SÍBS blaðið - Feb 2016, Page 31
31
1. tbl. 2016
við viljum vera og hvar við viljum ekki vera þar til vandamálið
er leyst. Við getum hugsað okkur hugann eins og gírkassa á bíl.
Eins og bíll getur aðeins verið í einum gír í einu þá getur hug-
urinn bara verið í einum „gír” í einu. Þetta er mikilvægt því við
getum losað okkur frá þeim vanda sem „að gera” skapar með
því að fara í „annan gír” „að skipta gírum hugans”.
Að gera
• Erum á „sjálfstýringu“
• Upplifum reynslu okkar í gegnum hugsanir
• Dveljum í því liðna eða framtíðinni
• Reynum að forðast/flýja eða losna við erfiða reynslu eða
tilfinningar
• Áherslan er á bilinu á milli þess hvar við erum stödd og
hvar við vildum vera
• Lítum á hugsanir sem sannleika/staðreyndir
• Áherslan á að ná ákveðnum markmiðum
Að vera
• Erum meðvituð og höfum val
• Skynjum reynslu okkar á hverju andartaki
• Erum að fullu til staðar í andartakinu
• Nálgumst erfiðleika með áhuga
• Erum ekki að meta það hvar við erum stödd. Sjáum
hugsanir sem eitthvað sem fer í gegnum hugann
• Leyfum hlutunum að vera eins og þeir eru
Mikilvægt er að læra að þekkja muninn á því „að gera“ og „að
vera“ í lífinu til þess að geta fært sig frá því „að gera“ í „að
vera“.
Núvitund er að taka eftir með ásetningi hér og nú án þess
að dæma. Á þennan hátt erum við að færa okkur frá því að
gera í það að vera. Við ætlum að stíga út úr „hvirfilbyl hugans,”
vera meðvituð um upplifun okkar. Að dvelja í andartakinu
hvernig sem það er, viðurkenna og sættast við það sem er.
Núvitund er í sjálfu sér ekki erfið, áskorunin er að muna
eftir að vera í núinu á hverjum degi
Daglegar æfingar draga úr tilhneigingunni til að hugsa
of mikið, forðast og hafa áhyggjur af öllu. Þú ferð að taka
eftir með áhuga og forvitni, litlum, fallegum hlutum og gleði í
kringum þig. Núvitund getur komið af stað miklum breytingum
í lífi þínu og líðan. Breytingarnar koma við að ástunda
æfingarnar.
Hvað er það sem við lærum ?
• Að vakna upp frá „sjálfstýringunni“.
• Að skynja líkamann í stað þess að hugsa um hann
• Að vera með því sem er, hér og nú
• Að koma fram við okkur sjálf og reynslu okkar með mildi
og samkennd
• Að taka eftir hugsunum sem fyrirbærum í huganum sem
koma og fara
• Að hlúa að okkur sjálfum
• Við finnum að við höfum val, hvernig við bregðumst við í
stað þess að bregðast við á sjálfvirkan hátt
Núvitund gefur okkur tækifæri til að halda áfram, er ný leið
til að taka þátt í lífinu. Mikilvægt er að sýna sér mildi og
viðurkenna okkur eins og við erum, á þessari stundu, hér og
nú. Þegar við förum að taka eftir okkar innri gagnrýnanda þá
sjáum við að rödd hans er ekki sú eina sem er þarna heldur
er önnur hljóðlátari, rödd viskunnar sem sér skýrt með mildi
hvað þarf að gera jafnvel í erfiðum aðstæðum. Núvitund vísar
þér leiðina heim. Við óskum þér farsældar á ferðalagi þínu hér
og nú, á hverju augnabliki.
Heimildir/ítarefni:
Segal, Z. V., Williams, J. M. G. og Teasdale, J. D. (2013). Mindfulness-Based
Cognitive Therapy for Depression, Second Edition. New York: Guilford Press.
Teasdale, J.D, Williams, J. M.G. og Segal, Z.V. (2014). The Mindful Way
Workbook: An 8-Week Program to Free Yourself from Depression and
Emotional Distress. New York: Guilford Press.
Williams, J. M. G. og Kuyken, W. (2012). Mindfulness-based cognitive therapy:
A promising new approach to preventing depressive relapse. British Journal of
Psychiatry, 200, 359-360.
Williams, J. M. G, Teasdale, J. D., Segal, Z. V. og Kabat-Zinn, J. (2007). The
mindful way through depression: Freeing yourself from chronic unhappiness.
New York: Guilford Press.
„Að vera“ er ástand hugans
þar sem við erum í fullu
sambandi við hvert andartak