Fréttablaðið - 25.03.2017, Qupperneq 36
Yesmine er mörgum að góðu kunn fyrir skemmtilega matreiðsluþætti en hún er
einnig þekkt sem dansari og einka-
þjálfari. Hún hefur gefið út nokkrar
matreiðslubækur og er óhrædd
við að takast á við nýjar áskoranir.
„Ég er nýbyrjuð að vinna aftur
sem einkaþjálfari í World Class í
Smáralind og í Ögurhvarfi. Yfirleitt
vinn ég mikið heima en mér finnst
gott að byrja daginn á því að fara í
World Class að kenna því hreyfing
hefur alltaf verið stór hluti af mínu
lífi. Þetta brýtur líka upp daginn
hjá mér,“ segir Yesmine en henni
líður best þegar hún hefur nóg að
gera.
Undanfarið hefur Yesmine fetað
nýjar slóðir og unnið sem gesta-
kokkur á mismunandi vinnu-
stöðum. „Í síðustu viku var ég
t.d. að elda hjá Ölgerðinni. Þetta
er mjög skemmtilegt og mikil
áskorun. Það eru líka forréttindi
að fá að elda með flottum kokkum.
Ég hef líka verið önnum kafin við
að kenna fólki að elda og ekki haft
mikinn tíma í annað. Þess vegna
er gott að hafa einkaþjálfunina
með, þetta er góð blanda. Það er
líka frábært að fá að vinna við það
sem maður hefur mest gaman af að
gera,“ segir Yesmine en hún heldur
reglulega námskeið í indverskri
matreiðslu heima hjá sér. Henni
finnst skemmtilegast að elda mat
sem kemur fólki á óvart. „Það er
svo gaman að leyfa fólki að smakka
eitthvað nýtt og upplifa stemning-
una sem er í kringum indverskan
mat.“
Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457
Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Vörunúmer: 00501-0162
Í Danmörk kr 12.851*
Í Svíþjóð kr 11.287*
*Skv. Verðskrá Levi.com og gengistöflu
Íslandsbanka 24.03.17
501 ORIGINAL KR.
11.990
Leví s Kringlunni – Leví s Smáralind – Leví s Glerártorgi
Yesmine heldur
matreiðslunám-
skeið heima hjá
sér. MYND/ANTON
„Þetta byrjaði allt með því að ég skrifaði þrjár matreiðslubækur með áherslu
á indverska matargerð.“ MYND/ANTON BRINK
matarpartí eða bara elda góðan,
sterkan mat fyrir fjölskylduna,“
segir hún og bætir við að best sé að
tryggja sér pláss á námskeiði hjá
sér í gegnum tix.is.
Hrifin af „street food“
Yesmine fylgist vel með nýjum
straumum og stefnum í matargerð,
ekki síst þegar kemur að hollum
réttum. Hún segist lengi hafa verið
hrifin af svokölluðu „street food“
hvaðanæva úr heiminum og hún
reyni að búa til hollari útfærslu á
slíkum mat. Spurð hvort hún eldi
dæmigerðan íslenskan mat, eins og
ýsu og lambakjöt, skellir Yesmine
upp úr. „Getur þú séð mig fyrir þér
að elda ýsu? Nei, ég borða ekki
ýsu því ég er alin upp í Svíþjóð og
þar vandist ég þorski og laxi. Ég
er hins vegar svo heppin að vera
gift manni úr sveit, sem á fullt af
lömbum, hænum og hestum hjá
foreldrum sínum í sveitinni, svo að
ég á alltaf lambakjöt, egg og fer í
nokkrar góðar hestaferðir á hverju
ári til að ná góðri jarðtengingu. Ég
er mjög hrifin af íslenskum matar-
hefðum þótt ég borði hvorki slátur
né hákarl og maðurinn minn eldar
oft kjötbollur og sunnudagslamba-
lærið.“
Slakar best á heima
Þegar Yesmine er ekki að vinna
finnst henni gaman að fara á
skíði, enda alin upp við það í Sví-
þjóð. „Við fjölskyldan förum oft á
hestbak og í veiði og þá höfum við
alltaf nesti með okkur. Ég nenni
ekki að fara neitt nema fá eitthvað
gott að borða líka.“
Annars segist Yesmine vera
heimakær og nýtur þess að slaka
á heima hjá sér með manni og
börnum. „Mér finnst gaman að
elda góðan mat í góðra vina hópi
og hlusta á skemmtilega tónlist. Ég
þarf ekki meira en það.“
Gaman að borða góðan mat
Innt eftir því hvers vegna hún hafi
svona mikinn áhuga á mat segir
Yesmine að það sé sennilega af því
að henni finnist matur svo góður.
„En ég valdi ekki að vinna með mat,
maturinn valdi mig. Þetta byrjaði
allt með því að ég skrifaði þrjár
matreiðslubækur með áherslu á
indverska matargerð. Í raun ætlaði
ég aldrei að kenna matreiðslu eða
vinna með mat,“ segir Yesmine.
Hún leggur áherslu á að
fólk skemmti sér vel við elda-
mennskuna. „Mér finnst gaman að
maturinn komi fólki ánægjulega
á óvart og vona að námskeiðin
verði til þess að fólk haldi áfram
að elda indverskt. Þetta er ekki
aðeins eldamennska heldur líka
stemningin í kringum matinn.
Ég kenni grunnatriði í indverskri
matargerð sem kemur sér vel hvort
sem fólk ætlar að halda indverskt
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . M A R S 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
8
5
-5
8
F
0
1
C
8
5
-5
7
B
4
1
C
8
5
-5
6
7
8
1
C
8
5
-5
5
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K