Fréttablaðið - 25.03.2017, Side 55
Hnit verkfræðistofa óskar eftir að ráða verk- eða
tæknifræðing til að annast framkvæmdaráðgjöf,
eftirlit með verklegum framkvæmdum, verkefna-
stjórnun og áætlanagerð.
Menntunar- og hæfniskröfur:
– Að lágmarki B.Sc. gráða í verk- eða tæknifræði
– Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
– Góð samskiptafærni og jákvætt hugarfar
– Einhver starfsreynsla er æskileg, en ekki skilyrði
Umsóknir óskast sendar á kristinn@hnit.is. Farið verður
með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Um er að ræða framtíðarstarf.
Umsóknarfrestur er til 5. apríl.
FRAMKVÆMDARÁÐGJÖF
http://www.hnit.is
Rekstrarstjóri Framkvæmda-
og umhverfissviðs
Laust er til umsóknar starf rekstrarstjóra framkvæmda- og
umhverfissviðs sveitarfélagsins Húnaþings vestra. Um er að ræða
100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að öflugum og
metnaðarfullum einstaklingi í starf rekstrarstjóra framkvæmda- og
umhverfissviðs.
Starfssvið rekstrarstjóra
• Stjórnun verklegra framkvæmda og viðhaldsmála
í sveitarfélaginu.
• Gerð fjárhagsáætlana og eftirlit með fjárreiðum framkvæmda- og
umhverfissviðs í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar um gerð
fjárhagsáætlana og eftirlit með fjárreiðum sveitarfélagsins.
• Áætlanagerð og eftirlit. Meðal annars með
o þjónustumiðstöð (áhaldahúss)
o eignasjóði
o hitaveitu
o fráveitu
o vatnsveitu
o hafnarsjóði,
o öðrum eignum sveitarfélagsins sem falla undir starfsemi
framkvæmda- og umhverfissvið í samráði og samvinnu við
aðra starfsmenn sviðsins og sveitarstjóra.
• Rekstrarstjóra er ætlað að sitja fundi skipulags- og umhverfisráðs
og aðra fundi er falla undir verksvið framkvæmda- og umhverfiss
viðs skv. ákvörðun sviðsstjóra og sveitarstjóra hverju sinni.
• Önnur mál á sviði framkvæmdar- og umhverfissviðs í samráði
við sveitarstjóra.
• Rekstrarstjóri hefur starfsstöð í Ráðhúsi Húnaþings vestra.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Meistarapróf í löggiltri iðngrein sem nýtist í starfi og/eða
háskólapróf í tæknigreinum kostur.
• Reynsla af verklegum framkvæmdum er nauðsynleg.
• Reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg.
• Reynsla af áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðar- og
fjárhagsáætlanagerð er æskileg.
• Góð almenn tölvuþekking skilyrði, kunnátta á teiknihugbúnaði
er kostur.
• Leiðtogahæfni, jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum
samskiptum er mikilvæg.
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni.
• Geta til að tjá sig í ræðu og riti.
Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur um starf rekstrarstjóra Framkvæmda- og umh-
verfissviðs Húnaþings vestra er til og með 11. apríl nk. Stefnt skal
að því að viðkomandi hefji störf frá og með 1. júlí eða eftir nánara
samkomulagi.
Umsóknir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skrifstofu
Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstangi.
Öllum umsóknum verður svarað skriflega. Áhugasamir geta kynnt
sér starfsemi Húnaþings vestra á heimasíðu sveitarfélagsins
www.hunathing.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir
Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri í síma 455-2400.
Hvammstangi í Húnaþingi vestra er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins
með um 600 íbúa en íbúar í Húnaþingi vestra eru 1.180. Hvammstangi er í
alfaraleið, aðeins 6 km. frá þjóðvegi 1 og í u.þ.b. tveggja klst. akstursfjarlægð
frá Reykjavík og Akureyri. Í Húnaþingi vestra er til staðar öll almenn opinber
þjónusta auk annarrar fjölbreyttrar þjónustu. Möguleikar til útivistar, íþrótta,
afþreyingar og félagsstarfa eru fjölmargir og því er Húnaþing vestra góður
búsetukostur fyrir fjölskyldufólk.
Um er að ræða fullt starf. Gert er ráð fyrir ráða í stöðuna snemmsumars og að
viðkomandi hefji störf í sumar eða haust, eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til
og með 17. apríl 2017. Umsóknir berist á hlemmur@hlemmurmatholl.is. Allar frekari
upplýsingar veitir Bjarki Vigfússon í síma 693 3958 / bjarki@hlemmurmatholl.is
___________________________________________________________________________________
Hlemmur – Mathöll er nýr yfirbyggður matarmarkaður á Hlemmi þar
sem sameinast undir einu þaki 10 metnaðarfullir matarkaupmenn og
veitingastaðir. Til stendur að opna Hlemm í byrjun sumars.
MARKAÐS•STJÓRI
Við leitum að framúrskarandi markaðsstjóra fyrir nýja
mathöll á Hlemmi. Markaðsstjóri hefur umsjón með
markaðsmálum, viðburðahaldi og verkefnum tengdum
daglegum rekstri mathallarinnar.
HÆFNISKRÖFUR
• Haldbær reynsla og þekking á markaðsmálum
og viðburðahaldi er krafa.
• Reynsla af rekstri er kostur.
• Reynsla af verkefnastjórn og hæfni til að sinna
mörgum verkefnum samtímis.
• Reynsla og þekking á markaðssetningu á
samfélagsmiðlum.
• Áhugi á mat, matarmenningu og viðburðahaldi.
• Mikið sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
• Góð samskiptahæfni, tölvukunnátta og
íslensku- og enskukunnátta.
STARFSLÝSING
• Umsjón með markað málum, þ.m.t.
sam félags miðlum.
• Skipulagning viðburða og
útimarkaða.
• Samstarf og samskipti við
kaupmenn.
• Samskipti við verktaka,
þjónustuaðila og viðskiptavini.
• Önnur tilfallandi verkefni tengd
daglegum rekstri.
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi
ATVINNUAUGLÝSINGAR 17 L AU G A R DAG U R 2 5 . m a r s 2 0 1 7
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
8
5
-7
1
A
0
1
C
8
5
-7
0
6
4
1
C
8
5
-6
F
2
8
1
C
8
5
-6
D
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K