SÍBS blaðið - 01.10.2001, Qupperneq 19

SÍBS blaðið - 01.10.2001, Qupperneq 19
19 4. Lestur, tónlist, söngur, umræður og ýmislegt fleira sem getur stuðlað að aukinni virkni og ánægju. 5. Útgáfa og vinna við heimilisblaðið „Hrafnaþing“ þar sem koma fram ýmsar nytsamar upplýsingar, tekin eru viðtöl við fólk og safnað er gömlum ljóðum, frásögnum, uppskriftum og fleiru, allt eftir áhuga ritstjórnar hverju sinni. 6. Ferðir í litlum og stórum hópum, s.s. á söfn, kaffihús, sýningar og út í náttúruna. Dagsferð að sumri er farin og nú í sumar var farið í sumarhús í Húsafelli í heimsókn til Hlíðbæings. Fjölskylduferð er einnig farin á hverju sumri þar sem hver býður með sér einum fjölskyldumeðlimi. Undanfarin ár hefur sú ferð verið farin í Viðey, þar sem við höfum varið deginum í Naustskálanum, borðað nesti, sungið og dansað. Hlíðbæingar hafa alla tíð átt því láni að fagna að eiga góða að. Ýmsir hafa komið og heimsótt okkur og skemmt okkur með söng eða hljóð- færaleik án endurgjalds. Undanfarið hafa félagar úr Vinabandinu sem eru eldri borgarar úr félagsstarfinu í Gerðubergi komið einu sinni í mánuði og spilað fyrir dansi. Félagar úr Sinfoníuhljómsveit Íslands hafa komið á aðventunni um margra ára skeið og spilað jólalögin. Einnig hafa margir aðstandendur verið okkur hjálplegir með útvegun og undirbúning efnis fyrir vinnustofuna. Öll vinna sem fram fer í vinnustofunni er unnin fyrir heimilið og síðan seld á basar sem er í byrjun aðventu. Þeir eru skemmtilegir dagarnir þegar verið er að leggja síðust hönd á undirbúning basarsins. Þá eru skreyttar sultukrukkur, bakaðar smákökur, settir upp púðar, straujaðir dúkar og allt gert til að undirbúa þennan skemmtilega fjölskyldudag sem best, því hér mæta allir með maka, börn, tengdabörn, barnabörn og vini og hvetja til kaupa á okkar ágæta varningi sem er upplagður til jólagjafa. Í gar›vinnu vi› Hlí›abæ Hársnyrting í Hlí›abæ. Sólrún fiorgeirsdóttir og fiór- hildur Gu›mundsdóttir hafa hendur í hári heimil isfólks. Sultuger›. M ál e fn i al d ra › ra

x

SÍBS blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.