Fréttablaðið - 06.02.2017, Qupperneq 10
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Okkar ástkæri
Birgir Pétursson
verkfræðingur
Sundabakka 8, Stykkishólmi,
sem lést af slysförum
28. janúar sl, verður jarðsunginn
frá Stykkishólmskirkju laugardaginn
11. febrúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Katrín Gísladóttir Pétur Kristinsson
Kristinn Magnús Pétursson Dagbjört Ýr Kiesel
Sigríður Þorvaldsdóttir
Sigríður Erla Sturludóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Ragnar Guðmundsson
Ásgarði 77, Reykjavík,
lést 26. janúar. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 7. febrúar
kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á heimahlynningu Landspítalans.
Elín Bergljót Björgvinsdóttir
Björgvin Ragnarsson
Steinunn Björk Ragnarsdóttir Árni Sigurðsson
Hrafnhildur Ragnarsdóttir Valur Heiðar Sævarsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
Ágúst Frankel Jónasson
Hagamel 41, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 30. janúar
sl. Útförin fer fram í Fossvogskirkju,
miðvikudaginn 8. febrúar kl. 15.
Dagbjört K. Ágústsdóttir Jóhann Þorvaldsson
Jónas I. Ágústsson Guðrún Gunnarsdóttir
Unnur S. Ágústsdóttir Brynjólfur Björnsson
Svala Ágústsdóttir Gunnar S. Bollason
Harpa Hrönn Frankelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
,
Á þessum degi fyrir 59 árum fórst flug nr. 609 frá British European Airwaves á flugbrautinni við flugvöllinn í München. Af þeim 44 farþegum sem voru um borð
fórust 23. Um borð voru liðsmenn knattspyrnuliðsins Man
chester United ásamt þjálfurum, starfsmönnum, blaða
mönnum og öðru fylgdarliði. Vélin var á leiðinni heim til
Englands frá Belgrad í Júgóslavíu þar sem liðið hafði leikið
við Rauðu stjörnuna í Evrópukeppninni. Leikurinn í Belgrad
endaði 33 og með því tryggði United sig áfram í undanúr
slitin. Mikið slabb var á flugbrautinni sem torveldaði flug
vélinni að taka á loft og gerði það að það verkum að hún
rann út af flugbrautinni á miklum hraða og lenti á girðingu.
Liðsmenn United á þessum árum gengu undir nafninu The
Busby Babes, í höfuðið á þjálfara sínum, Matt Busby, vegna
þess hve ungir margir þeirra voru. Sjö þessara leikmanna lét
ustu samstundis í fluglsysinu og sá efnilegasti af þeim öllum,
Duncan Edwards, lést af sárum sínum nokkrum vikum síðar.
Tveir leikmenn til viðbótar lifðu af en léku aldrei aftur vegna
meiðsla sem þeir urðu fyrir í slysinu.
Matt Busby sjálfur var eitt ár að jafna sig af meiðslum sem
hann hlaut. Hann tók svo aftur við liðinu og hóf að endur
byggja það frá grunni. Sléttum tíu árum eftir slysið náði hann
takmarki sínu þegar Manchester United vann Evrópubikarinn
með kempur á borð við George Best og Denis Law innanborðs.
Tveir leikmenn sem lyftu bikarnum árið 1968 voru um borð í
vélinni í München, þeir Bobby Charlton og Bill Foulkes.
Þ ETTA G E R ð i ST 6 . F E B RúA R 1 9 5 8
Flugslysið sem breytti knattspyrnusögunni
Flug nr. 609 frá British European Airwaves á flugbrautinni.
1788 - Massachussetts verður sjötta ríkið til að staðfesta stjórnar-
skrá Bandaríkjanna
1819 - Sir Thomas Raffles finnur Singapúr
1820 - 86 blökkumenn leggja af stað frá New York. Förinni er
heitið til Líberíu þar sem þeir hyggjast stofna nýlendu.
1879 - Magnús Guðmundsson, þriðji forsætisráðherra Íslendinga,
fæðist.
1911 - Ronald Reagan, fertugasti forseti Bandaríkjanna fæðist
1918 - Breskar konur sem hafa náð 30 ára aldri frá kosningarétt
1952 - Georg VI fellur frá, Elísabet II verður drottning
1996 - Boeing 757 vél hrapar við strendur Dóminíska lýðveldisisns.
189 farast
Merkisatburðir
Vinstrihreyfingin – grænt framboð var
formlega stofnuð á þessum degi fyrir 18
árum, eða 6. febrúar árið 1999. Stein
grímur J. Sigfússon, var einn af þeim
sem kom að stofnun flokksins, og segir
afmælisbarnið bera aldurinn vel og
hann sjái ekki eftir einni sekúndu sem
hefur farið í flokkinn. „Ég gæti ekki verið
ánægðari þegar ég lít yfir þessi 18 ár og
þó að mikið af kröftum mínum og tíma
fari í flokkinn hef ég ekki séð eftir einni
sekúndu,“ segir hann.
Steingrímur segir að flokkurinn hafi
orðið til á umrótatímum þegar reynt var
að sameina þrjá flokka; Alþýðubanda
lagið, Alþýðuflokkinn og Kvennalistann.
„Það var stemning fyrir því að efla sam
starf þarna á milli en ekki hversu langt
það ætti að ganga. Það voru nokkur stór
mál sem þessa flokka greindi á um, eins
og utanríkismálin og að einhverju leyti
um velferðarmálin. En með stofnun
VG sameinuðust nokkrir straumar,
umhverfisverndunarsinnar og óflokks
bundið félagshyggjufólk.“
Upphaflega blés ekki byrlega fyrir
flokkinn en smám saman fékk hann
byr í seglin og þegar búið var að telja
atkvæðin í maí var flokkurinn með 9,1
prósent og sex kjörna þingmenn. Voru
tölurnar sagðar stórsigur fyrir flokkinn.
„Þetta var prýðileg kosning og hreyf
ingunni var vel tekið. Það var áhugi á
að svona flokkur væri til. Framhaldið
hefur síðan gengið glimrandi, í það heila
tekið.“
Steingrímur segir að VG hafi haft
afgerandi áhrif á mótun íslenskra stjórn
mála frá því flokkurinn varð til. „Það er
ekki hægt að segja annað en að afmælis
barninu heilsist vel. Í fjölskyldu stjórn
málaaflanna er flokkurinn þróttmikill
og efnilegur unglingur sem líður vel. Við
fengum fína kosningu síðast og gengur
vel í könnunum.
Flokkurinn ber aldurinn vel, hann er
ótvírætt forystuafl til vinstri í íslenskum
stjórnmálum og ber þann kyndil með
myndugleik. Það voru margir með efa
semdir í upphafi um að við kæmumst
á þing en nú er svo komið að við erum
annar stærsti flokkur landsins og for
ystuafl til vinstri. Það er ekki hægt að
segja annað en að þetta hafi farið fram
úr björtustu vonum.“ benediktboas@365.is
VG orðinn unglingur
Vinstrihreyfingin – grænt framboð var stofnuð á þessum degi fyrir 18 árum. Steingrímur
J. Sigfússon, segir að flokkurinn sé leiðandi afl á vinstri vængnum og beri aldurinn vel.
Það er ekki hægt að
segja annað en að
afmælisbarninu heilsist vel. Í
fjölskyldu stjórnmálaaflanna er
flokkurinn þróttmikill og
efnilegur unglingur sem líður
vel.
Frá þingflokksfundi VG í upphafi núverandi þings. Katrín Jakobsdóttir, er núverandi formaður flokksins. FréttABlAðið/Anton
6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M Á N U D a G U r10 t í M a M ó t ∙ f r É t t a b L a ð i ð
tÍmamót
0
6
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
A
-5
D
8
4
1
C
2
A
-5
C
4
8
1
C
2
A
-5
B
0
C
1
C
2
A
-5
9
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K