Fréttablaðið - 25.03.2017, Side 78

Fréttablaðið - 25.03.2017, Side 78
Ófreskisaugu: Nú geta menn sjeð í myrkri og þoku og í gegn um holt og hæðir.“ Þessa grípandi fyrir-sögn mátti sjá í Les- bók Morgunblaðsins sumarið 1927. Umfjöllunarefnið var ýmsar upp- finningar skoska hugvitsmannsins Johns Logie Baird, en þó einkum sú nýjasta sem að sögn íslensku blað- anna myndi gera mönnum kleift að sjá fólk, skip og flugvélar í dimmasta myrkri eða svörtustu þoku. „Maður sá, sem mynd á að send- ast af langar leiðir, getur nú setið í í kolsvarta myrkri, en hinir ósýni- legu geislar, sem beint er að honum, flytja lifandi mynd af honum langar leiðir. Uppgötvun þessi getur haft stórkostlega þýðingu á mörgum sviðum. Í ófriði geta t.d. flugvjelar og njósnarar ekki látið náttmyrkur skýla sjer. Með hjálp hinna ósýni- legu geisla og vjelar Bairds, er hægt að sjá til ferða þeirra, án þess að þeir hafi hugmynd um.“ Óhætt er að segja að íslensku blaðamennirnir hafi verið óþarflega fljótir á sér. Meðal þess sem John Logie Baird og samstarfsmenn hans unnu að á seinni hluta þriðja ára- tugarins voru tilraunir með nætur- sjón og gerð búnaðar til að nema innrautt ljós. Tilraunirnar voru þó enn smáar í sniðum og bundnar við tilraunastofur, þótt vissulega mætti láta sig dreyma um stórfelldari hag- nýtingu tækninnar síðar meir. Er þetta hvorki í fyrsta né síðasta sinn sem hrifnæmir blaðamenn gera of mikið úr nýjustu tækniframförum. Áhugavert er þó að svo snemma sem árið 1927 hafi íslensk blöð fjallað um John Logie Baird eins og heimskunnan uppfinningamann sem búast mátti við að lesendur kynnu deili á. Aðeins tveimur árum fyrr var þessi, að miklu leyti sjálf- menntaði, uppfinningamaður með öllu óþekktur í veröldinni. Baird fæddist í Vestur-Skotlandi árið 1888 og nam vélfræði og raf- magnsfræði við tækniskóla og háskóla í Glasgow en fyrri heims- styrjöldin kom í veg fyrir að hann lyki námi. Hann sóttist eftir að ganga í herinn, en fékk ekki inngöngu vegna bágrar heilsu. Þess í stað hóf hann störf hjá fyrirtæki sem sinnti sprengiefnagerð. Þegar stríðinu lauk sneri Baird sér að sínu helsta hugðarefni: sjón- varpstækninni. Þrotlausar tilraunir hans báru að lokum árangur og er hann almennt sagður uppfinninga- maður sjónvarpsins, en hefð er fyrir að tímasetja þann atburð árið 1926. Fjölmiðlasprengjur Reyndar má endalaust deila um hvort hægt sé að eigna einum manni heiðurinn af sjónvarpinu. Mikil gróska var í rannsóknum á útvarps- bylgjun og á sviði ljósfræði í byrjun tuttugustu aldar. Vísindalegar for- sendur sjónvarpsins voru vel þekkt- ar og sjálft heitið, „television“, var löngu komið fram. Veturinn 1925-6 tókst Baird að varpa lifandi and- litsmynd af samstarfsmanni sínum á skjá í nokkurri fjarlægð. Það má heita fyrsta sjónvarpssendingin í sögunni og í þeim skilningi má tala um sjónvarpið sem uppfinn- ingu Bairds, en útilokað má telja að honum hefði tekist að fá skráð einkaleyfi á fyrirbærinu enda fátt frumlegt við búnaðinn. Framlag Bairds fólst því í að þróa hagnýtar og nothæfar útfærslur á uppgötvunum annarra. Sagan segir að strax að lokinni þessari fyrstu sjónvarpsútsendingu hafi Baird hlaupið á ritstjórnarskrif- stofur eins stóru Lundúnablaðanna til að segja frá afreki sínu. Þegar rit- stjórinn frétti af þessum óðamála gesti sem segðist geta varpað lifandi myndum frá einum stað til annars, á hann að hafa látið öryggisgæsluna vita að vitfirringur væri kominn í heimsókn, líklega hættulegur og mögulega vopnaður. Sumir aðdáenda Bairds harma það mjög hversu gjarn hann var á að segja fjölmiðlum frá nýjustu afrekum sínum og ljóstra þannig upp um viðfangsefni sín. Telja þeir að með örlítið meiri þagmælsku og varkárni, hefði Baird getað fullkomnað tækni sína í friði og ró og þannig öðlast yfirburðastöðu í kapphlaupinu um þróun sjónvarpsins. Sitthvað er við þá söguskoðun að athuga. Ekki hvað síst að Baird hafði ekkert fjárhagslegt bolmagn til að þróa sjónvarpstækni á laun, með tilheyrandi efniskostnaði og launum fjölda aðstoðarmanna. Þess í stað hlaut hann að reyna að fanga athygli fjársterkra aðila með því að sýna afrakstur tilrauna sinna jafnóðum, þótt keppinautar kynnu að njóta góðs af þeim upplýsingum. Næstu árin var Baird ítrekað í frétt- um vegna sjónvarpstilrauna sinna, sem allar miðuðust að því að sann- færa umheiminn um að gerlegt væri að þróa tæknina áfram og gera hana að almenningseign með tíð og tíma. Stöðugt fjölgaði þeim sem fengið höfðu að sjá sjónvarpsútsendingar hans og blaðafrægðin fylgdi í kjöl- farið, eins og íslensku blöðin leiddu í ljós þegar á árinu 1927. Helsta keppikefli Bairds var að sannfæra stjórnendur BBC, breska ríkisútvarpsins, um að veðja á sjón- varp. BBC sýndi tækninni mikinn áhuga, enda eðlilegt að líta á hana sem rökrétt framhald af hljóð- varpi. Fyrirtækið setti því mikið fé í þróunar starf og hóf til að mynda snemma tilraunaútsendingar á kyrr- um myndum, þar á meðal veðurspá- kortum. Það voru einkum tvö fyrirtæki sem létu að sér kveða í sjónvarps- stríðinu í byrjun fjórða áratugarins. Annars vegar fyrirtæki Bairds sjálfs, en hins vegar hið alþjóðlega Marc- oni-fyrirtæki sem stofnað hafði verið um rekstur loftskeytakerfa ítalska uppfinningamannsins Marc- onis. Síðarnefnda fyrirtækið var miklu stærra, ríkara og hafði yfir að búa fullkomnum rannsóknarstofum og fjölda tæknimanna. Þrátt fyrir aflsmuninn helltu Baird og fyrirtæki hans sér út í slaginn og komu upp stórri sjónvarpsmiðstöð í Crystal Palace-tækniþróunarmið- stöðinni, sem komið hafði verið fyrir í hluta samnefndrar sýningarhallar í Sydenham-hverfinu í Lundúnum. Þaðan var sjónvarpað ýmiss konar efni, svo sem hnefaleikakeppnum og einföldum sjónvarpsleikritum til að kynna tæknina og hvetja efna- fólk höfuðborgarinnar til að koma sér upp sjónvarpsviðtækjum, sem voru að skjóta upp kollinum á mark- aðnum. Það var líka frá stöðinni í Crystal Palace sem gerðar voru til- raunir með langdrægni útsendinga um miðjan fjórða áratuginn. Inn í þá sögu drógust Íslendingar með harla óvenjulegum hætti. Íslendingar ríða á vaðið Fyrir nokkrum misserum var afhjúp- að á Akureyri söguskilti um upphaf sjónvarps á Íslandi. Þar er rakin lítt þekkt saga um að á árunum 1934 til 1936 hafi breski verkfræðingur- inn Fredrik Livingstone Hogg og Grímur Sigurðsson, síðar útvarps- virkjameistari, tekið við sjónvarps- sendingum frá Bretlandi. Búnaðinn munu þeir félagarnir hafa fengið að hluta að utan en að öðru leyti smíðað sjálfir. Þeir Hogg og Grímur tóku við sjónvarpsmerkjunum í hús- inu Sjónarhæð. Þar var að finna heljarmikil móttökuloftnet frá því nokkrum árum fyrr þegar breskur trúboði, Arthur Gook að nafni, rak þar trúarlega útvarpsstöð sem áður hefur verið fjallað um á þessum vettvangi. Hafði Hogg raunar verið tæknimaður Sjónarhæðarútvarps- stöðvarinnar. Synd væri að segja að þeir Hogg og Grímur hafi mikið verið að hampa þessari tilraunamennsku sinni. Þannig fluttu íslensku blöðin reglu- lega fregnir af sjónvarpstilraunum Breta, án þess að hafa hugmynd um að útsendingarnar hefðu náðst norður í landi. Margar þessara frétta eru mjög tæknilegar og benda til góðs skilnings höfunda á eðli sjón- varpsins, en aðrar fólu í sér vanga- veltur um framtíðina. Til dæmis spurði blaðamaður Alþýðublaðsins sig þeirrar spurningar snemma árs 1935 hvenær Íslendingar myndu hafa ráð á „að koma upp fjarsýni s- stöð við hliðina á Ríkisútvarpinu“. Og komst að þeirri niðurstöðu að það ætti ekki að vera mjög langt þangað til. Það segir ef til vill sína sögu um hversu langt var í raun frá Akureyri til Reykjavíkur að enginn blaða- maður fyrir sunnan hafði hugmynd um sjónvarpstilraunirnar nyrðra. Það var því ekki fyrr en mörgum ára- tugum síðar að Grímur Sigurðsson sagði frá þeim í útvarpsviðtali. Af upprifjun hans mátti ráða að mynd- inni sem náðist hafi verið varpað upp á örsmáan skjá og að skýrleiki útsendingarinnar hafi verið mjög mismunandi eftir dögum. Stundum hafi myndin verið það góð að greina mátti á henni smáatriði. Velta má því fyrir sér hvort sjón- varpstilraunirnar á Akureyri hefðu fengið stærri sess í sögunni ef fyrir- tæki Bairds hefði ekki orðið undir í samkeppninni um þróun sjón- varpsins. BBC ákvað á árinu 1936 að halda áfram tilraunaútsendingum með báðum tæknikerfunum, þótt ýmsar vísbendingar væru komnar fram um að kerfi Marconi-félags- ins væri hentugra. Mikill eldsvoði í Crystal Palace síðar á sama ári, þar sem sjónvarpsstöð og upptökuver Bairds brunnu til grunna, reyndist fyrirtækinu svo hálfgert rothögg. John Logie Baird hefur að sönnu fengið sinn sess í sögubókum sem brautryðjandi sjónvarpstækninnar, en það skapaði honum lítinn auð. Sjónvarpsáhorf tveggja áhugasamra Akureyringa um miðbik fjórða ára- tugarins rataði því ekki inn í söguna sem hluti af glæstri sigurgöngu alþjóðlegs stórfyrirtækis, heldur er það neðanmálsgrein í hliðarsögu um ævintýri sem hefði getað orðið. Sagan er stundum grimm og alltaf skráð af sigurvegurunum. Fjarsýnisstöð á Íslandi Þegar stríðinu lauk sneri Baird sér að sínu helsta hugðarefni: sjónvarpstækninni. Þrotlausar tilraunir hans báru að lokum árangur. Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um frumherja sjónvarpsins. Snyrtistofan Ha lik MARGIR HALDA ÞAÐ SÉ EKKI HÆGT AÐ FJARLÆGJA HÁRÆÐASLIT ÚR ANDLITI HÁRÆÐASLITSMEÐFERÐ Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com PANTAÐU FRÍAN TÍMA Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA 893-0098 Fyrir Eftir Fyrir Eftir 2 5 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r38 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 2 5 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 0 4 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 8 5 -2 7 9 0 1 C 8 5 -2 6 5 4 1 C 8 5 -2 5 1 8 1 C 8 5 -2 3 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.