SÍBS blaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 11

SÍBS blaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 11
SÍBS BLAÐIÐ 2015/1 11 Grein Skilgreiningar á örorku Magnús Ólason, læknir á Reykjalundi Örorka var áður skilgreind hérlendis sem „Mikil eða alger skerðing á starfsgetu af slysi eða veik- indum, til dæmis lömun“ (Orðabók Menningar- sjóðs). Hér er um frekar takmarkaðan skilning að ræða og vísar einkum til skerðingar á starfsgetu. Síðustu 10-15 ár hefur örorka í meira mæli verið metin út frá læknisfræðilegum forsendum. Hefur þessa m.a. gætt við mat á örorku hjá Trygg- ingastofnun ríkisins (TR), en áður var örorka jafnframt metin út frá félagslegum forsendum. Þannig er ekki lengur einvörðungu miðað við getu einstaklings til starfa á vinnumarkaði þegar örorka er metin hjá TR. Starfsgeta háð mörgum þáttum Fyrsti vísir að sjúkra- og slysatryggingum hér á landi varð til kringum aldamótin 1900. Trygg- inga stofnun ríkisins (TR) var stofnuð með heild- stæðum lögum um alþýðutryggingar árið 1936 og fyrstu lögin um almannatryggingar voru sett árið 1947. Þjóðverjar (Bismarck) voru fyrstir til að koma á tryggingakerfi í Evrópu seint á 19. öldinni, fyrst atvinnuleysisbótum, en seinna slysabótum, örokubótum og ellilífeyri (sem þá var miðaður við 70 ára aldur). Starfsgeta er háð miklu fleiri þáttum en ein- göngu líkamlegum eða læknisfræðilegum. Menntun er einn af þeim þáttum sem skipta þar miklu máli. Þá hefur aðgengi að vinnu veruleg áhrif og þegar atvinnuleysi ríkir bitnar það ekki síst á þeim sem eru með einhverja skerðingu á færni eða eru lítt menntaðir. Þetta hefur lengi verið þekkt. Í áhugaverðum ritgerðum Henry Mayhew sem gefnar voru út í bók árið 1861 var fjallað um vinnandi fólk í Lundúnum í byrjun 19. aldar. Mayhew skipti fólki í þrjá hópa: · Þeir sem geta unnið · Þeir sem geta ekki unnið · Þeir sem vilja ekki vinna Og bætti svo einnig við þeim sem þurfa ekki að vinna (svo allir væru taldir með). Ef þeir sem tilheyra fyrsta hópnum fá ekki vinnu eiga þeir rétt á atvinnuleysisbótum eða öðrum bótum frá samfélaginu. Þeir sem tilheyra öðrum hópnum eiga rétt á örorkubótum ef sjúkdómar eða afleiðingar slysa skerða starfsorku þeirra. Þeir sem tilheyra þriðja hópnum eiga ekki rétt á bótum (en þiggja oft bætur). Nýjar skilgreiningar Þegar fjallað er um örorku eða skerta færni hefur Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) á síðari árum tekið upp nýjar og breyttar skilgrein- ingar. Með skerðingu (impairment) er átt við að líkamsstarfsemi hafi truflast vegna afleiðinga sjúkdóms eða slyss. Með fötlun er átt við þá truflun á líkamlegri eða andlegri færni sem hlýst af skerðingunni. Með örorku er síðan átt við þær félagslegu afleiðingar sem fötlunin hefur fyrir viðkomandi einstakling. Hugtökin athafnir og þátttaka (activities and participation) hafa síðan komið í stað hugtaksins örorka og að nokkru leyti hugtaksins fötlunar. Áhersla er nú lögð á getu í stað vangetu. Örorka sem metin er hjá TR og gefur m.a. rétt til örorkubóta hefur farið vaxandi á Íslandi á síðustu tveim áratugum. Frá árinu 1996 til ársins 2002 jókst algengi örorku úr 4,8% í 6,2%. Í lok árs 2009 var algengi örorku hjá konum 9,1% og hjá körlum 5,9% og hafði þá vaxið óverulega frá árinu 2005. Ekki er líklegt að afleiðingar hrunsins á algengi örorku hafi verið komnar fram á árinu 2009 (og eru líklega ekki að öllu leyti komnar fram enn). Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu TR var algengi örorku hjá konum 9,5% í des- ember 2013 og 6% hjá körlum. Geðraskanir og stoðkerfisraskanir hafa verið algengustu orsakir örorku. Í desember 2005 voru orsakir örorku Áhersla er nú lögð á getu í stað vangetu.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.