SÍBS blaðið - feb. 2016, Blaðsíða 31

SÍBS blaðið - feb. 2016, Blaðsíða 31
31 1. tbl. 2016 við viljum vera og hvar við viljum ekki vera þar til vandamálið er leyst. Við getum hugsað okkur hugann eins og gírkassa á bíl. Eins og bíll getur aðeins verið í einum gír í einu þá getur hug- urinn bara verið í einum „gír” í einu. Þetta er mikilvægt því við getum losað okkur frá þeim vanda sem „að gera” skapar með því að fara í „annan gír” „að skipta gírum hugans”. Að gera • Erum á „sjálfstýringu“ • Upplifum reynslu okkar í gegnum hugsanir • Dveljum í því liðna eða framtíðinni • Reynum að forðast/flýja eða losna við erfiða reynslu eða tilfinningar • Áherslan er á bilinu á milli þess hvar við erum stödd og hvar við vildum vera • Lítum á hugsanir sem sannleika/staðreyndir • Áherslan á að ná ákveðnum markmiðum Að vera • Erum meðvituð og höfum val • Skynjum reynslu okkar á hverju andartaki • Erum að fullu til staðar í andartakinu • Nálgumst erfiðleika með áhuga • Erum ekki að meta það hvar við erum stödd. Sjáum hugsanir sem eitthvað sem fer í gegnum hugann • Leyfum hlutunum að vera eins og þeir eru Mikilvægt er að læra að þekkja muninn á því „að gera“ og „að vera“ í lífinu til þess að geta fært sig frá því „að gera“ í „að vera“. Núvitund er að taka eftir með ásetningi hér og nú án þess að dæma. Á þennan hátt erum við að færa okkur frá því að gera í það að vera. Við ætlum að stíga út úr „hvirfilbyl hugans,” vera meðvituð um upplifun okkar. Að dvelja í andartakinu hvernig sem það er, viðurkenna og sættast við það sem er. Núvitund er í sjálfu sér ekki erfið, áskorunin er að muna eftir að vera í núinu á hverjum degi Daglegar æfingar draga úr tilhneigingunni til að hugsa of mikið, forðast og hafa áhyggjur af öllu. Þú ferð að taka eftir með áhuga og forvitni, litlum, fallegum hlutum og gleði í kringum þig. Núvitund getur komið af stað miklum breytingum í lífi þínu og líðan. Breytingarnar koma við að ástunda æfingarnar. Hvað er það sem við lærum ? • Að vakna upp frá „sjálfstýringunni“. • Að skynja líkamann í stað þess að hugsa um hann • Að vera með því sem er, hér og nú • Að koma fram við okkur sjálf og reynslu okkar með mildi og samkennd • Að taka eftir hugsunum sem fyrirbærum í huganum sem koma og fara • Að hlúa að okkur sjálfum • Við finnum að við höfum val, hvernig við bregðumst við í stað þess að bregðast við á sjálfvirkan hátt Núvitund gefur okkur tækifæri til að halda áfram, er ný leið til að taka þátt í lífinu. Mikilvægt er að sýna sér mildi og viðurkenna okkur eins og við erum, á þessari stundu, hér og nú. Þegar við förum að taka eftir okkar innri gagnrýnanda þá sjáum við að rödd hans er ekki sú eina sem er þarna heldur er önnur hljóðlátari, rödd viskunnar sem sér skýrt með mildi hvað þarf að gera jafnvel í erfiðum aðstæðum. Núvitund vísar þér leiðina heim. Við óskum þér farsældar á ferðalagi þínu hér og nú, á hverju augnabliki. Heimildir/ítarefni: Segal, Z. V., Williams, J. M. G. og Teasdale, J. D. (2013). Mindfulness-Based Cognitive Therapy for Depression, Second Edition. New York: Guilford Press. Teasdale, J.D, Williams, J. M.G. og Segal, Z.V. (2014). The Mindful Way Workbook: An 8-Week Program to Free Yourself from Depression and Emotional Distress. New York: Guilford Press. Williams, J. M. G. og Kuyken, W. (2012). Mindfulness-based cognitive therapy: A promising new approach to preventing depressive relapse. British Journal of Psychiatry, 200, 359-360. Williams, J. M. G, Teasdale, J. D., Segal, Z. V. og Kabat-Zinn, J. (2007). The mindful way through depression: Freeing yourself from chronic unhappiness. New York: Guilford Press. „Að vera“ er ástand hugans þar sem við erum í fullu sambandi við hvert andartak

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.