SÍBS blaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 13

SÍBS blaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 13
SÍBS BLAÐIÐ 2015/1 13 Þverfagleg úrræði skortir Til að sporna gegn vaxandi algengi örorku á Íslandi þarf annars vegar að bæta aðgengi að endurhæfingu svo og að efla menntunarkerfið og auka aðgengi að fullorðinsfræðslu. Þá skortir verulega möguleika á vinnumarkaði fyrir fólk með skerta starfsorku, bæði verndaða vinnu og atvinnu með stuðningi. Undirritaður tekur því undir með þeim Sigurði Thorlacius og Stefáni Ólafssyni að auka þurfi starfsendurhæfingu á Íslandi. Með tilkomu VIRK starfsendurhæfingar- sjóðs ættu möguleikar á aukinni starfsendur- hæfingu að hafa batnað. Það verður hins vegar að segjast eins og er að raunveruleg þverfagleg starfsendurhæfingarúrræði fyrir utan Reykja- lund eru allt of fá hér á landi enn sem komið er og eins og málum er háttað er afkastageta starfsendurhæfingarteymis Reykjalundar fremur takmörkuð. Ekki skortir á rannsóknir sem styðja þjóðhags- lega hagkvæmni endurhæfingar bæði nýlegar og eldri. Rannsókn sem framkvæmd var fyrir heilbrigðisyfirvöld í Svíþjóð frá árinu 2000 sýndi að hver króna sem eytt var í endurhæfingu gaf níu krónur til baka til samfélagsins. Þessi niðurstaða er í fullu samræmi við niðurstöður heilsuhagfræðilegrar úttektar á árangri með- ferðar á verkjasviði Reykjalundar. Kostnaður meðferðarinnar var um 1200 þúsund fyrir hvern sjúkling og sjúklingur sem var útskrifaður vinnu- fær var áætlaður skila um 10 milljónum til baka til samfélagsins. Heimildir: Skýrsla Félags íslenskra endurhæfingarlækna, 2012 Henry Mayhew; London labour and the London poor, 1861 Magnús Ólason. Um mat á miska og örorku. Lögmannablaðið, 1996 Sigurður Thorlacius, Sigurjón B. Stefánsson og Stefán Ólafsson; Algengi örorku á Íslandi 1. desember 2005, Læknablaðið, 2007 Sigurður Thorlacius og Sigurjón B. Stefánsson; Algengi örorku á Íslandi 1. desember 2009 og samanburður við árin 2002 og 2005; TR, http://www.tr.is/media/skjol-a-pdf/ Algengi-ororku-2009-Skyrsla.pdf Heimasíða TR, http://www.tr.is/tryggingastofnun/ tryggingastofnun_i_tolum/stadtolur/toflur-fyrir-arid-2013/ Lydia Abasolo og fleiri. Prognostic factors for long-term work disability due to musculoskeletal disorders. Rheumatology International. 32(12):3831-9, 2012 Morten Stover og fleiri. Unemployment and disability pension--an 18-year follow-up study of a 40-year-old population in a Norwegian county. BMC Public Health. 12:148, 2012 Annina Ropponen og fleiri. Effects of work and lifestyle on risk for future disability pension due to low back diagnoses: a 30-year prospective study of Finnish twins. Journal of Occupational & Environmental Medicine. 54(11):1330-6, 2012 Sigurður Thorlacius og Stefán Ólafsson. From unemployment to disability? Relationship between unemployment rate and new disability pensions in Iceland 1992-2007. European Journal of Public Health. 22(1):96-101, 2012 Sigurður Thorlacius, Gunnar K. Guðmundsson og Friðrik H Jónsson. Starfshæfni eftir starfsendurhæfingu á vegum Tryggingastofnunar ríkisins. Læknablaðið, 2002 Magnús Ólason. Outcome of an interdisciplinary pain management program in a rehabilitation clinic. WORK 22(1):9-15, 2004 Héðinn Jónsson. Kostnaðarnytjagreining á verkjasviði Reykjalundar. Meistaraprófsritgerð, HÍ, 2011 Statens offentliga utredningar (SOU). Rehabilitering till arbete en reform med individen i centrum, SOU 2000:78, 2000. http://www.regeringen.se/sb/d/108/a/2831 FA S TU S _H _0 4 .0 1 .1 5 Við léttum þér lífið Hjá Fastus er að finna fjölbreytt úrval af vinnustólum sem eru í samning við Sjúkratryggingar Íslands. Sérhæft starfsfólk leggur metnað sinn í að finna rétta vinnustólinn fyrir þig. Rétt val á vinnustól getur létt þér lífið við hin ýmsu daglegu störf heimafyrir og einnig við tómstundaiðju. Komdu og skoðaðu úrvalið í verslun Fastus að Síðumúla 16, 2. hæð. Við tökum vel á móti þér og finnum réttu lausnina fyrir þig. Vela SalsaVela Tango Vela Salsa Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Opið mán - fös 8.30 - 17.00

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.