SÍBS blaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 5

SÍBS blaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 5
SÍBS BLAÐIÐ 2015/1 5 legt keppikefli það hlýtur að vera fyrir samfélagið í heild að koma í veg fyrir að einstaklingur hverfi af vinnumarkaði sakir sjúkdóms eða örorku. En hvað er það sem veldur því að fólk getur ekki unnið þrátt fyrir að við séum með eitt besta heilbrigðiskerfi í heimi? Svarið er auðvitað marg- þætt, en kristallast í því að fólk getur ekki tekið þátt í vinnumarkaðinum vegna veikinda, örorku eða skerðingar. Þarna kemur enn og aftur heilbrigðiskerfið okkar til skjalanna: Við erum nefnilega mjög dugleg að halda fólki á lífi gegnum erfiða sjúkdóma, en eigum erfiðara með að koma í veg fyrir að lang- vinnir sjúkdómar vindi upp á sig og dæmi fólk úr leik á hinum almenna vinnumarkaði. „Follow the money“ Staðan er sem sagt þessi: Við lifum lengi og dánartíðni er lág. Samt á þjóðin við heilsufar- svanda að etja sem skerðir lífsgæði okkar tals- vert eða verulega sjötta hluta ævinnar. Hvernig getum komist að því af hverju þetta stafar og hvernig náum við utan um vandann? Þegar um hagrænar stærðir er að ræða er það góð og gild aðferð svo langt sem hún nær að elta peningana – „follow the money“. Til þess þurfum við mælikvarða á tilkostnað annars vegar í heilbrigðiskerfinu, og hins vegar á heilsu- far þjóðarinnar og þann kostnað sem samfélagið verður fyrir vegna heilsufarsskaða. Hið fyrrnefnda er einfalt. Verg landsframleiðsla (VLF) á Íslandi var 1.873 milljarðar króna árið 2013 en í heilbrigðiskerfið var á sama tíma varið 139,2 milljörðum króna samkvæmt Hagstofu Íslands og er þá ekki meðtalinn 4,2 ma. kostn- aður vegna opinberrar stjórnsýslu.4 Varðandi hið síðarnefnda snúum við okkur til Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), sem mælir heilsufarsskaða þjóða með samþætta mælikvarðanum „glötuð góð æviár“. Glötuð góð æviár er samtala þeirra æviára sem glatast vegna ótímabærs dauða og vegna ýmissa stiga örorku, allt frá tímabundnum sjúk- dómi til varanlegrar skerðingar. Yfirlýst markmið WHO er að gera þessi gögn aðgengileg þeim sem taka ákvarðanir um heilbrigðismál hverrar þjóðar fyrir sig gegnum verkefnið Global Burden of Disease.5 Hvernig verjum við peningunum í heilbrigðiskerfinu? Til heilbrigðiskerfisins var varið 139,2 milljörð um króna árið 2013. Frá sjónarhóli þessarar athug- unar er fyrst og fremst athyglisvert að skipta þessu fé í tvennt: Það sem er varið til að bregð- ast við vandanum og það sem varið er til að koma í veg fyrir vandann. Til viðbragðsdrifna hluta kerfisins runnu 135,6 ma. (97,6%), sem greinist niður á sjúkra- hús 69,9 ma. (50,2%), heilsugæslu án forvarna- hluta 12,1 ma. (8,7%), einkarekstur lækna og þjálfunar 12,7 ma. (9,1%), endurhæfingu og hjúkrun 22,6 ma. (16,2%) og lyf og hjálpartæki 18,2 ma. (13,1%). Til forvarnadrifna hluta kerfisins runnu tæpir 3,6 ma. (2,55%) til forvarnahluta heilsugæslu rúmir 3,1 ma. (2,2%) og beinar forvarnir rúmir 0,4 ma. (0,3%). (Það ber að taka fram að alþjóðleg viðmiðun (sk. SHA guidelines frá OECD) um 20,2% hlutfall forvarna af starfi heilsugæslu er það eina sem við höfum að styðja okkur við sem stendur til að meta umfang forvarnastarfs heilsugæslunnar.) Það er augljóslega talsverð slagsíða í kerfinu þar sem viðbragðsdrifna kerfið fær um fjörutíufalt fjármagn á við forvarnadrifna kerfið. Að hluta til er þetta eðlilegt þar sem um er að ræða dýrari inngrip þegar allt er komið í óefni, en að hluta til er þetta óeðlilegt þar sem stór hluti langvinnra sjúkdóma tengjast lífsstíl sterkum böndum og hægt væri að koma í veg fyrir þá með mark- vissum forvörnum. Við gætum með öðrum orðum notað pening- ana okkar betur. Hvernig er til dæmis með hið sameiginlega sjúkratryggingafélag okkar allra, Sjúkratryggingar Íslands? Væri ráð að gera þeim kleift að verja hluta af sínu fé til forvarna líkt og önnur tryggingafélög gera, til þess að takmarka útgreiðslur sínar í framtíðinni? En hvar verður samfélagið fyrir kostnaði vegna heilsufarsskaða? Svo sem áður er nefnt tekur Alþjóðaheilbrigðis- stofnunin (WHO) saman tölur um heilsufars- skaða til að auðvelda stjórnvöldum ákvarðana- töku í heilbrigiðsmálum. Nýjustu tölur stofnunar innar miðast við árið 2012, en þá voru „glötuð góð æviár“ Íslendinga 70.500 talsins, sem til féllu vegna ótímabærs dauða, sjúkdóms eða örorku. Þótt ekki sé til algildur mælikvarði á peninga- legan skaða vegna heilsubrests eða dauða er hér valið að notast við verga landsframleiðslu á mann á ári og margfalda glötuð góð æviár með þeirri tölu. Miðað við að VLF á mann á ári var kr. 5,7 millj. árið 2013 nemur fjárhagslegur skaði samfélagsins vegna heilsubrests um 400 milljörð um á ári. Að því sögðu er mikilvægt að taka skýrt fram að það verður seint hægt að Tæplega helmingur landsmanna er í raun virkur á vinnu- markaði. Það ætti að vera stórkostlegt keppikefli samfé- lagsins í heild að koma í veg fyrir að einstaklingur hverfi af vinnumarkaði sakir sjúkdóms eða örorku. Við erum dugleg að halda fólki á lífi gegnum erfiða sjúk- dóma, en eigum erfiðara með að koma í veg fyrir að langvinnir sjúk- dómar vindi upp á sig og dæmi fólk úr leik á vinnumarkaði.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.