SÍBS blaðið - 01.10.2001, Side 18

SÍBS blaðið - 01.10.2001, Side 18
18 Aðdragandinn að stofnun Hlíðabæjar var óvenju stuttur. Þegar Múlabær hafði verið starfræktur um nokkurt skeið var ljóst að minnisskert fólk ein- angraðist og að þeim þurfti að sinna á annan hátt. Umræður um þarfir þeirra leiddu smám saman til stofnunar FAAS, félags aðstandenda alzheimer- sjúklinga sem var stofnað 14. mars 1985. Félagið beitti sér fyrir þessa einstaklinga ásamt rekstraraðilum Múlabæjar sem voru S.Í.B.S., Reykja- víkurdeild Rauða krossins og Samtök aldraðra. Seinna kom Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni í stað Samtaka aldraðra. Þessi samtök snéru sér til Reykjavíkurborgar sem brást skjótt við og keypti húsið að Flóka- götu 53 þá um haustið. Húsið sem áður var í eigu Vilhjálms Árnasonar útgerðarmanns er virðulegt og fallegt einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara og rishæðar. Húsið er mjög vandað og hefur verið sérlega vel við haldið af Byggingardeild Reykjavíkurborgar. Það á einnig við um garðinn og gamla bílskúrinn sem hefur nú verið endurbyggður og heitir Nýibær. Þetta fallega hús gefur starfseminni þann ramma sem við teljum afar mikils virði fyrir allt okkar starf. Hlíðabær tók til starfa 22. mars 1986 og er fyrsta dagvist af þessu tagi hér á landi. Í Hlíðabæ koma 20 manns alla virka daga. Höfð var hliðsjón af því sem vitað var að gagnaðist best og starfsemin byggð upp og henni breytt í samræmi við reynslu sem starfsfólk staðarins aflaði sér. Auk þess hafa ýmsir skjólstæðingar staðarins haft sín áhrif á mótun starfseminnar. Markmið starfseminnar eru fyrst og fremst þrjú: 1. Að bæta líðan skjólstæðinganna með markvissri þjálfun og draga þannig úr einkennum sem sjúkdómurinn getur valdið. 2. Að létta álagi af fjölskyldum þeirra og bæta möguleika þeirra til að mæta þeim vandamálum sem upp koma. 3. Að hindra og/eða tefja innlagnir á lang- dvalarstofnanir. Daglegt starf Hin daglega starfsemi Hlíðabæjar byggir faglega á kenningum bandaríska sálfræðingsins Abraham Maslows um manninn og frumþarfir hans. Inntak kenninganna er að sérhver maður hafi þarfir sem breytast ekki frá vöggu til grafar og að þeim verði hann að fá fullnægt að einhverju marki til að halda heilsu og sálarheill. Þessum þörfum skiptir hann í 5 meginflokka: 1. Líkamlegar þarfir 2. Öryggisþarfir 3. Félags og kærleiksþarfir 4. Virðingarþarfir 5. Þörf fyrir að þroska hæfileika sína og tjá þá í skapandi starfi. Í Hlíðabæ er lögð áhersla á að skapa heimilis- legt og öruggt umhverfi þar sem hlúð er að heimilisfólki og leitast við að uppfylla sérstakar þarfir þeirra. Veitt er þjálfun og aðstoð sem þarf til þess að skjólstæðingar heimilisins geti verið sem lengst og mest sjálfbjarga í sínu daglega lífi. Lögð er áhersla á stöðugleika, röð og reglu, eftir því sem unnt er. Dagskrá Dagskrá Hlíðabæjar hefur fasta liði og tíma- setningar. Dagskráin er markviss og skipulögð þannig að hún gagnist sérstökum þörfum hvers og eins og hafi meðferðarlegt gildi. Það er því víða komið við og nánast snert á öllum athöfnum daglegs lífs. Fastir liðir í dagskránni eru: 1. Líkamsrækt, s.s. leikfimi, nudd, slökun, sund, útivist, gönguferðir og dans. 2. Heimilishald, s.s. eldhúsverk, bakstur, sultugerð, frágangur á þvotti, létt þrif, umhirða blóma, garðrækt, innkaup o.fl. 3. Vinnustofa, s.s. tré og gifsvinna, kertagerð, pappírsvinna, taumálun auk hefðbundinnar handavinnu. Sigrún K. Óskarsdóttir: Hlí›abær Sigrún K. Óskarsdóttir Jólabasarinn undirbúinn. M ál e fn i al d ra › ra

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.