fara
á trommunámskeið í Gana, eða ein-
faldlega fara á vinsæla skemmtistaði
til að heyra hressa tóna. Í Malaví er
einnig vinsælt að spila á trommur við
varðeld á ströndinni, algjör hápunkt-
ur í ferð minni þangað. Í Sambíu eru
svo skemmtilegar danshefðir, sumar
hverjar sem eru sérstaklega fyrir
konur og iðkaðar í aðdraganda hátíða
eins og brúðkaupa. Hægt er að kaupa
afrískar grímur víða, en fyrir þá sem
eru til í smá handavinnu er skemmti-
legast að búa eina slíka til en það er í
boði í Cape Coast í Gana. Hægt er að
fara á matreiðslunámskeið og læra
að gera helstu þjóðarréttina víða en
þau geta verið ansi dýr, einfaldara er
ef maður þekkir einhvern innfæddan
að fá bara að fylgjast með.
Styttra, auðveldara og ódýrara er að
ferðast um Afríku en margir gera sér
grein fyrir. Einnig er friðsælla í flest-
um löndum en margir halda. Áður en
haldið er í Afríkureisu þarf auðvitað
að skoða vel hvernig aðstæður eru í
viðkomandi landi, passa upp á bólu-
setningar og taka malaríulyfin með,
en það er allt þess virði til að upp-
götva þessa ótrúlegu álfu. Ef Tenerife
eða borgarferð til Evrópu hljómar
ekki nógu spennandi sem næsta ferð
mæli ég eindregið með að draga fram
bakpokann og koma sér suður.
Meðalkostnaður við að ferðast um í Gana, Malaví og Sambíu
Gana
Sambía Malaví
Flug
Flug til og frá helstu staða í Afríku
kostar 100 til 150 þúsund krónur
frá Íslandi. Algengt er að fljúga í
gegnum London, París eða Amster-
dam, allt eftir því hvaða löndum
Afríkuríkin tilheyrðu áður.
Gisting
10 til 20 dollarar
nóttin fyrir her-
bergi fyrir par eða
koju í átta manna
herbergi á hosteli
eða skála.
Matur
Undir 600 krónum fyrir
máltíð á „local“ veitingastöðum
í Gana og Malaví eða götumat (sem
er almennt öruggur). Ódýrast er að
borða matinn sem ræktaður er á
svæðinu sem er oftast kjúklingur,
hrísgrjón og baunir. Í Sambíu eru
máltíðir oft innifaldar í verðinu
fyrir safarípakka. Ávextir og
götumatur er ódýr en höfuð-
borgin Lúsaka er mun
dýrari.
Samgöngur
Ódýrast er að ferðast
milli staða í rútum eða
smárútum og í Gana má deila
leigubílum fyrir undir 100 krónum
milli helstu staða í bæjum. Rútur í
Sambíu eru á áætlun en í Malaví fara þær
ekki af stað fyrr en þær fyllast. Smárútur
í Gana fara ekki af stað fyrr en þær hafa fyllst
sem oftast tekur um klukkutíma. Ef nokkrir ferðast
saman getur borgað sig að semja við leigu-
bílstjóra um heilan dag. Það kostar um
5.000 krónur fyrir hálfan dag í Gana.
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
Helstu lönd sem bjóða upp á
safarí eru auk Sambíu Suður-
Afríka, Tansanía, Botsvana og
Kenýa. Þó er hægt að kynna
sér dýralíf í fleiri löndum. Bæði
Gana og Malaví eru með þjóðgarða
sem vert er að heimsækja. Ég fékk
fylli mína í Sambíu og kaus frekar
að heimsækja fílaverndarsvæði í
Sambíu og mónumarkettina í regn-
skógi í Volta-héraði í Gana, enda
var það ódýrara en annað safarí og
skemmtileg leið til að kynnast einu
dýri sérstaklega.
Þeir sem hafa meiri áhuga á lands-
lagi en dýrum geta sleppt safarí og
farið beint í að skoða náttúruna í
öllum þessum löndum. Fyrir fjalla-
garpa er ógrynni af fjöllum í boði
til að klífa. Þekktasta fjall Afríku er
án efa Kilimanjaro sem tekur marga
daga að klífa og kostar mörg hundruð
þúsund krónur að fá að heimsækja.
Þeir sem vilja verja minna fé geta
farið á eigin vegum eða með leið-
sögumanni gegn vægu gjaldi, venju-
lega undir nokkrum
þúsund krónum,
upp á fjöll í Malaví
og Gana. Útsýnið
þar er stórfenglegt,
sérstaklega nálægt
Malavístöðuvatninu og
í Volta-héraði í Gana. Oft-
ast er hægt að skipuleggja
göngur í með milligöngu gisti-
heimila.
Það eru ekki bara fjöll í þessum
löndum heldur eru einnig fallegir
fossar. Viktoríufossa má heimsækja
bæði Simbabve- og Sambíumegin,
einnig eru minni fossar í norður-
hluta Sambíu og margir í Gana.
Það er eiginlega ekkert betra en að
ganga í gegnum frumskóg og enda
gönguna á sundi í ískaldri bunu úr
fossi eins og til dæmis við Wli-foss í
Gana sem sagður er vera hæsti foss
Vestur-Afríku.
Sambía og Malaví eru landlukt.
Þrátt fyrir það er hægt að slaka á
á ströndinni ef maður heimsækir
löndin tvö. Malavístöðuvatnið er
tæplega 30 þúsund ferkílómetrar
að stærð og er frábært að gista á
Nkahta Bay svæðinu þar og slaka á
á ströndinni, snorkla í stöðuvatninu
eða þá fara í bátsferð og stinga sér
fram af klettum. Þeir sem vilja sér-
staklega njóta stranda og þess að
2 5 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r32 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
8
4
-F
B
2
0
1
C
8
4
-F
9
E
4
1
C
8
4
-F
8
A
8
1
C
8
4
-F
7
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K