SÍBS blaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 6

SÍBS blaðið - 01.02.2015, Blaðsíða 6
SÍBS BLAÐIÐ 2015/16 koma í veg fyrir allan heilsufarsskaða, heldur þurfum við að láta nægja að freista þess að takmarka skaðann. En hvar á að byrja ef ætlunin er að takmarka heilsufarsskaða þjóðarinnar? Til þess að svara þessu þurfum við að rýna í enn fleiri tölur. WHO greinir heilsufarsskaða eftir því hvort hann hlýst af ótímabærum dauða eða af sjúkdómum og örorku. Samkvæmt WHO greinast 70.500 glötuð góð æviár Íslendinga árið 2012 annars vegar í glötuð æviár vegna ótímabærs dauða (35.700) og hins vegar æviár lifað við sjúkdóm, skerðingu eða örorku (34.800). Þetta er nokkurn veginn á pari, og veldur þannig hvort um sig samfélagslegum skaða upp á um 200 milljarða króna á ári ef margfaldað er upp með lands- framleiðslu á mann. Líklega má fullyrða að við náum almennt góðum árangri í meðhöndlun sjúkdóma og heilbrigðis- kerfið okkar er þrátt fyrir alla sína galla í fremstu röð. Þessu þurfum við að halda við og bæta þar sem þess er kostur, enda er þegar í dag verið að nýta tæplega 136 ma. til viðbragðsdrifna hluta kerfisins (sjúkrahúsa, heilsugæslu án forvarnahluta, einkareksturs lækna og þjálfunar, endurhæfingar, hjúkrunar, lyfja og hjálpartækja). Það sama verður því miður ekki sagt um örorku eins og ótímabær dauðsföll, að okkur hafi tekist vel að stemma stigu við sífelldri aukningu. Örorkulífeyrisþegum hefur fjölgað um 3,5% á ári að meðaltali undanfarin 15 ár, eða rúmlega þrefalt hraðar en almenn fólksfjölgun á Íslandi, og eru nú rúmlega 17 þúsund talsins. WHO gengur reyndar lengra en að telja aðeins skilgreinda örorku, og tekur með alla sjúkdóma og skerðingar sem valda að einhverju leyti skertri færni – allt frá brjósklosi, aflimun eða þunglyndi yfir í ófrjósemi, astma eða heilablóð- fall. Hver sjúkdómur eða skerðing hefur þannig ákveðna vigt miðað við að 0 jafngildi heilbrigði og 1,0 dauða.6 Erum við að nota peningana rétt? Út frá sjónarhóli hagfræðinnar er freistandi að bera heilsufarsskaða umreiknaðan í tapaða landsframleiðslu saman við tilkostnað heil- brigðiskerfisins í krónum. Eins og áður hefur komið fram er ein leið til þess að notast við verga landsframleiðslu á mann á ári skv. Hagstofu Íslands og margfalda glötuð góð æviár skv. skilgreiningu WHO með þeirri tölu. Þannig fáum við út að heilsufarsskaðinn samsvarar 402 milljörðum í tapaðri landsfram- leiðslu, samanborið við 143 milljarða tilkostnað í heilbrigðiskerfinu – en þar með er ekki öll sagan sögð. Með nokkurri einföldun getum við borið við- bragðsdrifna kerfið (sjúkrahús, heilsugæslu, lækna, þjálfun, lyf, endurhæfingu og hjálpartæki) saman við tapaða landsframleiðslu af völdum ótímabærs dauða og fengið út 139 milljarða tilkostnað á móti 203 milljarða skaða. Á sama hátt og með sama fyrirvara getum við borið saman forvarnadrifna kerfið (forvarnahluti heilsugæslu og að litlu leyti starf félagasamtaka) saman við tapaða landsframleiðslu af völdum örorku og skerðingar og fengið út 3,5 milljarða tilkostnað á móti 198 milljarða skaða. Rökstuðningurinn fyrir þessum samanburði er að stór hluti skerðingar og örorku stafar af af leið - ingum langvinnra sjúkdóma tengjast lífsstíl sterk um böndum og hægt væri að koma í veg fyrir þá með markvissum forvörnum, meðan dauði hlýst fremur af alvarlegum sjúkdómum sem komnir eru til kasta viðbragðsdrifna kerfis ins. Tveir fílar í stofunni Ef þessi samanburður heldur er augljóst að ekki aðeins er örorkan risastór fíll í stofunni hvað varðar heildarskaða samfélagins, heldur þarf að verja miklu meiri fjármunum til forvarna heldur en verið hefur – svo það má eiginlega segja að það sé þarna lítill fílsungi líka sem enginn sér. Við þurfum að hætta að setja í huga okkar samasem merki milli heilbrigðiskerfis og sjúkra- húsa, heilsugæslu og lækna, heldur venja okkur á að horfa á forvarnahlutann sem jafn mikil vægan til að stemma stigu við nýliðun í hin dýrari úrræði. Sömuleiðis þurfum við að venja okkur á að hugsa um heilsufarsskaða á víðari grunni en aðeins dauðsföll og banvæna sjúkdóma, því raunin er að jafnstórum hluta æviára er varið við skerðingu eða örorku eins og tapast vegna ótímabærs dauða. Þetta er uppskriftin að betri árangri í lýðheilsu og langtímasparnaði í útgjöldum hins opinbera – og síðast en ekki síst hvernig við hvert og eitt getum bætt árum við lífið og lífi við árin. 1 OECD (2014), Health at a Glance: Europe 2014, OECD Publishing. http://dx.doi.org/10.1787/health_glance_eur- 2014-en 2 Hagstofa Íslands (2015), Mannfjöldi, Hagstofan. http:// hagstofa.is/Hagtolur/Mannfjoldi 3 Hagstofa Íslands (2015), Laun, tekjur og vinnumarkaður, Hagstofan. http://hagstofa.is/Hagtolur/Laun,-tekjur-og- vinnumarkadur 4 Hagstofa Íslands (2015), Opinber fjármál, Hagstofan. http:// hagstofa.is/Hagtolur/Thjodhagsreikningar/Fjarmal-hins- opinbera 5 World Health Organization (2015), Global Burden of Disease, WHO. http://www.who.int/healthinfo/global_ burden_disease/about/en/ 6 World Health Organization (2006), Global Burden of Disease Update: Disability Weights for Diseases and Conditions, WHO. http://www.who.int/healthinfo/global_ burden_disease/GBD2004_DisabilityWeights.pdf?ua=1 Örorkulífeyris- þegum hefur fjölgað um 3,5% á ári að meðaltali undan- farin 15 ár, rúmlega þrefalt hraðar en almenn fólksfjölgun á Íslandi, og eru nú rúmlega 17 þúsund talsins.    Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.