Fréttablaðið - 25.03.2017, Qupperneq 78
Ófreskisaugu: Nú geta menn sjeð í myrkri og þoku og í gegn um holt og hæðir.“ Þessa grípandi fyrir-sögn mátti sjá í Les-
bók Morgunblaðsins sumarið 1927.
Umfjöllunarefnið var ýmsar upp-
finningar skoska hugvitsmannsins
Johns Logie Baird, en þó einkum sú
nýjasta sem að sögn íslensku blað-
anna myndi gera mönnum kleift að
sjá fólk, skip og flugvélar í dimmasta
myrkri eða svörtustu þoku.
„Maður sá, sem mynd á að send-
ast af langar leiðir, getur nú setið í
í kolsvarta myrkri, en hinir ósýni-
legu geislar, sem beint er að honum,
flytja lifandi mynd af honum langar
leiðir. Uppgötvun þessi getur haft
stórkostlega þýðingu á mörgum
sviðum. Í ófriði geta t.d. flugvjelar
og njósnarar ekki látið náttmyrkur
skýla sjer. Með hjálp hinna ósýni-
legu geisla og vjelar Bairds, er hægt
að sjá til ferða þeirra, án þess að þeir
hafi hugmynd um.“
Óhætt er að segja að íslensku
blaðamennirnir hafi verið óþarflega
fljótir á sér. Meðal þess sem John
Logie Baird og samstarfsmenn hans
unnu að á seinni hluta þriðja ára-
tugarins voru tilraunir með nætur-
sjón og gerð búnaðar til að nema
innrautt ljós. Tilraunirnar voru þó
enn smáar í sniðum og bundnar við
tilraunastofur, þótt vissulega mætti
láta sig dreyma um stórfelldari hag-
nýtingu tækninnar síðar meir. Er
þetta hvorki í fyrsta né síðasta sinn
sem hrifnæmir blaðamenn gera of
mikið úr nýjustu tækniframförum.
Áhugavert er þó að svo snemma
sem árið 1927 hafi íslensk blöð
fjallað um John Logie Baird eins og
heimskunnan uppfinningamann
sem búast mátti við að lesendur
kynnu deili á. Aðeins tveimur árum
fyrr var þessi, að miklu leyti sjálf-
menntaði, uppfinningamaður með
öllu óþekktur í veröldinni.
Baird fæddist í Vestur-Skotlandi
árið 1888 og nam vélfræði og raf-
magnsfræði við tækniskóla og
háskóla í Glasgow en fyrri heims-
styrjöldin kom í veg fyrir að hann
lyki námi. Hann sóttist eftir að ganga
í herinn, en fékk ekki inngöngu
vegna bágrar heilsu. Þess í stað hóf
hann störf hjá fyrirtæki sem sinnti
sprengiefnagerð.
Þegar stríðinu lauk sneri Baird
sér að sínu helsta hugðarefni: sjón-
varpstækninni. Þrotlausar tilraunir
hans báru að lokum árangur og er
hann almennt sagður uppfinninga-
maður sjónvarpsins, en hefð er fyrir
að tímasetja þann atburð árið 1926.
Fjölmiðlasprengjur
Reyndar má endalaust deila um
hvort hægt sé að eigna einum manni
heiðurinn af sjónvarpinu. Mikil
gróska var í rannsóknum á útvarps-
bylgjun og á sviði ljósfræði í byrjun
tuttugustu aldar. Vísindalegar for-
sendur sjónvarpsins voru vel þekkt-
ar og sjálft heitið, „television“, var
löngu komið fram. Veturinn 1925-6
tókst Baird að varpa lifandi and-
litsmynd af samstarfsmanni sínum
á skjá í nokkurri fjarlægð. Það má
heita fyrsta sjónvarpssendingin
í sögunni og í þeim skilningi má
tala um sjónvarpið sem uppfinn-
ingu Bairds, en útilokað má telja
að honum hefði tekist að fá skráð
einkaleyfi á fyrirbærinu enda fátt
frumlegt við búnaðinn. Framlag
Bairds fólst því í að þróa hagnýtar og
nothæfar útfærslur á uppgötvunum
annarra.
Sagan segir að strax að lokinni
þessari fyrstu sjónvarpsútsendingu
hafi Baird hlaupið á ritstjórnarskrif-
stofur eins stóru Lundúnablaðanna
til að segja frá afreki sínu. Þegar rit-
stjórinn frétti af þessum óðamála
gesti sem segðist geta varpað lifandi
myndum frá einum stað til annars,
á hann að hafa látið öryggisgæsluna
vita að vitfirringur væri kominn í
heimsókn, líklega hættulegur og
mögulega vopnaður.
Sumir aðdáenda Bairds harma
það mjög hversu gjarn hann var á að
segja fjölmiðlum frá nýjustu afrekum
sínum og ljóstra þannig upp um
viðfangsefni sín. Telja þeir að með
örlítið meiri þagmælsku og varkárni,
hefði Baird getað fullkomnað tækni
sína í friði og ró og þannig öðlast
yfirburðastöðu í kapphlaupinu um
þróun sjónvarpsins. Sitthvað er við
þá söguskoðun að athuga. Ekki hvað
síst að Baird hafði ekkert fjárhagslegt
bolmagn til að þróa sjónvarpstækni
á laun, með tilheyrandi efniskostnaði
og launum fjölda aðstoðarmanna.
Þess í stað hlaut hann að reyna að
fanga athygli fjársterkra aðila með
því að sýna afrakstur tilrauna sinna
jafnóðum, þótt keppinautar kynnu
að njóta góðs af þeim upplýsingum.
Næstu árin var Baird ítrekað í frétt-
um vegna sjónvarpstilrauna sinna,
sem allar miðuðust að því að sann-
færa umheiminn um að gerlegt væri
að þróa tæknina áfram og gera hana
að almenningseign með tíð og tíma.
Stöðugt fjölgaði þeim sem fengið
höfðu að sjá sjónvarpsútsendingar
hans og blaðafrægðin fylgdi í kjöl-
farið, eins og íslensku blöðin leiddu
í ljós þegar á árinu 1927.
Helsta keppikefli Bairds var að
sannfæra stjórnendur BBC, breska
ríkisútvarpsins, um að veðja á sjón-
varp. BBC sýndi tækninni mikinn
áhuga, enda eðlilegt að líta á hana
sem rökrétt framhald af hljóð-
varpi. Fyrirtækið setti því mikið fé
í þróunar starf og hóf til að mynda
snemma tilraunaútsendingar á kyrr-
um myndum, þar á meðal veðurspá-
kortum.
Það voru einkum tvö fyrirtæki
sem létu að sér kveða í sjónvarps-
stríðinu í byrjun fjórða áratugarins.
Annars vegar fyrirtæki Bairds sjálfs,
en hins vegar hið alþjóðlega Marc-
oni-fyrirtæki sem stofnað hafði
verið um rekstur loftskeytakerfa
ítalska uppfinningamannsins Marc-
onis. Síðarnefnda fyrirtækið var
miklu stærra, ríkara og hafði yfir að
búa fullkomnum rannsóknarstofum
og fjölda tæknimanna.
Þrátt fyrir aflsmuninn helltu Baird
og fyrirtæki hans sér út í slaginn og
komu upp stórri sjónvarpsmiðstöð
í Crystal Palace-tækniþróunarmið-
stöðinni, sem komið hafði verið fyrir
í hluta samnefndrar sýningarhallar
í Sydenham-hverfinu í Lundúnum.
Þaðan var sjónvarpað ýmiss konar
efni, svo sem hnefaleikakeppnum
og einföldum sjónvarpsleikritum
til að kynna tæknina og hvetja efna-
fólk höfuðborgarinnar til að koma
sér upp sjónvarpsviðtækjum, sem
voru að skjóta upp kollinum á mark-
aðnum. Það var líka frá stöðinni í
Crystal Palace sem gerðar voru til-
raunir með langdrægni útsendinga
um miðjan fjórða áratuginn. Inn í þá
sögu drógust Íslendingar með harla
óvenjulegum hætti.
Íslendingar ríða á vaðið
Fyrir nokkrum misserum var afhjúp-
að á Akureyri söguskilti um upphaf
sjónvarps á Íslandi. Þar er rakin lítt
þekkt saga um að á árunum 1934
til 1936 hafi breski verkfræðingur-
inn Fredrik Livingstone Hogg og
Grímur Sigurðsson, síðar útvarps-
virkjameistari, tekið við sjónvarps-
sendingum frá Bretlandi. Búnaðinn
munu þeir félagarnir hafa fengið
að hluta að utan en að öðru leyti
smíðað sjálfir.
Þeir Hogg og Grímur tóku
við sjónvarpsmerkjunum í hús-
inu Sjónarhæð. Þar var að finna
heljarmikil móttökuloftnet frá því
nokkrum árum fyrr þegar breskur
trúboði, Arthur Gook að nafni, rak
þar trúarlega útvarpsstöð sem áður
hefur verið fjallað um á þessum
vettvangi. Hafði Hogg raunar verið
tæknimaður Sjónarhæðarútvarps-
stöðvarinnar.
Synd væri að segja að þeir Hogg og
Grímur hafi mikið verið að hampa
þessari tilraunamennsku sinni.
Þannig fluttu íslensku blöðin reglu-
lega fregnir af sjónvarpstilraunum
Breta, án þess að hafa hugmynd
um að útsendingarnar hefðu náðst
norður í landi. Margar þessara frétta
eru mjög tæknilegar og benda til
góðs skilnings höfunda á eðli sjón-
varpsins, en aðrar fólu í sér vanga-
veltur um framtíðina. Til dæmis
spurði blaðamaður Alþýðublaðsins
sig þeirrar spurningar snemma árs
1935 hvenær Íslendingar myndu
hafa ráð á „að koma upp fjarsýni s-
stöð við hliðina á Ríkisútvarpinu“.
Og komst að þeirri niðurstöðu að
það ætti ekki að vera mjög langt
þangað til.
Það segir ef til vill sína sögu um
hversu langt var í raun frá Akureyri
til Reykjavíkur að enginn blaða-
maður fyrir sunnan hafði hugmynd
um sjónvarpstilraunirnar nyrðra.
Það var því ekki fyrr en mörgum ára-
tugum síðar að Grímur Sigurðsson
sagði frá þeim í útvarpsviðtali. Af
upprifjun hans mátti ráða að mynd-
inni sem náðist hafi verið varpað
upp á örsmáan skjá og að skýrleiki
útsendingarinnar hafi verið mjög
mismunandi eftir dögum. Stundum
hafi myndin verið það góð að greina
mátti á henni smáatriði.
Velta má því fyrir sér hvort sjón-
varpstilraunirnar á Akureyri hefðu
fengið stærri sess í sögunni ef fyrir-
tæki Bairds hefði ekki orðið undir
í samkeppninni um þróun sjón-
varpsins. BBC ákvað á árinu 1936 að
halda áfram tilraunaútsendingum
með báðum tæknikerfunum, þótt
ýmsar vísbendingar væru komnar
fram um að kerfi Marconi-félags-
ins væri hentugra. Mikill eldsvoði í
Crystal Palace síðar á sama ári, þar
sem sjónvarpsstöð og upptökuver
Bairds brunnu til grunna, reyndist
fyrirtækinu svo hálfgert rothögg.
John Logie Baird hefur að sönnu
fengið sinn sess í sögubókum sem
brautryðjandi sjónvarpstækninnar,
en það skapaði honum lítinn auð.
Sjónvarpsáhorf tveggja áhugasamra
Akureyringa um miðbik fjórða ára-
tugarins rataði því ekki inn í söguna
sem hluti af glæstri sigurgöngu
alþjóðlegs stórfyrirtækis, heldur er
það neðanmálsgrein í hliðarsögu
um ævintýri sem hefði getað orðið.
Sagan er stundum grimm og alltaf
skráð af sigurvegurunum.
Fjarsýnisstöð á Íslandi
Þegar stríðinu lauk sneri Baird sér að sínu helsta hugðarefni: sjónvarpstækninni. Þrotlausar tilraunir hans báru að lokum árangur.
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um frumherja
sjónvarpsins.
Snyrtistofan Ha lik
MARGIR HALDA ÞAÐ SÉ EKKI HÆGT AÐ
FJARLÆGJA HÁRÆÐASLIT ÚR ANDLITI
HÁRÆÐASLITSMEÐFERÐ
Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
PANTAÐU FRÍAN TÍMA
Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA
893-0098
Fyrir Eftir
Fyrir Eftir
2 5 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r38 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
8
5
-2
7
9
0
1
C
8
5
-2
6
5
4
1
C
8
5
-2
5
1
8
1
C
8
5
-2
3
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K