Fréttablaðið - 25.03.2017, Síða 67
Salurinn okkar
hentar einkar vel
fyrir hvers kyns veislur,
t.d. brúðkaup, afmæli,
fermingarveislur, skírn-
arveislur, erfidrykkjur og
jafnvel ættarmót hafa
verið haldin hér hjá
okkur.
Kristján Eysteinsson
Næg bílastæði eru við safnaðarheimilið og Háteigskirkju.
Kristján J.
Eysteinsson,
kirkjuhaldari
Háteigskirkju,
ásamt Birnu
Birgisdóttur
(t.v.), ritara
Reykjavíkur-
prófastsdæmis
vestra, og
Rannveigu Evu
Karlsdóttur
kirkjuverði.
MYND/EYÞÓR
Veislusalurinn er um 200 m² að flatarmáli og tekur 130 til 140 manns í sæti
og um 180 manns í standandi viðburði. MYND/EYÞÓR
Veislusalur Safnaðarheimilis Háteigskirkju í Reykjavík er einstaklega vel staðsettur,
bjartur og fallegur og hentar fyrir
flest öll tilefni. Salurinn, sem er á
annarri hæð hússins, er um 200 m²
að flatarmáli og tekur 130 til 140
manns í sæti og um 180 manns í
standandi viðburði, að sögn Krist-
jáns Eysteinssonar, kirkjuhaldara
Háteigskirkju. „Salurinn okkar
hentar einkar vel fyrir hvers kyns
veislur, t.d. brúðkaup, afmæli,
fermingarveislur, skírnarveislur,
erfidrykkjur og jafnvel ættarmót
hafa verið haldin hér hjá okkur.
Fyrirtæki, félagasamtök og stofn-
anir leigja hann líka fyrir árshátíðir
og skemmtanir og einnig fyrir fundi
og ráðstefnur. Leikskólar leigja
salinn fyrir jólatrésskemmtanir og
aðra viðburði. Auk þess er hann
leigður af kórum eða öðru tón-
listarfólki sem heldur tónleika í
kirkjunni en notar salinn e.t.v. fyrir
smá fagnað á eftir eða sem almenna
aðstöðu.“
Einn stór kostur við salinn er að
það er innangengt milli hans og
kirkjunnar. „Safnaðarheimilið og
kirkjan eru tengd með glergangi og
er gangurinn oft nýttur fyrir mót-
tökur í brúðkaupum og hægt er að
opna dyr til að komast út á verönd
sem snýr að garðinum. Einnig er
hægt að ganga af svölum annarrar
hæðar niður í garðinn milli safn-
aðarheimilisins og kirkjunnar.“
Frábærlega staðsettur
veislusalur og gott aðgengi
Safnaðarheimili Háteigskirkju í Reykjavík býr yfir björtum og fallegum sal sem hentar undir fjölda-
viðburði af öllum stærðum og gerðum. Salurinn er vel búinn tækjum og með mjög gott fram-
reiðslueldhús. Sérstakur starfsmaður undirbýr allt fyrir leigutaka sem kemur að salnum tilbúnum.
Vel tækjum búinn
Salurinn hefur fullkominn skjávarpa
í lofti sem er tengdur við vandað
hljóðkerfi með þráðlausum hljóð-
nemum. „Einnig er píanó hér og
hægt er að koma fyrir litlum hljóm-
sveitum ef því er að skipta. Hljóð-
kerfið er þó aðeins gert fyrir afspilun
úr tækjum, t.d. tölvum, símum, iPad,
iPod, geislaspilara eða til að flytja
talað mál. Þráðlaus nettenging er í
salnum.“
Fullkomið framreiðslueldhús
er í salnum með kæliskáp, eldavél,
blástursofni og hraðvirkri upp-
þvottavél. „Í eldhúsinu er því hægt
að taka á móti veisluföngum og
undirbúa veislur á auðveldan hátt.
Allur borðbúnaður er til staðar fyrir
veislur af öllum stærðum.“ Í húsinu
er einnig lyfta með nægu rými fyrir
hjólastól auk þess sem snyrting með
aðgengi fyrir fatlaða er á efri hæð
hússins.
Allt tilbúið
Sérstakur starfsmaður hefur umsjón
með öllum viðburðum í salnum
að sögn Kristjáns. „Ef salurinn er
bókaður þá sér viðkomandi um
allan undirbúning, stillir salnum
upp, dúkar borð og sér um þjónustu
og framreiðslu í veislum og síðan
allan frágang á eftir. Þannig getur
leigutaki komið að salnum tilbúnum
og veislan getur hafist. Fólk getur
pantað veitingar hjá umsjónarfólki
salarins eða komið með veisluföngin
sjálft. Áfengi er ekki selt í salnum en
fólki er heimilt koma með sín eigin
vínföng.“
Safnaðarheimilið er við Háteigs-
veg 27-29, 105 Reykjavík. Aðgengi
að heimilinu er mjög gott og er
fjöldi bílastæða við bæði heimilið
og kirkjuna. Bókanir á salarleigu eru
í síma 511 5400 eða á netfanginu
hateigskirkja@hateigskirkja.is.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 5 . m a R S 2 0 1 7
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
8
5
-6
C
B
0
1
C
8
5
-6
B
7
4
1
C
8
5
-6
A
3
8
1
C
8
5
-6
8
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K