Fréttablaðið - 25.03.2017, Page 42
Viltu taka þátt í ævintýrinu?
WDS sér um yfir 70.000
vörukynningar á ári í verslunum
í Bretlandi fyrir hönd Costco.
Þessar kynningar gera það
að verkum að kaupendurnir
kynnast vörunum á nýjan hátt.
Það er frábær upplifun að fá að
smakka, lykta og snerta vöruna
ásamt því að fræðast um hana
áður en hún er keypt. Þetta
gerir upplifun kaupandans svo
miklu meiri og skemmtilegri.
FAST
Ráðningar
Umsjón með störfunum hefur Lind
hjá Fast ráðningum,
lind@fastradningar.is og í síma 552-1606
Umsóknarfrestur er til og
með 9. april nk.
Umsækjendur er vinsamlegast beðnir að
sækja um störfin á heimasíðunni,
www.fastradningar.is
Warehouse Demo Services (WDS) er fyrirtæki sem vinnur náið með Costco í Bretlandi. Starfsmenn þess sjá um allar vörukynningar
í verslunum Costco. Við leitum að áhugasömum aðilum til að starfa við vörukynningar í nýrri verslun Costco á Íslandi.
Þetta gæti verið einmitt rétta starfið fyrir þig ef þér finnst gaman að ræða við fólk um hágæða vörur og ekki skemmir fyrir ef þú
hefur áhuga á mat. Störfin felast í að kynna matvörur, drykkjarvörur og margskonar gæða búsáhöld.
Þessi störf henta mjög vel fyrir aðila sem vilja starfa fyrir alþjóðlegt fyrirtæki, fá góða þjálfun og vera hluti af stórum hópi af
eldhressum starfsmönnum þar sem gæði og góð þjónusta er lykilatriði.
Um hlutastörf er að ræða og er bæði hægt að vinna þrjá daga í viku eða um helgar. Hentar bæði aðilum sem leita að hlutastarfi
með námi og einnig aðilum á öllum aldri sem vilja vinna hlutastörf. Lágmarksaldur er 18 ára en ekkert hámark :-)
Störf við vörukynningar í verslun Costco
Kynningarmyndband um starfið: https://vimeo.com/fizzexperience
Hæfniskröfur:
• Hafa gaman af því að fræða og kynna
• Vera opinn og jákvæður persónuleiki
• Hafa frábæra samskiptahæfni
• Afburða þjónustuhæfni
Verkefnastjóri í ferðaþjónustu
Markmið Atlantik er að virkja eldmóð
og keppnisanda hjá hæfu, traustu og
áhugasömu starfsfólki. Starfsfólk Atlantik
sýnir frumkvæði, þjónustulund og tekur
virkan þátt í því að efla þjónustu og
heildarhag fyrirtækisins með því að skara
fram úr en styðja jafnframt hvert við annað
og vinna saman.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á
www.atlantik.is
Nánari upplýsingar veita Bylgja Björk Pálsdóttir (bylgja@intellecta.is) og Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) í síma 511-1225.
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2017. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og
kynningarbréf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða reynsla af starfi í
ferðaþjónustu
• Þekking á Íslandi og framboði ferðaþjónustu æskileg
• Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
• Skipulagshæfni
• Geta til að vinna undir álagi
• Góð almenn tölvukunnátta, þekking á Excel er kostur
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti,
önnur tungumálakunnátta er kostur
• Samskiptahæfni og þjónustulund
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
• Sala, tilboðsgerð, úrvinnsla og framkvæmd
ferða á Íslandi fyrir hvataferðahópa,
ráðstefnur og viðburði auk ferða fyrir farþega
af skemmtiferðaskipum
• Samskipti við innlenda samstarfsaðila og
erlenda viðskiptavini
• Sölu- og markaðsmál
• Þátttaka í vöruþróun og hugmyndavinnu um
nýjungar í ferðaþjónustu
• Aðstoð við önnur verkefni á álagstímum
Intellecta, Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225.
Atlantik leitar að verkefnastjóra í fjölbreytt, krefjandi og skemmtilegt starf í ferðaþjónustu. Um fullt
framtíðarstarf er að ræða og viðkomandi þarf að geta unnið yfirvinnu þegar á þarf að halda.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Sölumaður
Helstu verkefni:
• Sala á vinnufatnaði, öryggisskóm og tengdum vörum
• Öflun og viðhald viðskiptasambanda við viðskiptavini
fyrirtækisins
• Innkaup í samvinnu við innkaupastjóra
• Samskipti við innlenda og erlenda birgja
• Gerð kynningar- og markaðsefnis í samráði við sölu-
og markaðsstjóra
• Söluferðir og heimsóknir til viðskiptavina
Menntun- og hæfniskröfur:
• Reynsla af sölustörfum
• Menntun með áherslu á sölu- og markaðsfræði
• Góð íslensku- og enskukunnátta, danska er kostur
• Góð almenn tölvukunnátta
• Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Upplýsingar veitir:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl nk.
Traust fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu leitar að öflugum sölumanni á vinnufatnaði og rekstrarvörum.
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
8
5
-5
4
0
0
1
C
8
5
-5
2
C
4
1
C
8
5
-5
1
8
8
1
C
8
5
-5
0
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K