Fréttablaðið - 06.02.2017, Qupperneq 12
Magnaður Marcos Alonso fékk traustið hjá Conte
Chelsea er áfram með níu stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á nágrönnum sínum í Arsenal um helgina. Fyrrum afgangsmaður úr knattspyrnu-
akademíu Real Madrid er ein óvæntasta stjarna deildarinnar á tímabilinu en Marcos Alonso er eins og skapaður fyrir 3-4-3 leikkerfi Ítalans Antonio Conte.
fótbolti Marcos Alonso skoraði sitt
fjórða mark á tímabilinu í sigrinum
gegn Arsenal á laugardaginn. Spán-
verjinn öflugi hóf atvinnumanna-
ferilinn hjá Real Madrid en var
lítið í sviðsljósinu þar til Antonio
Conte keypti hann frá Fiorentina
í sumar. Alonso hefur slegið í gegn
hjá Chelsea og verið lykilmaður í
sigurgöngu liðsins á tímabilinu.
Umdeilt mark
Mark Alonso kom Chelsea á bragðið
í toppslagnum gegn Arsenal. Hann
var fyrstur að átta sig eftir að Diego
Costa skallaði í þverslána og skall-
aði frákastið í netið fram hjá Petr
Cech.
Margir vildu þó meina að markið
hefði aldrei átt að standa þar sem
Alonso fór með hendurnar á undan
sér í skallaeinvígið gegn Hector
Bellerin. Bellerin lá vankaður eftir
og varð að fara af leikvelli. Á upp-
tökum sást að Alonso fór með oln-
bogann í Bellerin og Arsene Wenger
sagði eftir leik að um hefði verið að
ræða 100% brot.
Markið stóð og lagði grunninn
að 3-1 sigri Chelsea. Antonio Conte
kom Alonso til varnar og sagði að
það væri aldrei dæmt á álíka atvik á
Englandi en viðurkenndi að mögu-
lega hefði slíkt verið gert á Ítalíu.
Fékk ekki tækifærið hjá Real
Marcos Alonso kemur úr unglinga-
starfi Real Madrid en hann var á
mála hjá spænska stórveldinu frá
níu ára aldri. Hann lék tvö tímabil
með varaliði félagsins og kom einu
sinni við sögu hjá aðalliðinu þegar
Leikmaður helgarinnar
Romelu Lukaku gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk í 6-3 sigri
Everton gegn Bournemouth á laugardaginn. Everton situr í 7.sæti
deildarinnar og hefur ekki tapað deildarleik frá því fyrir jól.
Það tók Lukaku ekki nema 30 sekúndur að opna markareikning-
inn á Goodison Park. Hann skoraði þá með skoti úr
teignum eftir samspil við Ross Barkley og bætti
svo við öðru marki sínu á 29. mínútu þegar hann
kom Everton í 3-0. Belginn sterki fullkomnaði
fernuna með tveimur mörkum á tveimur mínútum
undir lokin en Bournemouth hafði þá náð að
minnka muninn í eitt mark.
Með mörkunum fjórum er Lukaku nú markahæstur
í deildinni með 16 mörk eftir 23 umferðir og hefur
skorað marki meira en þeir Alexis Sanchez hjá Arsenal og
Diego Costa hjá toppliði Chelsea.
Þetta var í fyrsta sinn á ferlinum sem hinn 23 ára
Lukaku skorar fjögur mörk í einum og sama leiknum en
hann hefur tvisvar sinnum áður skorað þrennu í ensku
úrvalsdeildinni, meðal annars í sigri Everton gegn
Sunderland fyrr á tímabilinu.
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
Sigur Hull gegn
Liverpool var bæði
óvæntur og mikilvæg-
ur. Liðið hefur tekið
framförum undir stjórn
Marco Silva og náð í fjögur
stig í síðustu tveimur leikjum gegn
Manchester United og Liverpool.
Líkurnar á að liðið haldi sæti sínu
í deildinni hafa aukist þó fram
undan sé hörð fallbarátta.
Hvað kom á óvart?
Fyrir leikinn gegn
Crystal Palace hafði
Sunderland aðeins
skorað fjögur mörk á úti-
velli á tímabilinu. Strákarnir hans
David Moyes tvöfölduðu þann
fjölda á laugardaginn og unnu
óvæntan 4-0 sigur. Liðin eru jöfn í
tveimur neðstu sætum deildarinn-
ar og í harðri fallbaráttu.
Mestu vonbrigðin
Liverpool hefur
ekki enn þá unnið
deildarleik á þessu ári
og knattspyrnustjórinn
Jurgen Klopp sagði að frammistað-
an í tapinu gegn Hull hefði verið
óásættanleg. Endurkoma Sadio
Mane í byrjunarliðið hafði lítið að
segja og sóknarleikur liðsins, sem
var frábær á fyrri hluta tímabilsins,
er vart svipur hjá sjón.
Manuel Pellegrini skipti honum
inn á í uppbótartíma gegn Racing
Santander árið 2010.
Nokkrum mánuðum seinna
samdi Alonso við Bolton Wanderers
sem þá lék í ensku úrvalsdeildinni
og féll með liðinu í Championship-
deildina í maí 2012. Hann lék áfram
með Bolton árið eftir og var valinn
leikmaður ársins af stuðningsmönn-
um tímabilið 2012-13.
Um sumarið samdi Alonso við
Fiorentina en Spánverjinn knái var
þó mættur á ný í enska boltann í
janúar 2014, í þetta sinn á láni hjá
Sunderland. Hann lék 16 leiki fyrir
Sunderland, þar á meðal í úrslitaleik
deildarbikarsins í tapi gegn Manc-
hester City.
Eftir lánstímann hjá Sunderland
vann Alonso sér sæti í liði Fiorent-
ina og lék yfir 70 leiki með ítalska
félaginu á síðustu tveimur tíma-
bilum.
Smellpassar í kerfi Conte
Það kom nokkuð á óvart þegar
Chelsea tilkynnti um kaupin á
Marcos Alonso. Hann var keyptur
á lokadegi félagaskiptagluggans á
rúmar 20 milljónir punda og bjugg-
ust flestir við að hlutverk hans yrði
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 24. umferðar 2016-17
Chelsea - Arsenal 3-1
1-0 Marcos Alonso (13.), 2-0 Eden Hazard
(53.), 3-0 Cesc Fàbregas (85.), 3-1 Olivier
Giroud (90.+1).
West Brom - Stoke 1-0
1-0 James Morrison (6.)
Hull - Liverpool 0-2
1-0 N’Diaye (44.), 2-0 Oumar Niasse (84.)
Everton - Bournemouth 6-3
1-0 Romelu Lukaku (1.), 2-0 James McCarthy
(24.), 3-0 Lukaku (2.), 3-1 Joshua King (59.),
3-2 King (70.), 4-2 Lukaku (83.), 5-2 Lukaku
(84.), 5-3 Arter (90.), 6-3 Ross Barkley (90.).
Watford - Burnley 2-1
1-0 Troy Deeney (10.), 2-0 M’baye Niang
(45.), 2-1 Ashley Barnes (78.).)
Cry. Palace - Sunderland 0-4
0-1 Lamine Koné (9.), 0-2 N’Dong (43.), 0-3
Jermain Defoe (45.) 0-4 Defoe (45.).
Southampt. - West Ham 1-3
1-0 Gabbiadini (12.), 1-1 Andy Carroll (14.),
1-2 Pedro Obiang (44.), 1-3 Mark Noble (52.),
Tottenham - Middlesbr. 1-0
1-0 Harry Kane, víti (58.).
Man. City - Swansea 2-1
1-0 Gabriel Jesus (11.), 1-1 Gylfi Þór Sigurðs-
son (81.), 2-1 Gabriel Jesus (90.+2).
Leicester - Man. United 0-3
0-1 Henrik Mkhitaryan (42.), 0-2 Zlatan Ibra-
himovic (44.), 0-3 Juan Mata (49.).
FÉLAG L U J T MÖRK S
Chelsea 24 19 2 3 51-17 59
Tottenham 24 14 8 2 46-16 50
Man. City 24 15 4 5 49-29 49
Arsenal 24 14 5 5 52-28 47
Liverpool 24 13 7 4 52-30 46
Man. Utd 24 12 9 3 36-21 45
Everton 24 11 7 6 40-27 40
West Brom 24 10 6 8 32-29 36
West Ham 24 9 4 11 32-41 31
Watford 24 8 6 10 29-40 30
Stoke City 24 7 8 9 29-36 29
Burnley 24 9 2 13 26-35 29
Southampt. 24 7 6 11 24-31 27
Bournem. 24 7 5 12 35-47 26
Middlesbr. 24 4 9 11 19-27 21
Leicester 24 5 6 13 24-41 21
Swansea 24 6 3 15 29-54 21
Hull 24 5 5 14 22-47 20
Cry. Palace 24 5 4 15 32-45 19
Sunderland 24 5 4 15 24-42 19
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum í Englandi
Swansea City
Gylfi Þór Sigurðsson
Skoraði mark Swansea
gegn Manchester City og
jafnaði metin í 1-1. Markið
var það áttunda hjá Gylfa fyrir
Svanina í deildinni í vetur.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Lék allan leikinn fyrir Car-
diff sem tapaði 1-0 gegn
Norwich á heimavelli.
Wolverhampton Wanderers
Jón Daði Böðvarsson
kom inn á 80. mínútu þegar
Wolves beið lægri hlut
gegn Burton Albion.
Fulham
Ragnar Sigurðsson
var utan hóps þegar
Fulham tapaði 1-0 gegn
Birmingham á útivelli.
Bristol City
Hörður B. Magnússon
var ekki í hópi Bristol City
sem vann Rotherham 1-0.
Marcos Alonso horfir hér á eftir boltanum fara í mark Arsenel en Spánverjnn hafði áður ýtt við Arsenal-manninum Hector Bellerin. Bellerin missti við það jafnvægið eins og sést á þessari mynd hér að ofan. Markið fékk að standa og Chelsea vann. NoRDiCPHoToS/GETTy
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Var allan tímann á vara-
mannabekknum í tapleik.
Aston Villa
Birkir Bjarnason
Lék sinn annan leik fyrir
Villa sem tapaði á útivelli
gegn Nottingham Forest.
Ísland á EM 2016 leikmenn og þjálfara
myndir andlitsmyndir EM-hópur Evr-
ópumót Frakkland
6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M Á N U D a G U r12 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
0
6
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
A
-5
8
9
4
1
C
2
A
-5
7
5
8
1
C
2
A
-5
6
1
C
1
C
2
A
-5
4
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K