SÍBS blaðið - feb. 2016, Blaðsíða 12

SÍBS blaðið - feb. 2016, Blaðsíða 12
12 SÍBS-blaðið „Ég get ekki lengur haldið athygli við einföldustu verkefni!“ „Ég man ekki lengur nöfnin á fólki sem ég þekki!“ „Er ég kannski að fá Alzheimer?“ Það er algengt að heyra eitthvað þessu líkt frá fólki sem á við þunglyndi og kvíða að stríða. Hér verður sjónum hins vegar beint sérstaklega að tengslum þunglyndis og hugarstarfs. Á síðustu árum hefur orðið vart við vaxandi almenna meðvitund og skilning á helstu einkennum þunglynd- is. Þau geta t.a.m. lýst sér í depurð eða áhugaleysi, neikvæð- um hugsanagangi þar sem vonleysi og sektarkennd eru áberandi, hugsunum um dauðann, svefntruflunum og þreytu. Hins vegar er fólk kannski síður meðvitað um að þunglyndi getur líka haft áhrif á almennt hugarstarf, eins og athygli, minni, skipulagsgetu og úrvinnsluhraða. Algengt er að fræðimenn líti nú svo á að hugrænir erfið- leikar séu ekki hliðarverkun af þunglyndi heldur geti talist til megineinkenna þess. Hugrænir erfiðleikar hafa mikið að segja varðandi almenn lífsgæði og því er afar mikilvægt að meðferð beinist einnig að þessum þáttum. Hvað veldur athyglis­ og minniserfiðleikum? Talið er að athyglis- og minniserfiðleikar í þunglyndi geti tengst skertum taugaboðefnabúskap, sem trufli þá hugarstarf með beinum hætti. Einnig er ljóst að skert áhugahvöt og neikvæð viðhorf vega þungt í þessum efnum. Í þunglyndi hefur fólk almennt minni ánægju af því að takast á við verkefni, einblínir á mistök og gefst frekar upp. Oft á tíðum hefur fólk neikvæðar hugmyndir um eigin hugræna getu. Þannig geta áhyggjur af eigin hugarstarfi skapað neikvæða forspá („Ég á aldrei eftir að geta munað allt það sem ég þarf að koma á framfæri á fundinum!“) sem ýta beinlínis undir verri frammi- stöðu og staðfesta á þann hátt neikvæðu forspána. Hvað annað hefur áhrif á hugarstarf? Auk þunglyndis- og kvíða geta ýmsir aðrir þættir haft neikvæð áhrif á hugarstarf. Sjúkdómar og slys sem skerða á einhvern hátt starfsemi heila- og miðtaugakerfisins geta að sjálf- sögðu verið undirrót hugrænna erfiðleika. Þess ber að geta að þunglyndi og kvíði eru algengir fylgifiskar ýmissa tauga- hrörnunarsjúkdóma og annarra þátta sem skaða heilavef, eins og heilablæðinga. Það getur því verið nauðsynlegt að meta vandlega hver sé aðalorsök vandans til þess að taka megi sem best á þeim erfiðleikum sem til staðar eru. Aðrir þættir sem hafa bera í huga eru t.d. svefnleysi, streita og álag, vímuefnaneysla og aldur. Hvað varðar áhrif aldurs er þó mikilvægt að taka fram að ekki er óhjákvæmilegt að minnið versni með aldrinum. Ákveðinn hópur fólks heldur minnisgetu sinni svo til ævina á enda og virðast ýmsir þættir hafa verndandi áhrif á heilastarfsemina, svo sem viðvarandi hugræn örvun (bæði í formi menntunar, starfs og áhugamála). Athyglin er forsenda minnisins Flestu fólki verður tíðrætt um athyglisgetu sína og minni, þetta eru hugtök sem eru okkur töm í daglegu tali. Hins vegar eru bæði hugtökin í raun regnhlífarhugtök sem ná yfir nokkuð breitt svið. Þannig getur athygli t.d. annars vegar vísað í getuna til að einbeita sér að einu verkefni án þess að truflast af utanaðkomandi áreitum og hins vegar í getuna til að beina athyglinni samtímis að tveimur eða fleiri verkefnum (eins og að keyra og tala um leið). Oft er athygli nokkurs konar forsenda annars hugarstarfs. Hvernig eigum við t.d. að skilja, kryfja eða muna upplýsingar sem okkur tókst ekki að beina athygli okkar að til að byrja með? Það getur verið hjálplegt að hugsa um athyglina sem ljóskastara sem við beinum í ólíkar áttir. Það sem fellur innan ljósgeislans er efni sem við höfum möguleika á að vinna frekar með – meðtaka, skilja og muna. Þegar fólk finnur Ella Björt Teague sálfræðingur Reykjalundi Þegar athygli og minni týnast í vanlíðan Algengt er að fræðimenn líti nú á hugræna erfiðleika sem eitt af meginkennum þunglyndis en ekki hliðarverkun

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.