Fréttablaðið - 06.02.2017, Side 11
sport
Hin hollensk-íslenska Eyþóra Elísabet Þórsdóttir átti glæsilegan dag í Laugardalshöllinni á laugardaginn og steig engin feilspor þegar hún tryggði sér sannfærandi sigur í fimleikakeppni Reykjavíkurleikanna. Hér sést
Eyþóra gera æfingar á jafnvægisslánni en þar fékk Eyþóra sína langhæstu einkunn í keppninni. FRéttabLaðið/Hanna
Fimleikar Eyþóra Elísabet Þórsdótt-
ir keppir vissulega fyrir Holland en
hún var samt komin heim í Laugar-
dalshöllinni um helgina þegar hún
tryggði sér sigur í fimleikakeppni
Reykjavíkurleikanna fyrir framan
ömmu og fjölskyldu sína í stúkunni
og fjölda ungra aðdáenda með
„Áfram Eyþóra“ í fremstu röð.
„Það var mjög gaman að keppa
á Íslandi og yndislegt að sjá að það
eru svo margir sem höfðu áhuga á
þessu og studdu við bakið á mér.
Það voru sem dæmi fullt af litlum
stelpum sem voru með plakat sem á
stóð Eyþóra. Það var mjög skemmti-
legt að sjá það að allir standa með
mér,“ sagði Eyþóra Þórsdóttir kát
með daginn.
Eyþóra var að keppa í fyrsta sinn á
Íslandi og það er ekki hægt að kvarta
mikið yfir útkomunni. Hún vann
glæsilegan sigur en hennar helstu
keppninautar voru hin rússneska
Daria Spiridonova og hin bandaríska
Sydney Johnson-Scharpf.
auðvitað var pínu pressa
„Þetta í fyrsta sinn sem fjölskylda
mín gat séð mig með eigin augum
sem og allir á Íslandi. Auðvitað var
pínu pressa en það er bara að breyta
henni í eitthvað jákvætt og halda
áfram. Það gekk vel og það var mjög
gaman að geta sýnt fólkinu mínu
hvað ég get gert.
Spiridonova og Johnson-Scharpf
voru báðar fyrir ofan hana eftir
stökkið og æfingar á tvíslá en
Eyþóra átti tvær bestu greinar sýnar
eftir og æfingar á jafnvægisslánni og
á gólfi skiluðu henni yfirburðasigri.
Eyþóra endaði með 56.350 stig eða
1.750 stigum meira en Daria Spi-
ridonova sem var önnur.
Var að prófa nýja hluti
„Ég var sátt með frammistöðuna. Við
fórum í þessa keppni með það í huga
að prófa nýja hluti því það er búið að
uppfæra leikreglurnar í fimleikum.
Það þarf því að breyta æfingunum
út frá því. Við gerðum ekki mikið
af breytingum en við prófuðum
nokkra nýja hluti. Þetta var því ekki
alveg sama prógramm og á Ólympíu-
leikunum. Það var flott að ég náði 56
punktum í nýja frammistöðumatinu
sem hefði kannski gefið mér næstum
því 58 punkta í gamla matinu. Það
er mjög fínt að sjá að þetta skili sér
svona vel hjá mér inn í nýja matið,
segir Eyþóra.
Það er mikið í gangi hjá henni
utan fimleikanna því í haust hóf hún
nám við Lucia Marthas Institute for
Performing Art. „Ég byrjaði í nýjum
skóla, sviðslistaháskóla, þar sem
ég er að syngja, dansa og leika alls-
konar hluti. Það er erfitt að gera það
samhliða fimleikunum þó að það sé
mjög gaman. Ég hef mikinn áhuga á
þessu en ég er alltaf að hreyfa mig. Ég
er að dansa, í ballett eða í steppdansi
í skólanum og svo fer ég á æfingu.
Þjálfarinn minn er að hjálpa mér
og reyna að koma þessu öllu saman
inn í æfingarnar mínar þannig að ég
geti farið í skólann og búið til fram-
tíð við hliðina á fimleikunum,“ segir
Eyþóra. En er hún þá líka góð söng-
kona? „Ég er með rödd en það þarf
alltaf að þjálfa hana. Mér finnst mjög
gaman að syngja og bestu fögin mín
í skólanum eru tengd söngnum,“
segir Eyþóra og þá er mikið sagt
enda leyna dans- og balletthæfileikar
hennar sér ekkert þegar hún keppir í
fimleikunum.
Setur stefnuna á tókýó 2020
Hún ætlar sér að samtvinna skólann
og fimleikana áfram. „Ég hef sett
stefnuna á Ólympíuleikana í Tókýó
2020. Það er langt þangað til en við
sjáum bara til hvað gerist. Aðalmálið
er að mér finnst gaman í fimleikum
og ég held áfram eins lengi og ég get
og vil. Ég hef mikla ástríðu fyrir bæði
skólanum og fimleikunum. Þetta er
hörku vinna og það er ekki alltaf auð-
velt að gera þetta bæði í einu,“ segir
Eyþóra.
Hún fékk mjög flott verðlaun á
dögunum þegar hún var kosin bjart-
asta vonin í hollenskum íþróttum.
„Það gerði mér mjög gott. Ég vissi
ekki að ég væri að fá þessi verðlaun.
Ég var í skólanum og í söngprófinu
mínu. Ég var frekar stressuð yfir því
en var nýbúin að klára síðustu nót-
una mína og þá kom bara einhver
inn í stofuna. Ég vissi ekki hver það
var og fékk svolítið sjokk af því að ég
vissi ekkert hvað hann ætlaði að gera.
Þetta er frægur tónlistarmaður í Hol-
landi og mjög gaman að þeir ákváðu
að afhenda verðlaunin svona, segir
Eyþóra. En munum við sjá hana oftar
á fimleikagólfi á Íslandi.
„Ég væri alveg til í að keppa oftar
á Íslandi og það er mjög gaman að
vera hérna. Það er alltaf spurningin
um hvernig þetta passar í dagskrána
í kringum önnur mót. Núna passaði
þetta vel í undirbúninginn minn fyrir
Evrópumótið. Við sjáum bara til í
framtíðinni ef Ísland býður mér aftur
að koma,“ segir Eyþóra. Hún fékk líka
nokkra aukadaga á landinu.
bætti nokkrum dögum við
„Ég kom á fimmtudaginn og fer á
þriðjudagsmorgun. Ég verð því ekki
lengi á Íslandi en ég nota tímann vel.
Ég ætla að hitta ömmu, fjölskylduna
og vinafólkið mitt. Þjálfarinn minn
fer strax en ég vildi bæta nokkrum
dögum við því maður er ekki svo oft
á Íslandi. Síðast kom ég til Íslands
um jólin fyrir ári síðan og það er
gott að fá tækifæri til að heimsækja
allt fólkið sem manni þykir vænt
um,“ sagði Eyþóra. ooj@frettabladid.is
Gaman að sýna mínu fólki hvað ég get
Eyþóra Elísabet Þórsdóttir stóðst allar væntingar á fimleikamóti RIG í Laugardalshöllinni og vann glæsilegan sigur í fyrstu keppni sinni
á Íslandi. Það er nóg að gera hjá henni þessa dagana enda á fyrsta ári í sviðlistaháskóla þar sem hún syngur, dansar og leikur alla daga.
Mér finnst mjög
gaman að syngja og
bestu fögin mín í skólanum
eru tengd söngnum
Fimleikakonan Eyþóra Þórsdóttir
Unga stelpan með
erfiða nafnið
Árangur Eyþóru Þórsdóttur hefur
að sjálfsögðu vakið athygli í Hol-
landi en Eyþóra finnur ekkert
mikið fyrir því að hún sé orðin
einhver íþróttastjarna. „Ég get nú
ekki sagt að ég sé aðalstjarnan.
Fimleikarnir eru ekki það stórir í
Hollandi,“ segir Eyþóra og viður-
kennir að einhverju leyti megi
skrifa það á íslenska nafnið.
„Maður er þekktur þannig en ég
með svolítið erfitt nafn. Ég er oft
„unga stelpan sem gekk svo vel
í fimleikum með erfiða nafnið,“
segir Eyþóra í léttum tón en hún
setur það ekkert fyrir sig frekar
en annað mótlæti. Metnaður og
ástríða hennar fyrir íþróttinni
lætur ekkert stoppa sig.
6 . F e b r ú a r 2 0 1 7 m Á N U D a G U r
0
6
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
2
A
-5
3
A
4
1
C
2
A
-5
2
6
8
1
C
2
A
-5
1
2
C
1
C
2
A
-4
F
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K