SÍBS blaðið - 01.02.2015, Page 18

SÍBS blaðið - 01.02.2015, Page 18
SÍBS BLAÐIÐ 2015/118 staklingsins til að hámarka þátttöku hans á vinnumarkaði. Það að vinna að því að bæta færni einstaklings á einu sviði hefur síðan áhrif á færni hans á öðru sviði til dæmis í formi þátttöku (Bornman, 2004, Loisell, 1994). ICF (International Classification of Func- tion ing) er alþjóðlegt flokkunarkerfi um færni, fötlun og heilsu, gefið út af Alþjóða- heilbrigðismálastofnuninni (WHO) árið 2001. Þetta kerfi er nýtt sem hugmynda- fræðilegur rammi í starfsgetumatsferlinu (World Health Organization 2001). Einn af kostum þessa kerfis er að það gefur möguleika á stöðluðu alþjóðlegu tungu- taki yfir heilsu og heilsutengt ástand þar sem lögð er áhersla á að horfa á ein- staklinginn út frá færni hans og þátttöku í samfélaginu. Hugmyndafræðin að baki ICF gerir ráð fyrir að horft sé á ástand einstaklings út frá heilsu og getu en ekki út frá skerðingu eða fötlun. Auk þess er færni einstaklingsins skoðuð út frá því samfélagi sem hann býr í, án tillits til hvað olli skerðingunni. Samspili ólíkra þátta er því markvisst lýst og áhrifum þeirra á hvorn annan (sjá mynd 1). Rétt er að undirstrika í þessu samhengi mikil- vægi heildrænnar sýnar og ekki síst þverfag- legrar vinnu og nálgunar í starfsendurhæfingu. Rannsóknir hafa sýnt fram á betri árangur þegar þverfagleg nálgun er til staðar ef viss tími er liðinn frá því að einstaklingur datt út af vinnu- markaði. Tímamörkin sem oftast eru nefnd hér eru 3-6 mánuðir. Í flóknari tilfellum er þverfagleg vinna forsenda þess að vel takist til (Loisell og félagar, 1994, Gutenbrunner, C. , Ward, A.B., Chamberlain, M.A. , 2006) Starfsgetumat í lok ferlis Litið er á starfsgetumat sem eitt órofa ferli mats annars vegar og virkniaukandi aðgerða og/eða starfsendurhæfingar og meðferðar hins vegar. Starfsgetumatið skiptist í þrjá þætti eða stig og eru útleiðir út úr ferlinu á hverju stigi (mynd 2). Gert er ráð fyrir því að sumir fari aldrei lengra inn í matsferlið en í svokallað grunnmat. Þannig verði þörfum þeirra mætt strax á því stigi. Aðrir munu fara í gengum allt matsferlið. Einstaklingi er vísað í starfsgetumat VIRK þegar starfsendurhæfingaráætlun er lokið og ljóst er að einstaklingur hefur ekki náð fullri starfs- getu. Í starfsgetumati er tekin afstaða til þess hvort starfsendurhæfing sé fullreynd með tilliti til mögulegra starfa á vinnumarkaði. Teljist starfsendurhæfing fullreynd eru styrkleikar og hindranir einstaklings sérstaklega skoðaðir og metnir og þeir tengdir við möguleg störf á vinnumarkaði. Styrkleikar eru þannig nýttir til að leiðbeina markvisst í störf sem talin eru raunhæf en á sama tíma er tekið tillit til þeirra hindrana sem eru til staðar (mynd 2). Þróun starfsendurhæfingarferlis VIRK og starfsgetumats Mikil þróun matsferlisins á undanförnum mán- uðum hefur ekki síst ráðist af þeirri reynslu sem VIRK byggir á til dagsins í dag, auk áfram- haldandi þekkingaröflunar og samstarfs erlendis frá. Eftirtaldir þættir hafa haft mikil áhrif á þessa þróun: • Eumass, samtök evrópskra trygginga- lækna, hafa tekið saman 20 þætti er skipta máli í mati á starfsgetu eða rétti á bótum innan evrópskra velferðarkerfa. Þættirnir eru tengdir við ICF flokkunar- og kóðun- arkerfið (Brage, Donceel og Fatez 2008, Anner, Brage, Donceel, Falez, Freuden- stein, Oancea og de Boer 2013) • Í Svíþjóð hefur verið þróað starfsgetumat m.a. með aðstoð ICF kerfisins. Markmiðið er að tryggja að ólíkar stofnanir tali sam- eiginlegt tungumál og að faglegar kröfur um starfsgetumat séu staðlaðar (Larsson 2013). • Bandaríkjamenn hafa áratuga reynslu í miskamati, samkvæmt AMA (Rondinelli 2007). Þótt þetta sé ekki starfsgetumat má nýta þá sýn sem það veitir á stöðluð vinnubrögð og notkun matslista. • Hollendingar hafa búið til staðlaða og áreiðanleikaprófaða spurningalista og leggja áherslu á staðlað viðtal (Spanjer, Krol, Brouwer, Popping, Groothoff og van der Klink 2010). • Bretar hafa þróað mat á starfsgetu og raunhæfi starfsendurhæfingar út frá þekktum áhættuþáttum sem snúa að endurkomu til vinnu (Health and Work Service 2014). Líkamsstarfsemi Líkamsbygging Heilsufarsástand Umhverfisþættir Persónulegir þættir Athafnir Þátttaka Mynd 1. Mynd 2. Matsferill starfsgetumats hjá VIRK Hugmyndafræðin að baki ICF gerir ráð fyrir að horft sé á ástand einstak- lings út frá heilsu og getu en ekki út frá skerðingu eða fötlun.

x

SÍBS blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.