SÍBS blaðið - 01.02.2015, Qupperneq 8
SÍBS BLAÐIÐ 2015/18
Grein
Sigrún Edda Jónsdóttir, sérfræðingur á Fjármálasviði Tryggingastofnunar
Örorka og
örorkumat
Örorkumat byggist alfarið á læknisfræðilegum
forsendum. Þegar einstaklingur sendir inn
umsókn um örorkulífeyri og vottorð frá lækni
viðkomandi hefur borist Tryggingastofnun er
umsækjanda sendur spurningalisti. Með því að
svara spurningunum leggur umsækjandi sjálfur
mat á eigin getu eða færni og fær tækifæri til að
koma sjónarmiðum sínum á framfæri við lækni
Tryggingastofnunar milliliðalaust. Spurningarnar
snúast um getu einstaklingsins annars vegar
hvað varðar líkamlega færni en þar er spurt
um 14 mismunandi atriði og hins vegar um
andlega færni sem umsækjandi getur lýst með
almennum orðum.
Að jafnaði er síðan fengið álit læknis, sem
starfar utan Tryggingastofnunar, á einstökum
þáttum færniskerðingar og er umsækjandi
boðaður til viðtals í því skyni. Læknisvottorð,
svör umsækjanda við spurningalista og álitsgerð
læknisins eru svo grunnur að mati trygginga-
læknis á örorku umsækjanda.
Örorka er metin eftir stigagjöf fyrir hvert atriði
sem snýr að færni eftir örorkumatsstaðli þar
sem spurt er um samtals 18 þætti sem eru
metnir samkvæmt staðlinum eftir því sem við á.
Fyrri hluti staðalsins fjallar um líkamlega færni
og þarf að fá 15 stig samanlagt til að teljast
a.m.k. 75% öryrki en þar eru 14 þættir sem lagt
er mat á. Gefin eru stig fyrir eitt atriði i hverjum
þætti og þau svo lögð saman. Þættirnir eru:
1) Að sitja á stól, 2) að rísa á fætur, 3) að beygja
og krjúpa, 4) að standa, 5) að ganga á jafnsléttu,
6) að ganga í stiga, þó eru ekki gefin stig bæði
fyrir þættina 5) og 6) heldur valinn sá þáttur
sem gefur fleiri stig. 7) Að nota hendurnar, 8) að
teygja sig, 9) að lyfta og bera, 10) sjón, 11) tal,
12) heyrn, 13) endurtekinn meðvitundarmissir og
14) stjórn á hægðum og þvagi.
Síðari hluti staðalsins lýtur að andlegri færni, en
þar er lagt mat á 4 þætti, 15) að ljúka verkefnum,
16) daglegt líf, 17) álagsþol og 18) samskipti við
aðra. Í síðari hlutanum leggjast öll stig saman og
þarf 10 stig til að teljast a.m.k. 75% öryrki.
Dæmi um stigagjöf t.d. hvað varðar þátt 1) að
sitja á stól er eftirfarandi:
Að sitja á stól
a) Getur ekki setið ( án óþæginda) 15 stig
b) Getur ekki setið (án óþæginda)
10 mínútur
15 stig
c) Getur ekki setið (án óþæginda)
nema 30 mínútur
7 stig
d) Getur ekki setið meira en 1 klst. 3 stig
e) Getur ekki setið meira en 2 klst. 0 stig
f) Engin vandamál með að sitja 0 stig
Sjá nánar á heimasíðu TR: http://www.tr.is .
Nái umsækjandi ekki tilskildum stigafjölda í
öðrum hluta staðalsins, getur hann samt verið
metinn a.m.k. 75% öryrki, nái hann a.m.k.
6 stigum í hvorum hluta staðalsins.
Að loknu mati er unnið áfram með umsókn
á Réttindasviði Tryggingastofnunar eða í
umboðum utan Reykjavíkur og berst niðurstaða
mats til umsækjanda þaðan.
Helsta orsök örorku
Hjá Tryggingastofnun ríkisins voru 17.379 ein-
staklingar með 75% örorkumat í gildi 1.des-
ember 2014. Geðraskanir voru algengasta fyrsta
orsök örorku eða hjá tæplega 38% einstaklinga.
Til samanburðar var hlutfallið um 36% í des-
ember 2004. Stoðkerfissjúkdómar fylgdu fast á
eftir og voru önnur algengasta orsökin.