SÍBS blaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 4

SÍBS blaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 4
SÍBS BLAÐIÐ 2015/14 Grein Stóra myndin í heilbrigðismálum Rúmlega 139 milljarðar voru lagðir í íslenska heilbrigðiskerfið á árinu 2013. Aðeins um 2,6% af þeirri fjárhæð fóru í forvarnir. Megináhersla kerfisins er að bregðast við þeim skaða sem þegar er orðinn í stað þess að reyna að koma í veg fyrir hann. Með auknum forvörnum væri hægt að spara gríðarlega fjármuni. Ef við gætum dregið úr heilsufarsskaða þjóðarinnar um 1% næmi verð- mæti þeirra aðgerða um 4 milljörðum króna á ári miðað við verga landsframleiðslu á mann. Einhver plön fyrir eftirlaunaldurinn? Íslendingar lifa lengst þjóða í Evrópu. Meðal- ævi okkar er 83,0 ár frá fæðingu, og þar af lifa íslenskir karlar lengst (81,6 ár) en konur eru í fimmta sæti (84,3 ár). Ævilíkur þeirra sem þegar eru orðnir 65 ára eru enn betri, 86,5 ár fyrir konur og 85,1 ár fyrir karla samkvæmt skýrslu Efnhags- og framfarastofnunarinnar (OECD) frá 2014.1 En hvernig æviskeið er þetta langa líf? Lifum við heilbrigðu lífi eða við sjúkdóm og skerta virkni? Getum við notið lífsins og skilum við af okkur til samfélagsins? Samkvæmt greiningu OECD verja Íslendingar að meðaltali 13,8 árum (16,6% ævinnar) við talsvert eða verulega skerta virkni og erum í fimmta sæti af þeim 32 Evrópuríkjum innan OECD sem þannig voru mæld. Íslenskir karlar geta vænst þess að lifa án verulegrar skerðingar til 70,4 ára aldurs en konur til 68,0 ára aldurs. Auðvitað eru þetta meðaltöl og gilda því ekki fyrir einstakling- inn, en höfum við ekki flest önnur plön fyrir eftir- launaárin en að verja þeim í sjúkdómsástandi sem skerðir lífsgæði okkar? Samkvæmt OECD telja 77% Íslendinga yfir 16 ára aldri sig búa við góða eða mjög góða heilsu en 23% sæmilega eða slæma. Þarna erum við í níunda sæti meðal aðildarríkjanna (aðeins eru spurðir þeir sem ekki eru vistaðir á sjúkrahúsum eða stofnunum). Þá telja 28,8% sig eiga við langvarandi heilsufarsvandamál að etja (6 mán- uðir eða meira), og 17,0% telja sig upplifa tals- vert eða verulega skerta virkni af þeim sökum. Það má með nokkrum rökum segja að við höfum náð eins langt og núverandi tækni og peningar leyfa í meðhöndlun sjúkdóma, en eins vel og við stöndum okkur í að bregðast við vandanum er heilbrigðiskerfið okkar verr í stakk búið til að koma í veg fyrir vandann: Kerfið er fyrst og fremst viðbraðgsdrifið en ekki forvarnadrifið. Langvinnir, lífsstílstengdir sjúk- dómar eiga allt of greiða leið að því að skemma heilsuna okkar því hvorki við sjálf né heilbrigðis- kerfið bregðumst við fyrr en í óefni er komið og skaðinn er skeður. En hvað með vinnuaflið? Ef litið er á vinnumarkaðstölur Hagstofunnar má sjá að mannfjöldi á vinnumarkaði er greindur út frá heildar fjölda og niður í þá sem í raun og veru eru við vinnu og ekki forfallaðir: Mannfjöldi 328 þúsund (100%); á vinnfærum aldri 16-74 ára 227 þúsund (69%); á vinnumarkaði 185 þúsund (56%); starfandi 175 þúsund (53%); við vinnu í raun 156 þúsund (47%).2, 3 Það að aðeins tæplega helmingur landsmanna sé í raun við vinnu á hinum almenna vinnumarkaði hverju sinni þýðir auðvitað ekki að þeir vinni fyrir öllum hinum, slíkt er fjarri sanni. En þessi stað- reynd bendir samt sem áður á hversu stórkost- Íslendingar verja að meðaltali 14 árum ævinnar við talsvert eða verulega skerta virkni. Karlar geta vænst þess að lifa til 70 ára aldurs án skerðingar en konur til 68 ára. Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.