SÍBS blaðið - feb. 2016, Blaðsíða 30

SÍBS blaðið - feb. 2016, Blaðsíða 30
30 SÍBS-blaðiðGrein Núvitund er að taka eftir með ásetningi og að vera meðvit- aður um það sem er að gerast hér og nú án þess að dæma. Núvitundarþjálfun kennir þér að hafa meðvitaða athygli á því sem þú tekur eftir á hverju andartaki fyrir sig. Að dvelja í andartakinu þar sem þú mætir því sem kemur upp og viður- kennir það. Núvitund fær okkur til að líta á fleiri hliðar og skoða á meðvitaðan hátt aðrar áhrifaríkari leiðir til að bregðast við erfiðleikum eða óþægindum í lífinu. Í hvert sinn sem okkur tekst að fanga hugsun sem kemur upp í hugann og í hvert sinn sem við sleppum hugsun og drögum athyglina aftur að öndun- inni eða líkamanum þá erum við að styrkja núvitund okkar. Tilfinningar eru hluti af lífinu og hvort þær orsaka vanda eða ekki fer eftir því hvernig við bregðumst við þeim. Viljum við að hlutirnir séu öðruvísi en þeir eru eða leyfum við þeim að vera nákvæmlega eins og þeir eru? Ef við bregðumst við óþægileg- um tilfinningum með andúð þá eru allar líkur á að tilfinningin magnist og við festumst í vanlíðan. Rannsóknir hafa sýnt fram á að þjálfun í núvitund getur dregið marktækt úr bakslögum hjá þeim sem hafa fengið endurtekið þunglyndi og minnkað hættuna á næstu þung- lyndislotu um helming. Áhrifin virðast álíka góð og þegar notuð eru þunglyndislyf. Einnig hafa rannsóknir sýnt að þjálf- un í núvitund dragi úr streitu og kvíða. Dæmi I: Þú ferð í gönguferð með ungu barni, gengur hægt og stoppar oft. Þú sérð með augum barnsins hversu merkilegir einfaldir hlutir eru. Þú ert að sjá eins og þú hafir aldrei séð áður. Dæmi II: Þú ekur leið sem þú þekkir vel, þú áttar þig skyndilega á því að þú hefur ekki tekið eftir umhverfinu í góða stund. Þú varst með hugann fastan í hugsunum um aðra hluti, þú hefur ekið á „sjálfstýringunni.” Þessi tvö dæmi sýna muninn á milli þess að lifa lífinu lifandi hér og nú og þess að þjóta gegnum lífið, án þess að sjá, finna bragð, lykt eða snerta á, úr sambandi við umheiminn. Oft ökum við á „sjálfstýringu” en við nánari skoðun þá sjáum við að við förum líka að miklu leyti í gegnum lífið á „sjálfstýring- unni”. Hugurinn er ekki aðgerðalaus heldur er hann að hugsa um það sem við ætluðum að gera eða hann dvelur í dagdraumum um það sem við gætum gert. Þegar við erum á „sjálfstýringu“ þá fer hugur okkar í vinnugír. Hann vinnur á bak við tjöldin án þess að við vitum, samþykkjum eða veljum það. Þá er auðvelt fyrir okkur að renna inn í vanlíðan sem getur leitt af sér næstu þunglyndislotu eða áhyggjur sem festa okkur í kvíða. Þetta hindrar okkur í að njóta jákvæðra þátta í lífi okkar og verður til þess að við tökum varla eftir nema hluta af því sem gerist í lífi okkar á hverju augnabliki. Það er eðlilegur hlutur að líða illa inn á milli en það sem festir okkur í vanlíðan eru tilraunir okkar til að losna undan erfiðum tilfinn- ingum sem við viljum ekki hafa. Hugurinn reynir að losa sig við vanlíðan með því að hugsa sig úr vandanum. Þessi tilraun okkar að losna við vanlíðan með því að hugsa okkur úr henni getur dýpkað og lengt enn frekar vanlíðan okkar. Vandinn liggur í því hvernig hugurinn bregst við. Aðferðafræði vinnuhugans virkar vel þegar við leysum vandamál eins og að byggja hús og að komast á milli staða en þegar vandamálið snertir líðan okkar þá virkar þetta ekki eins vel. Því vinnuhugurinn notar sömu aðferðafræði þegar við ætl- um ná fram innri persónulegum markmiðum. Markmiðum eins og að vera hamingjusamur, vera ekki kvíðinn, vilja ekki vera þunglyndur. Það er hér sem það fer að halla undan fæti. Vinnu- hugurinn þarf að hafa í huga allan tímann, hvar við erum, hvar Jóhanna Kr. Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur Reykjalundi Anna Kristín Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur Reykjalundi „Að gera“ er ástand hugans þar sem okkur finnst að við getum ekki hætt að reyna að ná því fram sem við viljum eða losnað við það sem við viljum ekki Núvitund

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.