Fréttablaðið - 06.02.2017, Page 11

Fréttablaðið - 06.02.2017, Page 11
sport Hin hollensk-íslenska Eyþóra Elísabet Þórsdóttir átti glæsilegan dag í Laugardalshöllinni á laugardaginn og steig engin feilspor þegar hún tryggði sér sannfærandi sigur í fimleikakeppni Reykjavíkurleikanna. Hér sést Eyþóra gera æfingar á jafnvægisslánni en þar fékk Eyþóra sína langhæstu einkunn í keppninni. FRéttabLaðið/Hanna Fimleikar Eyþóra Elísabet Þórsdótt- ir keppir vissulega fyrir Holland en hún var samt komin heim í Laugar- dalshöllinni um helgina þegar hún tryggði sér sigur í fimleikakeppni Reykjavíkurleikanna fyrir framan ömmu og fjölskyldu sína í stúkunni og fjölda ungra aðdáenda með „Áfram Eyþóra“ í fremstu röð. „Það var mjög gaman að keppa á Íslandi og yndislegt að sjá að það eru svo margir sem höfðu áhuga á þessu og studdu við bakið á mér. Það voru sem dæmi fullt af litlum stelpum sem voru með plakat sem á stóð Eyþóra. Það var mjög skemmti- legt að sjá það að allir standa með mér,“ sagði Eyþóra Þórsdóttir kát með daginn. Eyþóra var að keppa í fyrsta sinn á Íslandi og það er ekki hægt að kvarta mikið yfir útkomunni. Hún vann glæsilegan sigur en hennar helstu keppninautar voru hin rússneska Daria Spiridonova og hin bandaríska Sydney Johnson-Scharpf. auðvitað var pínu pressa „Þetta í fyrsta sinn sem fjölskylda mín gat séð mig með eigin augum sem og allir á Íslandi. Auðvitað var pínu pressa en það er bara að breyta henni í eitthvað jákvætt og halda áfram. Það gekk vel og það var mjög gaman að geta sýnt fólkinu mínu hvað ég get gert. Spiridonova og Johnson-Scharpf voru báðar fyrir ofan hana eftir stökkið og æfingar á tvíslá en Eyþóra átti tvær bestu greinar sýnar eftir og æfingar á jafnvægisslánni og á gólfi skiluðu henni yfirburðasigri. Eyþóra endaði með 56.350 stig eða 1.750 stigum meira en Daria Spi- ridonova sem var önnur. Var að prófa nýja hluti „Ég var sátt með frammistöðuna. Við fórum í þessa keppni með það í huga að prófa nýja hluti því það er búið að uppfæra leikreglurnar í fimleikum. Það þarf því að breyta æfingunum út frá því. Við gerðum ekki mikið af breytingum en við prófuðum nokkra nýja hluti. Þetta var því ekki alveg sama prógramm og á Ólympíu- leikunum. Það var flott að ég náði 56 punktum í nýja frammistöðumatinu sem hefði kannski gefið mér næstum því 58 punkta í gamla matinu. Það er mjög fínt að sjá að þetta skili sér svona vel hjá mér inn í nýja matið, segir Eyþóra. Það er mikið í gangi hjá henni utan fimleikanna því í haust hóf hún nám við Lucia Marthas Institute for Performing Art. „Ég byrjaði í nýjum skóla, sviðslistaháskóla, þar sem ég er að syngja, dansa og leika alls- konar hluti. Það er erfitt að gera það samhliða fimleikunum þó að það sé mjög gaman. Ég hef mikinn áhuga á þessu en ég er alltaf að hreyfa mig. Ég er að dansa, í ballett eða í steppdansi í skólanum og svo fer ég á æfingu. Þjálfarinn minn er að hjálpa mér og reyna að koma þessu öllu saman inn í æfingarnar mínar þannig að ég geti farið í skólann og búið til fram- tíð við hliðina á fimleikunum,“ segir Eyþóra. En er hún þá líka góð söng- kona? „Ég er með rödd en það þarf alltaf að þjálfa hana. Mér finnst mjög gaman að syngja og bestu fögin mín í skólanum eru tengd söngnum,“ segir Eyþóra og þá er mikið sagt enda leyna dans- og balletthæfileikar hennar sér ekkert þegar hún keppir í fimleikunum. Setur stefnuna á tókýó 2020 Hún ætlar sér að samtvinna skólann og fimleikana áfram. „Ég hef sett stefnuna á Ólympíuleikana í Tókýó 2020. Það er langt þangað til en við sjáum bara til hvað gerist. Aðalmálið er að mér finnst gaman í fimleikum og ég held áfram eins lengi og ég get og vil. Ég hef mikla ástríðu fyrir bæði skólanum og fimleikunum. Þetta er hörku vinna og það er ekki alltaf auð- velt að gera þetta bæði í einu,“ segir Eyþóra. Hún fékk mjög flott verðlaun á dögunum þegar hún var kosin bjart- asta vonin í hollenskum íþróttum. „Það gerði mér mjög gott. Ég vissi ekki að ég væri að fá þessi verðlaun. Ég var í skólanum og í söngprófinu mínu. Ég var frekar stressuð yfir því en var nýbúin að klára síðustu nót- una mína og þá kom bara einhver inn í stofuna. Ég vissi ekki hver það var og fékk svolítið sjokk af því að ég vissi ekkert hvað hann ætlaði að gera. Þetta er frægur tónlistarmaður í Hol- landi og mjög gaman að þeir ákváðu að afhenda verðlaunin svona, segir Eyþóra. En munum við sjá hana oftar á fimleikagólfi á Íslandi. „Ég væri alveg til í að keppa oftar á Íslandi og það er mjög gaman að vera hérna. Það er alltaf spurningin um hvernig þetta passar í dagskrána í kringum önnur mót. Núna passaði þetta vel í undirbúninginn minn fyrir Evrópumótið. Við sjáum bara til í framtíðinni ef Ísland býður mér aftur að koma,“ segir Eyþóra. Hún fékk líka nokkra aukadaga á landinu. bætti nokkrum dögum við „Ég kom á fimmtudaginn og fer á þriðjudagsmorgun. Ég verð því ekki lengi á Íslandi en ég nota tímann vel. Ég ætla að hitta ömmu, fjölskylduna og vinafólkið mitt. Þjálfarinn minn fer strax en ég vildi bæta nokkrum dögum við því maður er ekki svo oft á Íslandi. Síðast kom ég til Íslands um jólin fyrir ári síðan og það er gott að fá tækifæri til að heimsækja allt fólkið sem manni þykir vænt um,“ sagði Eyþóra. ooj@frettabladid.is Gaman að sýna mínu fólki hvað ég get Eyþóra Elísabet Þórsdóttir stóðst allar væntingar á fimleikamóti RIG í Laugardalshöllinni og vann glæsilegan sigur í fyrstu keppni sinni á Íslandi. Það er nóg að gera hjá henni þessa dagana enda á fyrsta ári í sviðlistaháskóla þar sem hún syngur, dansar og leikur alla daga. Mér finnst mjög gaman að syngja og bestu fögin mín í skólanum eru tengd söngnum Fimleikakonan Eyþóra Þórsdóttir Unga stelpan með erfiða nafnið Árangur Eyþóru Þórsdóttur hefur að sjálfsögðu vakið athygli í Hol- landi en Eyþóra finnur ekkert mikið fyrir því að hún sé orðin einhver íþróttastjarna. „Ég get nú ekki sagt að ég sé aðalstjarnan. Fimleikarnir eru ekki það stórir í Hollandi,“ segir Eyþóra og viður- kennir að einhverju leyti megi skrifa það á íslenska nafnið. „Maður er þekktur þannig en ég með svolítið erfitt nafn. Ég er oft „unga stelpan sem gekk svo vel í fimleikum með erfiða nafnið,“ segir Eyþóra í léttum tón en hún setur það ekkert fyrir sig frekar en annað mótlæti. Metnaður og ástríða hennar fyrir íþróttinni lætur ekkert stoppa sig. 6 . F e b r ú a r 2 0 1 7 m Á N U D a G U r 0 6 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 2 A -5 3 A 4 1 C 2 A -5 2 6 8 1 C 2 A -5 1 2 C 1 C 2 A -4 F F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.